09.11.1987
Sameinað þing: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (489)

71. mál, endurvinnsla úrgangsefna

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég vil lýsa yfir stuðningi við þessa þáltill. og fagna því að hér er kveðið mun fastar að orði en í þeim stjórnarsáttmála sem gerður hefur verið um sama efni. Hvort hugmyndin er komin inn í stjórnarsáttmálann eftir þeirri leið sem hv. 2. þm. Austurl. lét skína í veit ég ekki, en hvaðan sem hún er komin þá er hún góð. En alvara málsins er mikil. Það blasir nefnilega við að þeir aðilar, sem farið hafa af stað með tilraunir til að koma á endurvinnsluiðnaði, hafa margir hverjir búið við þær aðstæður að þar stefnir í gjaldþrot hafi það ekki þegar átt sér stað. Hvaða álit sem menn hafa haft á þeim samningum sem Stálfélagið var búið að gera erlendis þá finnst mér að menn hljóti að geta sameinast um það að járnbræðsla hér á landi hlýtur að eiga rétt á sér, m.a. af umhverfisverndarsjónarmiðum.

Hæstv. iðnrh. ruglaði saman tveimur fyrirtækjum sem vinna að endurvinnslu á pappír og eiga sennilega bæði sameiginlegt að vera nú í mjög miklum rekstrarerfiðleikum. Það er ekki aðeins það að pappírinn hafi ekki verið „sortéraður“, heldur einnig hitt að þau kjör á fjármagni, sem þessum aðilum hefur verið boðið upp á, eru á þann veg að endurvinnslufyrirtækið á pappír sem er í Garðinum hefur lent í verulegum vandræðum. Hitt er aftur á móti viðskiptalegs eðlis hvernig á því stendur að þeir aðilar, sem hafa verið að framleiða eggjabakka og eru í Garðabæ, sitja nú uppi með það að innflutningur virðist vera hagkvæmari en þeirra framleiðsla. Það má svo meta það út frá þjóðhagslegu sjónarmiði hvort vit er í slíku.

Ég vænti þess að þetta verði til þess að hraða þeirri starfsemi sem hæstv. iðnrh. hefur sett af stað og verki á hann eins og þegar góður gæðingur heyrir í hófaskellum fyrir aftan sig — að hann bæti ögn við ferðina og fari nú að framkvæma eitthvað af því sem menn hafa verið að hugsa um að athuga.