28.04.1988
Sameinað þing: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6922 í B-deild Alþingistíðinda. (4878)

495. mál, förgun hættulegs efnaúrgangs

Fyrirspyrjandi (Kristín Einarsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin þó að svo væri sem mig grunaði að þarna væri ansi margt í ólestri. Ég hafði spurnir af því að núna í vetur var haldið námskeið á vegum Félags ísl. náttúrufræðinga og Háskóla Íslands um heilsuspillandi efni og sýklavarnir og á því námskeiði kom m.a. í ljós að í rannsóknastofum t.d. er mjög mikið af hættulegum efnum, bæði eiturefnum og öðrum efnum, þar sem þeir sem þar vinna, þó þeir geri sér grein fyrir vandanum, hafa enga staði til að setja þessi efni á. Það er algengt, eftir því sem mér skilst, að þessum efnum sé kastað bæði beint í frárennsli og eins á haugana. Á þessu námskeiði hélt Ólafur Pétursson hjá Hollustuvernd ríkisins erindi þar sem hann lýsti ástandinu og sagði m.a. að það væri engin aðstaða og engar leiðbeiningar fyrir hendi um það hvernig eigi að farga hættulegum efnum. Þó svo að það séu einhver lagaákvæði er það allsendis ófullnægjandi. Hann sagði í erindi sínu, með leyfi forseta:

„Hér á landi hefur mestu af hættulegum efnum hingað til verið fargað á sorphaugum eða þeim skolað burt með frárennsli þrátt fyrir það hversu alvarlegar afleiðingar slíkt getur haft. Þegar hafa komið upp tilfelli hér á landi þar sem hættuleg efni hafa komist í grunnvatn m.a. vegna slæmra förgunarleiða. Að vísu er ekki um mörg tilfelli að ræða, en víst er að ef við höldum lengi áfram á sömu braut mun þeim fjölga verulega.“

Ég vil því taka undir það sem ráðherrann sagði. Við þurfum að taka okkur á í þessum efnum. Þeim er í mörgum atriðum ábótavant en fyrst og fremst er þarna um að ræða að þessi mál eru á mörgum stöðum í stjórnkerfinu og fjárveiting hefur verið mjög skorin við nögl til Hollustuverndar ríkisins og þeirra aðila sem eiga að sjá um þessi mál. Það er ekki síst áhyggjuefni að ekki skuli vera til neinir staðir þar sem hægt er að farga þessum efnum og væri fróðlegt að vita hverjir það eru sem eiga að hafa eftirlit og veita upplýsingar þegar fólk spyr hvar eigi að farga efnunum og hver eigi að gera það. Það var nefnt að það ætti að senda þau til útlanda, geyma þau eða grípa til annarra ráða. Hver er það sem sér um að veita þessar upplýsingar?