09.11.1987
Sameinað þing: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (490)
71. mál, endurvinnsla úrgangsefna
Flm. (Kristín Einarsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka undirtektir hv. þm. og hæstv. iðnrh. við tillögunni og lýsi ánægju minni yfir að ráðherra hafi ákveðið að vinna að þessu máli og stofna nefnd til að reyna að reikna út og athuga hvort þetta muni borga sig. En ég vil samt benda á að við hagkvæmnisútreikninga verður að líta á hagkvæmni í víðum skilningi. Það má ekki vera allt of þröngt þegar verið er að athuga þetta. Við verðum nefnilega að muna að auðlindir jarðar eru langt frá því að vera óþrjótandi, sumar eru reyndar þrotnar, og við verðum líka að hugsa til þeirra sem á eftir koma. Þeir þurfa ekkert síður á þessum hráefnum að halda en við.
Ég ætla að taka það fram að það er sama hvaðan gott kemur. Það er jafnnauðsynlegt að taka á þessum málum hvaðan sem hugmyndin er komin. Hvaðan hún er komin inn í stjórnarsáttmálann skiptir engu máli. Það er þar og það er m.a.s. mjög gott ef ríkisstjórnin ætlar að taka svona vel á öllu sem stendur í stjórnarsáttmálanum. Ég vona það alla vega því að það er margt gott sem þar stendur þó að kannski ... (Iðnrh.: Vill ekki þm. lýsa bara yfir stuðningi við stjórnarsáttmálann eins og hann liggur fyrir?) Alla vega þessu orði sem stendur þar. Ýmislegt gott er þar þó að ég sjái kannski ekki alveg þess merki að það eigi að efna allt sem þar stendur, a.m.k. miðað við það sem hingað til hefur komið fram.