28.04.1988
Sameinað þing: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6968 í B-deild Alþingistíðinda. (4923)

505. mál, vantraust á ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar

Málmfríður Sigurðardóttir:

Hæstv. forseti. Góðir hlustendur. Þegar núverandi ríkisstjórn settist að völdum gaf hún út litla gráa bók, stefnuyfirlýsingu og starfsáætlanir, þar sem gat að líta helstu áform hennar um landsstjórnina. Ég ætla að víkja að þeim þáttum í stefnu hennar sem að landsbyggðinni snúa.

Í stefnuyfirlýsingunni góðu stendur á fremsta blaði, með leyfi hæstv. forseta: „Stuðlað verði að eðlilegri byggðaþróun í landinu... Fylgt verði byggðastefnu sem byggist á uppbyggingu atvinnulífs, átaki í samgöngumálum, eflingu þjónustukjarna og bættri fjármagnsþjónustu heima í héraði.“ Þetta eru falleg orð, ágætis fyrirheit, ef unnið væri eftir þeim. En hver er svo raunveruleikinn?

Raunveruleikinn er sá að að landsbyggðinni er þrengt á alla vegu nú sem aldrei fyrr. Landbúnaðurinn er langt frá að hafa unnið sig út úr þeim vanda sem misvitrir forustumenn stofnuðu til. Bændur búa við mjög mismunandi afkomumöguleika og skerðingar á framleiðslu þeirra mismuna þeim í mörgum tilvikum enn frekar. Bændur sem ekki hafa möguleika á að framfleyta fjölskyldu af búum sínum, né heldur að bæta sér upp tekjutap á annan hátt, hljóta að standa upp af jörðum sínum verðlausum, oft á tíðum slyppir og snauðir. Enginn kaupir jörð sem ekki fylgir lífvænlegur fullvirðisréttur.

Fyrirheit ríkisstjórnarinnar um eflingu jarðakaupasjóðs eru uppfyllt á þann veg að hann hefur 15 milljónir til ráðstöfunar, svona um það bil þriggja íbúða verð. Það þarf ekki mikið fjármálavit til að sjá hvert gagn bændum er að því.

Þetta eru þær leiðir sem hæstv. ríkisstjórn hefur valið sér til að ná fram markmiðum á bls. 9 í litlu gráu bókinni, með leyfi forseta: „Að treysta starfsskilyrði í landbúnaði og bæta hag bænda.“ Ég leyfi mér að efast um að íslenskir bændur almennt treysti að málum þeirra sé vel borgið undir forsjá þessarar stjórnar.

Hvernig er svo ástandið við sjávarsíðuna? Hvert sinn sem við lítum á dagblöð blasa við fyrirsagnir um hrikalegan vanda útflutningsfyrirtækjanna sem víðast um landsbyggðina eru undirstaða atvinnulífsins. Yfirlýsingar frá stjórnendum þessara fyrirtækja eru flestar á einn veg, þeir segja að þau standist ekki mikið lengur nema eitthvað verði gert sem bæti stöðu þeirra.

Efnahagsstefna hæstv. ríkisstjórnar birtist einkum á tvennan hátt gagnvart útflutningsfyrirtækjum. Annars vegar með því að halda genginu föstu og á hinn bóginn með háum vöxtum og kolvitlausri lánskjaravísitölu. Þetta er sú stefna sem Seðlabankinn leggur til að hvergi verði hvikað frá. Fari svo að þessari stefnu verði haldið þrátt fyrir innlendar kostnaðarhækkanir getur það ekki leitt til annars en að þau fyrirtæki sem afla útflutningstekna okkar verði umvörpum gjaldþrota.

Þessir fastgengisstefnupostular segja á þessu sérstæða tungumáli sem þeir tala, að það þurfi að aðlaga aðrar stærðir að fastgengisstefnunni. Á mannamáli þýðir það að halda niðri launakostnaði — greiða ekki mannsæmandi laun. Það er sú stefna sem hefur birst okkur í kjarasamningunum í vetur og enn er haldið til streitu.

Hvað vakir fyrir forráðamönnum með þessari stjórn efnahagsmála? Hvað ætla þeir að fá út úr þessu? Er ætlun þeirra að ná því fram að þau fyrirtæki leggist af sem ekki standast þessar aðstæður? Fari fram sem horfir er ekki fyrirsjáanlegt annað en fram undan sé stórfelld uppstokkun á eignarhaldi á útflutningsfyrirtækjunum. Margt bendir til þess að félagsformið á rekstri þeirra leggist af og það verði einstaklingar sem taki þau yfir. Heimamenn munu tapa í þeim leik. Fjármagnið til að taka reksturinn yfir liggur ekki hjá þeim. Við vitum öll hvar á landinu það og eigendur þess eru til húsa. Þá verður hinu langþráða hámarki hagkvæmnis- og arðsemissjónarmiða náð. Útflutningsfyrirtækin orðin örfáar stórverksmiðjur.

Það er ekki að verða neitt launungarmál að markvisst er stefnt í þessa átt, hvort sem ráðamenn vilja viðurkenna það eða ekki. Landsbyggðarfólk verður að horfast í augu við þessa staðreynd og huga að til hvaða ráða er hægt að grípa.

Búseturöskunin í landinu er þegar ærin. En fari svo að aðalatvinnufyrirtæki í sjávarplássi verði dæmt úr leik er tvísýnt um örlög byggðarlagsins. Vaxandi flóðbylgja fólks af landsbyggðinni til suðvesturhornsins raskar eðlilegri þróun uppbyggingar þar, veldur þenslu og offjárfestingu og nýting dýrra mannvirkja á landsbyggðinni minnkar að sama skapi. Þetta yfirvofandi ástand sem ég hef verið að lýsa í stöðu fyrirtækja og búseturöskun í stærri stíl en nokkru sinni fyrr blasir við sem staðreynd innan tíðar ef ríkisstjórnin sýnir engan sveigjanleika.

Þessi framvinda mála á landsbyggðinni til sjávar og sveita er stórhættuleg. Hún drepur niður trú fólks á getu lands okkar til að fæða okkur og klæða. Þegar sú trú dvínar — hve lengi getum við þá heitið þjóð? Því er áhyggjuefni hve þverrandi tengsl almennings eru við þær auðlindir sem við byggjum afkomu okkar á, sjávarútveg, iðnað og landbúnað, og hve vitund margra virðist sljó fyrir því hvaðan íslensk þjóð hefur lífsviðurværi sitt. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þá veru að opna íslenskt atvinnulíf fyrir erlendum aðilum og opna bankakerfið fyrir erlendu fjármagni stuðla síður en svo að því að styrkja þessi tengsl. Af þessum orsökum treystum við henni ekki til að fara með völdin.

Þau mál sem heitast brenna á konum eru hin sömu hvar sem er á landinu. Þær búa við launamisrétti sem er með öllu óskiljanlegt og óþolandi í nútímaþjóðfélagi. Þeim þykir illt að una þeirri lélegu aðstöðu sem börnum þeirra er búin til náms og þroska og þeim svíður sú lítilsvirðing sem hefðbundnum störfum þeirra er sýnd.

Í gegnum aldirnar hafa konur búið við það að vera hvergi til kvaddar þar sem ákvarðanir eru teknar sem varða lönd og lýði, enda sjaldnast beinir þátttakendur í atvinnulífinu. Nú er sú staða gjörbreytt. En hverjir taka ákvarðanir? Hverjir ráða forgangi verkefna? Hverjir stjórna landinu? Eitt er víst að á þeim vettvangi eru ekki konur í réttu hlutfalli við þá ábyrgð sem á þeim hvílir í daglegri önn þjóðfélagsins þar sem meiri hluti kvenna hefur tvöföldum skyldum að gegna, heima og heiman. Þetta er enn ein orsök þess að við kvennalistakonur treystum ekki þessari ríkisstjórn.