09.11.1987
Sameinað þing: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í B-deild Alþingistíðinda. (492)

76. mál, skógrækt á Fljótsdalshéraði

Flm. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um eflingu skógræktar á Fljótsdalshéraði sem ég flyt ásamt hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni og Agli Jónssyni. Tillgr. hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela landbúnaðarráðherra að láta semja tíu ára áætlun um eflingu skógræktar á Fljótsdalshéraði. Áætlunin skal taka til eftirfarandi atriða:

a. ræktunar nytjaskóga,

b. viðhalds og hirðingar skóglendis sem fyrir er,

c. flutnings aðalstöðva Skógræktar ríkisins til Hallormsstaðar.

Við gerð áætlunarinnar um ræktun nytjaskóga og hirðingu skóglendis skal höfð samvinna við Skógrækt ríkisins, Búnaðarsamband Austurlands og skipulagsstjóra ríkisins. Miðað skal við að flutningur aðalstöðva Skógræktar ríkisins verði í áföngum í samráði við skógræktarstjóra og starfsmenn stofnunarinnar.“

Tildrög þess að þessi till. er flutt eru þau að á Fljótsdalshéraði eru ein bestu skilyrði til skógræktar hér á landi og a.m.k. hef ég horft á skóginn vaxa þar og dafna á undanförnum árum og verða að það viðamiklum trjám að sýnt er að þar er nytjaskógrækt möguleg. Þetta veit ég líka að meðflm. mínir hafa séð og reynt sjálfir.

Eins og kemur fram í grg. er einnig á stóru svæði samfelldur birkiskógur á Fljótsdalshéraði og þær skógarleifar eru einar þær mestu hérlendis. Samkvæmt landnýtingaráætlun, sem var gefin út í maí 1986, eru skógræktarskilyrðin best á Upp-Héraði og mjög góð á Út-Héraði ef frá eru talin þau svæði sem liggja næst Héraðsflóa.

Það er löng hefð fyrir skógrækt á Fljótsdalshéraði. Skógrækt ríkisins hefur haldið uppi starfsemi á Hallormsstað í 80 ár. Fyrstu fjóra áratugina beindist starfsemin aðallega að friðun og umhirðu birkiskóga og nú er, eins og ég sagði áður, gróskumestu birkiskóga landsins að finna á Héraði.

Þar hafa líka löngum verið gerðar tilraunir með erlendar trjátegundir og má geta þess í því sambandi að þar var t.d. árið 1938 gróðursett innflutt lerkifræ þar sem er nú Guttormslundur. Það var gert af Guttormi Pálssyni sem þar var skógræktarstjóri og ber lundurinn nafn hans. Þessi tré eru nú löngu komin yfir það að vera nothæf til þess að saga úr þeim borðvið og það hefur reyndar verið gert nú þegar.

Reynslan af þessu starfi bendir ótvírætt til þess að á Fljótsdalshéraði innan Egilsstaða megi rækta sumar trjátegundir með arðsemi og á það sérstaklega við um ræktun lerkis eins og ég nefndi. Ætla má að á þessu svæði skili hver hektari lands 4–5 teningsmetrum viðar árlega miðað við 80–100 ára vaxtartíma sem er sambærilegt við þær kröfur sem gerðar eru til nytjaskógræktar í nágrannalöndum okkar í norðanverðri Skandinavíu.

Ég get getið þess svona í framhjáhlaupi að fyrir nokkrum árum var ég staddur í Norður-Svíþjóð nálægt Luleá og Kiruna. Þar var gróðurfar mjög svipað að sjá eins og einmitt á Fljótsdalshéraði, en þarna er mjög mikið skógarhögg og er það drjúg atvinnugrein þar, eins og menn vita sem þarna hafa komið.

Skógræktin á Hallormsstað núna gefur drjúgar tekjur. Þar eru ræktuð jólatré. Það eru grenitré sem margir hafa séð og keypt. Þar er framleiddur eldiviður, stauraviður o.fl. og hefur þessi framleiðsla farið vaxandi á síðari árum. Tekjur af þessari framleiðslu eru áætlaðar 8,5 millj. á þessu ári, eins og kemur fram í grg., og nemur sú upphæð 60% af áætluðum rekstrargjöldum skógræktarinnar á Hallormsstað.

Það hefur löngum verið draumur skógræktarmanna og margra bænda að nytjaskógrækt geti orðið atvinnugrein í sveitum landsins. Arið 1969 voru nokkrir framsýnir menn sem reyndu í Fljótsdal í samvinnu við bændur í hreppnum að gera þessa atvinnugrein að veruleika og voru gróðursett þar tré og gerð áætlun, sem var nefnd Fljótsdalsáætlun, um ræktun nytjaskógar á bújörðum. Nú er stunduð ræktun nytjaviðar á átta jörðum á alls 368 hekturum lands og,er lokið við að gróðursetja í helming þess svæðis. Áhugi er nú hjá bændum á Héraði að halda þessu starfi áfram og kemur fram í grg. að áhugi er á því hjá sextán bændum á Upp-Héraði að hefja ræktun á 432 hekturum lands.

Menn kunna að segja að þessar áætlanir byggist á bjartsýni og þetta muni ekki skila neinu fyrr en eftir einhverja áratugi, einhvern tíma í framtíðinni. Ég get sagt það hér að ég var viðstaddur þegar fyrsta tréð í þessari áætlun var gróðursett og ég kom aftur í þennan skógarlund eftir tíu ár, þegar þessi áætlun átti tíu ára afmæli, og þá var kominn þar vöxtulegur skógur. Þannig er árangurinn af skógrækt nokkuð sem hver og einn þarf að upplifa. Áður en ég fluttist austur á Fljótsdalshérað hafði ég ekki ýkjamikla trú á skógrækt, að hún gæti verið raunhæf hér og gæti verið raunhæf sem atvinnugrein, en þetta breytist þegar maður kemst í snertingu við þessa starfsemi.

Því miður hefur framgangur þessarar áætlunar ekki orðið sem skyldi og fjármagn til hennar hefur ætíð verið skorið við nögl svo ekki sé meira sagt. Ekki hefur því orðið eins mikið úr framkvæmdum og æskilegt hefði verið. Ég hlýt úr þessum ræðustól að mótmæla þeirri stefnumörkun sem kemur fram í fjárlagafrv. núna þar sem framlög til þessarar áætlunar eru felld niður. Þó að hér hafi ekki verið um mikla fjárhæð að ræða og ekki fjárhæð sem skiptir sköpum í þessu sambandi hlýtur þó þarna að vera viss stefnumörkun að baki þar sem fjárhæðir til nytjaskóga vaxa ekki að sama skapi. Hér verður því að reisa merkið og til þess m.a. er þessi till. flutt.

Í sambandi við áhuga bænda á skógrækt má geta þess að nú eru viss þáttaskil á Fljótsdalshéraði. Þar hefur verið skorinn niður vegna riðu fjöldi fjár og eins og kemur fram í grg. verður þar eitt besta skógræktarland á Íslandi fjárlaust um sinn, þ.e. Norður-Vellir og Skógar. Það væri vert að kanna þá hugmynd hvort bændur á þessu svæði séu tilbúnir til að taka upp skógrækt sem atvinnugrein og leggja niður sauðfjárrækt. Það er vert að kanna þessa möguleika. Einnig er ég alveg viss um að skógrækt getur verið arðvænleg hliðargrein hjá mönnum sem stunda hinn hefðbundna búskap því að þvert á það sem margir hafa haldið fram getur þetta tvennt vel farið saman og er að aukast skilningur á þessum hlutum nú.

2. liður till. fjallar um viðhald skóglendis, en nauðsynlegt er að huga að þeim málum. En hér er um heljarmikið verk að ræða og ekki síst vegna þess hve þetta er mikið verk er nauðsynlegt að huga að hvernig að því verður staðið. Þarna er um að ræða hreinsun og grisjun á birkiskógunum, en þeir eru víða erfiðir yfirferðar og mikið af kalviði og slíku sem heftir umferð um þá. Þessir skógar eru að hluta í einkaeigu, hluti er í eigu Skógræktar ríkisins og hluti er í eigu þéttbýlissveitarfélaga. Það ber nauðsyn til að það takist samstarf með öllum þessum aðilum um hvernig að þessum málum verði staðið í framtíðinni, en það er nauðsynlegt að forustan og ráðgjöfin sé í höndum Skógræktarinnar sem hefur mikla reynslu í þessum málum, hvernig á að hirða þá skóga sem fyrir eru.

Síðasti liður þáltill. fjallar um flutning Skógræktar ríkisins til Hallormsstaðar eða höfuðstöðva hennar. Tillögumönnum er fulljóst að um þetta atriði eru skiptar skoðanir og m.a. eru skiptar skoðanir um það hjá starfsmönnum Skógræktar ríkisins. Á síðasta þingi var flutt þáltill. um flutning höfuðstöðva Skógræktar ríkisins að Hallormsstað. 1. flm. var Guðrún Tryggvadóttir, sem sat hér á þingi sem varamaður þá, og var ég meðflm. að þeirri till. hennar. Það mál hlaut ekki afgreiðslu á síðasta þingi. Málið er vegna þess endurflutt hér, en í nokkuð víðara samhengi.

Það hlýtur að teljast eðlilegt, þegar fjallað er um framtíð skógræktar á Fljótsdalshéraði, að efling starfs Skógræktar ríkisins á Hallormsstað komi inn í þá umræðu. Það er vel við hæfi að höfuðstöðvar þeirrar starfsemi séu á Hallormsstað þar sem skógrækt byggir á langri reynslu og ríkri hefð.

Ég minntist á að þetta mál væri ekki nýtt hér í Alþingi. Það hafa áður verið flutt um það frv. og till. Mig minnir að það hafi verið 1968 sem Kristján Ingólfsson, sem þá var varaþm. hér, flutti um þetta mál þingmál. Í þeim umræðum má lesa þær skoðanir að Hallormsstaður sé afskekktur og þess vegna sé ekki mögulegt að hafa þessar aðalstöðvar þar og m.a. má lesa þær skoðanir í þeim umræðum að á Austurlandi sé ekki hægt að taka á móti erlendum gestum. Ég rak augun í það. Það hafði einhver þm. haldið því fram. Ég fullyrði að Hallormsstaður er ekkert svo afskekktur að þar sé ekki hægt að halda uppi þessari starfsemi. Við Skógrækt ríkisins eiga þeir erindi sem hafa áhuga á skógrækt og þurfa að fá ráðgjöf í því efni og þá ráðgjöf er best að veita á Hallormsstað. Þar geta menn séð árangur þessa starfs í 80 ár. Samgöngurnar austur eru orðnar þannig að það á ekki að valda neinum vandkvæðum. Það er flogið tvisvar á dag allan ársins hring á Egilsstaði. Það er kominn vegur með varanlegu slitlagi í Hallormsstað. Símasambandið er þannig við þennan stað að það á ekki að valda neinum vandkvæðum í þessu efni. Og þar er áreiðanlega hægt að taka á móti erlendum gestum jafnvel og annars staðar á landinu ef ekki betur. Þessi rök eru því léttvæg þó að ég nefni þau til að sýna hvernig þessi umræða hefur verið á liðnum árum. En ég tel að hér sé um stefnumarkandi mál að ræða. Ef það er meint eitthvað með tali um flutning ríkisstofnana er tiltölulega auðvelt að flytja aðalstöðvar þessarar stofnunar. Ef það er ekki hægt er tómt mál að tala um dreifingu valds og flutning ríkisstofnana um landið.

Hins vegar er flutningur stofnana viðkvæmt mál og við skiljum vel sjónarmið starfsmanna þessarar stofnunar sem e.t.v. líta til þess með kvíða ef þessar aðalstöðvar eru fluttar. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa þarna aðlögunartíma og hafa gott samráð við þá sem málið snertir og till. gerir ráð fyrir því.

Eins og kemur fram í grg. er áhugi fyrir þessu máli á Austurlandi. Samband sveitarfélaga á Austurlandi ályktaði á aðalfundi sínum, sem haldinn var á Fáskrúðsfirði dagana 27. og 28. ágúst í sumar, til stuðnings þessu málefni þannig að það sýnir áhuga manna heima fyrir á þessu máli.

Við flm. þessarar till. vonum að till. fái skoðun í nefnd og höfum ekki á móti því að hún verði skoðuð þar vandlega og verði kallað á þá sem hlut eiga að máli. Við erum að sjálfsögðu til viðræðu um hvers konar lagfæringar á tillögugerðinni sem til greina koma eftir þær viðræður.

Að lokinni þessari umræðu fer ég fram á að málinu verði vísað til atvmn.