09.11.1987
Sameinað þing: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (488)

71. mál, endurvinnsla úrgangsefna

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Hér er hreyft hinu merkasta máli með flutningi þáltill. og ég þakka það frumkvæði sem Kvennalistinn hefur haft um þennan málflutning og þá grg. sem fylgir sem dregur saman í mjög skilmerkilegu máli aðalatriðin sem tengjast þessu, bæði út frá víðtækum sjónarmiðum, varðandi auðlindir jarðarinnar, og eins það sem snýr að okkur sjálfum, og möguleika sem hér ættu að vera til að taka þessi mál öðrum og betri tökum en gerst hefur til þessa.

Það er ánægjuefni að hæstv. ríkisstjórn er að taka við sér í þessu máli. Mér sýnist að flm. hafi þegar haft nokkurt erindi af sínu erfiði því að oft er það þannig að þegar stjórnarandstaða hreyfir málum hér á Alþingi verður það til þess, þó með óbeinum hætti sé, að koma málum á dagskrá hjá framkvæmdarvaldinu þó að þau kannski fái ekki formlegt samþykki hér á hv. Alþingi. (Iðnrh.: Þetta er í stjórnarsáttmálanum.) Hæstv. ráðherra minnir á að þetta sé í stjórnarsáttmála og kannski hefur eitthvert gott fólk komið því á dagskrá í stjórnarmyndunarviðræðum í vor.

Eins og hæstv. ráðherra gat um hafa samtök látið þessi mál til sín taka nú nýverið og reyndar hafa áhugamannasamtök alllengi hvatt til aðgerða á þessu sviði. Aðalfundur Landverndar, sem stóð núna um þessa nýliðnu helgi, fjallaði sérstaklega um þetta mál og hv. 12. þm. Reykv. sem mælti fyrir till., Kristín Einarsdóttir, vitnaði til erindis sem þar var flutt af Skúla Þór Ingimundarsyni viðskiptafræðingi, þar sem dregnar eru fram gagnmerkar upplýsingar um þetta efni. Ég leyfi mér aðeins að grípa niður í þessu erindi hans til að vekja enn frekari athygli á því en orðið er þar sem hann fjallar um arðsemi greiningarstöðvar fyrir iðnaðarsorp í Reykjavík. Ég vænti að herra forseti leyfi tilvitnun í þetta erindi:

„Fyrirmynd slíkrar stöðvar er nýbyggð greiningarstöð í Frederiksund í Danmörku. Svo að ég lýsi þeirri stöð nánar, þá kostaði hún fullbúin rúmlega 30 millj. ísl. kr. Stöðin getur afkastað nærri 15 þús. tonnum á ári og er þá miðað við að hún sé eingöngu starfrækt 8 klst. á dag 5 daga vikunnar.“

Síðan er þessu nánar lýst, en í framhaldinu er vikið að úttekt Skúla Þórs Ingimundarsonar á rekstrargrundvelli flokkunarstöðvar sem þessarar og hann segir þar:

„Gerði ég ráð fyrir að hin ýmsu efni sem flokkuð væru yrðu seld úr landi til endurvinnslu. Meginuppistaða efnanna yrði pappír í ýmsum gæðaflokkum, þó mest í lélegustu gæðaflokkunum, þ.e. blandaður pappír. Þetta yrði fyrsta skrefið í átt að markvissri endurvinnslustarfsemi hérlendis, þar sem á þennan hátt mundi fást reynsla í meðhöndlun úrgangsefna, svo og upplýsingar um raunverulegt magn og umfang endurvinnanlegra efna.

Þegar þessi athugun var gerð voru verð á úrgangsefnum, þ.e. pappír, mjög lág í Evrópu. Því eru forsendur um verð raunhæfar því lítillar bjartsýni gætir þar. Niðurstaða athugunar minnar á rekstrargrundvelli sorpgreiningarstöðvar, sem hér hefur verið lýst, er eftirfarandi fyrir eins árs starfsemi.“ — Ég ætla ekki að vitna beint í erindið frekar en hann dregur þar fram að í fljótu bragði virðist dæmið ekki geta gengið upp fjárhagslega, a.m.k. ekki við það söluverð sem miðað er við, en bendir síðan á að sé tekinn inn í útreikning og færður til tekna sá kostnaður, sem sparast vegna minnkaðrar urðunar sem svarar 9200 tonnum, gæti þarna verið um að ræða 5,5 millj. kr. og þá snýst dæmið við. Þá verður niðurstaðan jákvæð, beinn hagnaður 3,8 millj. kr.

Þetta dæmi finnst mér lýsa vel því sem kemur fram í grg. með þessu máli að ekki er allt sem sýnist varðandi rekstrargrundvöll slíks endurvinnsluiðnaðar því að þarna verjum við nú þegar stórum upphæðum til kostnaðar við förgun, sem er þó allsendis ófullnægjandi, fyrir utan þá sóun á landi sem telja má að fari undir sorphauga, og staði þar sem þessu er fargað — fyrir nú utan allt saman sem liggur á víðavangi til óþrifa og óprýði og menn þekkja jafnt í þéttbýli og dreifbýli.

Ég vil, herra forseti, nefna hér áður en ég lýk máli mínu örlög máls sem ég átti hlut að sem ráðherra í ríkisstjórn fyrir nokkrum árum að bera fram og fá samþykkt hér á Alþingi, en það voru lög um stálbræðslu. Þau fólu í sér ákveðnar heimildir fyrir ríkisvaldið til að styðja við það mál með ríkisábyrgð.

Lögin voru samþykkt um vorið 1981 og þá átti þetta mál 10 ára aðdraganda. Sveinbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Ofnasmiðjunnar, hafði barist fyrir þessu máli um a.m.k. 10 ára skeið og margar athuganir höfðu verið gerðar. Iðnrn. tók sig til 1980 og reyndi að styðja við þetta. Þá var gerð úttekt á hráefnisöflun, m.a. af Almennu verkfræðistofunni, fyrir ráðuneytið og gert ráð fyrir að söfnun og vinnsla brotajárns gæti á nokkurra ára bili vaxið upp í 10 þús. tonn og síðar í 15 þús. tonn ef til svona iðnrekstrar kæmi. Þarna voru sem sagt lagðar til grundvallar ákveðnar forsendur varðandi brotajárn sem til fellur í landinu og arðsemisútreikningur gerður á úrvinnslu þess í steypustyrktarjárn.

Örlög þessa máls urðu þau að í tíð síðustu ríkisstjórnar datt þetta mál dautt. Ég ætla ekki að fara langt út í þá sálma. Hér er ekki tími til þess. Þetta mál var til umræðu í sameinuðu þingi 18. febr. 1986 af tilefni fsp. sem fram var borin af mér og fleiri hv. þm. og má segja að málið hafi af stjórnvalda hálfu formlega verið jarðsungið í þeirri umræðu, að því er snýr að Alþingi. Það kom sem sagt í ljós að ríkisstjórnin sá sér ekki kleift að styðja við málið með þeim hætti að þeim framkvæmdum sem hafnar voru á Vatnsleysuströnd eða hér suður með sjó yrði fram haldið. Forráðamenn þessa fyrirtækis, sem er einkafyrirtæki, töldu líkur á því að von væri á gildu hlutafjárframlagi ef ríkisvaldið tæki jákvætt undir þær óskir um ríkisábyrgð sem þarna voru fram bornar af þeirra forsvarsmönnum. Valdamenn, ráðherrar þáv., hæstv. fyrrv. iðnrh., Sverrir Hermannsson, hafði gefið mjög sterklega í skyn að stutt yrði við þetta fyrirtæki en úr efndum varð ekkert. Út á þær vonir hófu forgöngumenn þessa fyrirtækis framkvæmdir sem síðan strönduðu og nú er þetta fyrirtæki gjaldþrota og líklega uppgert án þess að ég vilji fullyrða nákvæmlega um stöðu þess.

Þarna var sem sagt reynt að gera stórt átak varðandi endurvinnslu málma sem til falla hér í landinu. Þrifnaðarmál og atvinnumál. En ég tel að stjórnvöld hafi ekki staðið við sinn hlut, því miður, og því erum við enn í sömu sporunum hvað þennan þátt snertir. Og eins og hér kom fram hefur Sindri gefist upp við söfnun og útflutning á brotajárni sem það fyrirtæki hafði stundað um árabil.

Hv. þm. Kristín Einarsdóttir gat þess að við iðnað af þessu tagi þurfi að styðja með ýmsum hætti og þar eru margar leiðir sem hún vék að í sínu máli. Ein þeirra er m.a. ákveðin verndun fyrir þennan iðnað. Þar eru stjórnvöld og hafa verið afskaplega hikandi og ekki tekið undir með þeim hætti sem þyrfti. Varðandi undirbúning stálbræðslunnar t.d. þá lágu engin loforð fyrir af hálfu viðskrn. um að standa gegn undirboðum á steypustyrktarjárni, innfluttri framleiðslu, ef til kæmi. Við erum allt of ragir að beita þeim heimildum sem fyrir liggja samkvæmt alþjóðasamningum að bregðast við slíku og það snertir m.a. möguleikana á því þrifamáli sem hér er flutt og varðar okkur og er reyndar hluti af miklu stærra máli sem snertir heimsbyggð alla.