28.04.1988
Sameinað þing: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6993 í B-deild Alþingistíðinda. (4932)
505. mál, vantraust á ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar
Halldór Ásgrímsson:
Virðulegur forseti. Góðir áheyrendur. Það steðja ýmis vandamál að okkar þjóðfélagi. Stjórnarandstaðan bregst þannig við að flytja vantraust á ríkisstjórnina. Hún hefur flutt á litlu blaði, saklausu blaði að því er virðist, till. til þál. um vantraust á ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar. En hvað felst í þessari till.? Það sem felst í henni er það að stjórnarandstaðan vill að þessi ríkisstjórn fari frá þegar þessi vandamál blasa við og væntanlega reiðubúin til að taka við eða a.m.k. að hluta til.
En hver er svo þessi stjórnarandstaða? Hún er á þessari till. leidd af Alþb. sem áður hefur staðið frammi fyrir vandamálum. Ég minni alþýðubandalagsmenn á það þegar þeir stóðu ásamt okkur frammi fyrir vandamálum 1982 og 1983. Þá gátu þeir ekki tekið á þeim. Hefur eitthvað breyst í þessu Alþb.? Ég held ekki. Síðastliðið vor vildu þeir ekki taka þátt í myndun ríkisstjórnar og lýstu því nánast yfir. Nú segir fyrrv. formaður flokksins að hann vilji sjá framan í þá húmorista sem halda því fram að ástandið í flokknum hafi batnað. Og hvað rekur svo þessa lest? Kvennalistinn, Borgarafl. og einn af fyrrv. þingmönnum Framsfl. sem hryggir mig að sjá í þessari lest.
Ég held að það sé alveg ljóst að þessi lest getur ekkert lagt til málanna. Það hafa þeir sýnt á þeim vetri sem er að líða. Ríkisstjórnin hefur verið að taka á margvíslegum málum. Ég nefni það að hér hefur verið samþykkt á Alþingi fiskveiðistefna sem góð samstaða var um í þjóðfélaginu. Hvað gerði stjórnarandstaðan í því máli? Hún var á móti því og reyndi að koma í veg fyrir samþykkt þess. Ríkisstjórnin lagði til að fjárlög yrðu hallalaus. Hvað gerði stjórnarandstaðan? Lagði til að verulegur halli yrði á fjármálum ríkisins. Ríkisstjórnin hefur líka komið að kjarasamningum og hjálpað til við að þeir gætu orðið. Stjórnarandstaðan hefur hvatt til þess að menn reyndu að koma í veg fyrir að kjarasamningar væru samþykktir.
Hitt er ljóst að ýmislegt er fram undan og mörg erfið verkefni eru nú á dagskrá sem ríkisstjórnin þarf að takast á við. En ég held að við höfum heyrt það í þessum umræðum að til stjórnarandstöðunnar verður lítið að sækja.
Það sem einkum mun verða á dagskrá ríkisstjórnarinnar á næstunni eru vandamál útflutningsatvinnuveganna. Þar hefur margt breyst. Það hafa orðið stórstígar framfarir í sjávarútvegi á undanförnum árum og það eru þessar framfarir sem hafa getað staðið undir þeirri miklu kaupmáttaraukningu sem hefur orðið í þjóðfélaginu. Og hver er þessi kaupmáttaraukning? Frá árinu 1984 til 1987 hefur kaupmáttur kauptaxta hækkað um 31% og á sama tíma hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna hækkað um tæplega 43%. Ég býst ekki við því að slíkt hafi gerst í nokkru öðru landi.
Auðvitað hafa skilyrði á margan hátt verið hagstæð og við höfum notið þessara skilyrða. En við höfum jafnframt gengið í gegnum breytingaskeið og sjávarútvegurinn hefur þurft að bera margt, m.a. með margvíslegri hagræðingu. Nú verður hann fyrir áföllum. Verðfall verður á afurðum og kostnaðarhækkanir hafa orðið svo miklar að hann getur ekki borið þær.
Það eru ýmsir sem halda því fram að það sé hægt að leysa þessi mál með enn meiri hagræðingu í sjávarútveginum. Ég vara við slíkum hugmyndum. Það hefur átt sér stað þar mikil breyting og ég held að þess sé ekki að vænta að sjávarútvegurinn geti staðið að því að hagræða svo í rekstri sínum að hann geti með þeim hætti tekið á sig þessi áföll.
Margt annað er að sjálfsögðu að í okkar þjóðfélagi sem við verðum að takast á við og ríkisstjórnin hefur einsett sér að gera það og mun taka næstu vikur til þess verkefnis. Ég vænti þess að stjórnarandstaðan reyni að standa með þessari ríkisstjórn í þeim aðgerðum, því þær eru nauðsynlegar þjóðinni, og ætti að nota tíma sinn í eitthvað annað en að standa fyrir slíkum umræðum eins og hér hafa farið fram í kvöld. Ef það verður hins vegar til þess að stjórnarandstaðan fái traust á sjálfri sér með slíkum umræðum er það af hinu góða.
Valdið er dreift í okkar þjóðfélagi og það eru ýmsir sem koma að málum. Það eru ekki aðeins ríkisstjórn og Alþingi. Það eru launþegar, launþegahreyfingin, vinnuveitendur, sveitarfélög og í reynd hefur sem betur fer hver einasti þegn í okkar þjóðfélagi mikið vald. Það þarf hver og einn að taka á þeim málum sem nú eru fram undan og ríkisstjórnin væntir þess að geta átt sem besta samstöðu með almenningi í landinu til að vel megi fara.
Það er vor í lofti. Það er að vísu ekki vor í lofti hjá stjórnarandstöðunni. Þar er allt svart. En það er vor í lofti yfir okkar landi og ég vænti þess að þetta vor muni gefa okkur kraft til að taka á vandasömum verkefnum. Ég vænti þess að þetta vor gefi okkur þá samstöðu sem við þurfum á að halda. Við vildum gjarnan hafa góða samstöðu um það með stjórnarandstöðunni, en þessi umræða virðist ætla að leiða til þeirrar niðurstöðu að svo verði ekki. En þrátt fyrir allt munum við ekki leysa þessi vandamál nema í sameiningu og ég er þess fullviss að við getum það því að þrátt fyrir allt erum við Íslendingar rík þjóð sem eigum miklar auðlindir og höfum alla burði til að takast á við vandamál okkar og leysa þau með farsælum hætti.