28.04.1988
Sameinað þing: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6995 í B-deild Alþingistíðinda. (4933)
505. mál, vantraust á ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Fyrir nokkrum dögum mátti lesa blaðaviðtal, sem oft hefur raunar verið vitnað til í kvöld, við einn af „alvöru“ stjórnmálamönnum þessa lands. Sá talaði reyndar hér næst á undan mér. Þar er m.a. haft eftir honum orðrétt: „Ég eiginlega undrast það hvað Kvennalistinn kemst lengi upp með að vera í umræðunni án þess að tala um stjórnmál eins og við flestir hverjir, sem höfum starfað í þessu, lítum á þau.“
Skilningsleysið drýpur af hverju orði, að ekki sé nú talað um fullvissu þessa manns að hafa það sjálfur á hreinu um hvað stjórnmál snúast. Skyldi nú ekki skýringa á lækkandi gengi gömlu flokkanna að leita í því hvernig menn skilgreina stjórnmál á þeim bæjum?
Einhvern tíma var sett fram sú skilgreining að stjórnmál væru fólgin í því að leysa vanda með því að búa til annan vanda. Sé þetta rétt verður að líta svo á að núverandi ríkisstjórn viti svo sannarlega um hvað stjórnmál snúast. Hún hefur verið fádæma lánlaus á sínum skamma ferli. Skopleg upphlaup, nöldur og nagg einkenna samskipti ráðherra og stjórnarsinna og taka upp mestallan tíma þeirra og orku. Vinnubrögðin eru slík að það heyrir til undantekninga ef stjfrv. eru vandlega unnin og jafnvel ágæt mál sem horfa til heilla fá ekki þann heimanmund að þau nái tilætluðum árangri. Slíkur er flumbrugangurinn og oftar en ekki kemur í ljós að tæpast er hægt að tala um stjfrv. því einn er móðgaður, annar dregur lappirnar og þriðji þvær hendur sínar.
Ágreiningur um lausnir veldur því að ekki er tekið á vandamálum fyrr en í algjört óefni er komið. Mánuðum saman horfa menn á gengisstefnu og eyðslustefnu grafa undan þeim atvinnugreinum sem þjóðfélagið hvílir á. Ráðstafanir í ríkisfjármálum eru gerðar annað veifið og felast helst í því að taka aftur fyrri ráðstafanir. Vandinn vex úr öllum viðráðanlegum böndum og oftar en ekki koma aðgerðir harðast niður á þeim sem bera þyngstar byrðar fyrir. Um það geta stjórnarflokkarnir helst sameinast í sundurþykkju sinni.
Láglaunastefnan er orðin trúaratriði og ríkisstjórnin er haldin þeim misskilningi að það megi bæta kjör lágtekjufólks með því að taka af því aukna skatta og skila síðan broti af þeim til baka í bótaformi. Slík eru vinnubrögð og úrræði þeirra sem telja sig eina vita um hvað stjórnmál snúast.
Við höfum nú hlustað á ræður stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga til skiptis í drjúga stund og vafalaust finnst mörgum hlustandanum hann litlu eða jafnvel engu nær. Fullyrðingarnar eru á sterku nótunum. Flest er sett fram í svörtu og hvítu. Ásakanir ganga á víxl. Stjórnarandstæðingar saka ríkisstjórnina um óstjórn og úrræðaleysi. Stjórnarsinnar saka okkur um ábyrgðarleysi. Ásökunum um ábyrgðarleysi, svartagallsraus og kjarkleysi vísa ég beint heim til föðurtúna. Kvennalistakonur leggja metnað sinn í það að taka málefnalega afstöðu í öllum málum, ekki bara sumum málum eins og Valgerður Sverrisdóttir sagði hér áðan, og vinna að þeim af fullum heilindum. Við höfum ekki skotið okkur undan því að benda á leiðir til tekjuöflunar eða taka afstöðu í óþægilegum málum. Við höfum stutt af heilum hug mál sem við höfum talið til heilla án tillits til þess hvaðan þau ber að. Þeir sem halda öðru fram hafa annaðhvort hreinlega ekki fylgst með þingstörfum eða þeir láta sér það sæma að ástunda óheiðarlegan málflutning.
Rangtúlkun Karls Steinars Guðnasonar á afstöðu Kvennalistans til kaupleigufrv. vísa ég eindregið á bug og harma svo óheiðarlegan málflutning sem ég átti ekki von á úr því horni. Afstaða okkar er ábyrg. Við styðjum þessar hugmyndir, en við lögðum til að þær yrðu felldar inn í þá heildarendurskoðun húsnæðismála sem boðuð hefur verið á næstum vikum, ekki síst þar sem fjárhagsgrundvöllur þessa nýja kerfis er óljós og ótryggur.
Túlkun hæstv. menntmrh. á málflutningi kvennalistakvenna gæti orðið íhugunarefni fræðimanna, en vafalaust mætti finna hliðstæður í dæmisögum Esóps ef ég hefði þær við höndina. Þar er víða fjallað um öfundina ef ég man rétt. En refurinn er vinsæl persóna í dæmisögum og á einum stað segir af slíkri skepnu sem þótti berin súr.
Verri var samlíkingin sem menntmrh. sótti til Esóps gamla um froskinn og refinn sem átti að tákna stjórnarandstöðuna og stjórnarliðið. Af því tilefni vil ég segja þetta:
Þótt meira sé sagt frá uppruna frosksins en menntun í dæmisögunni, þá dæmir auga refsins hæfni hans einungis eftir útliti. Það er sagt að fegurðin búi í auga sjáandans. En hæstv. menntmrh. Saga Esóps sagði ekki aðeins frá froski sem var nokkuð drjúgur með sig. Hún sagði líka frá grunnhyggnum, fordómafullum ref.
Stjórnarandstaðan hefur engin úrræði, er sagt, og oft er sú nóta slegin alveg sérstaklega að Kvennalistinn sé ábyrgðarlaus, gott ef ekki algjörlega stikkfrí, reki bara eins konar þykjustupólitík og velti sér upp úr mjúku málunum til þess að afla sér vinsælda. En hver eru svo þessi svokölluðu mjúku mál og hvers vegna afla þau okkur vinsælda? Þau varða okkar daglega líf. Þau varða aðbúnað barnanna okkar. Þau varða möguleika okkar til að lifa farsælu fjölskyldulífi, þau varða jafnrétti til orðs og æðis, húsnæðis, fæðis og klæða, menntunar og mannsæmandi launa.
Þau varða verndun umhverfis og virðingu fyrir lífinu. Um þetta eiga stjórnmál að snúast að dómi mikils hluta þjóðarinnar. Og þeir sem þannig hugsa eru ekki tilbúnir að bíða eftir því að röðin komi að þessum málum þangað til búið er að leysa efnahagsvandann og vanda atvinnuveganna. Þeir vita nefnilega að slíkur vandi hefur alltaf verið til staðar í breytilegu formi og hann verður alltaf til staðar. Þeir vita líka að hluti af lausn þess vanda er fólginn í breyttri forgangsröðun og áherslu á málefni sem standa fólki næst, mjúku málin, vegna þess að helsta auðlind okkar er fólkið sjálft og heilbrigður, vel upplýstur og ánægður einstaklingur er þjóðfélaginu meira virði en sjúkur, fákunnandi og vansæll. Um þetta eiga stjórnmál að snúast og þetta er sú uppskrift sem húsmæðurnar í eldhúsi Kvennalistans baka eftir. En það er ekki nóg að hafa góða uppskrift. Það þarf að kunna handtökin við baksturinn. Annars verður kakan ónýt. Þetta er því ekki síður spurning um vinnubrögð og slík vinnubrögð virðast ekki tiltæk stjórnmálamönnum af gamla skólanum.
Herra forseti. Við munum nú innan tíðar greiða atkvæði um þá vantrauststillögu sem hér er til umræðu. Stjórnarliðar munu vafalaust fella hana og ganga héðan hreyknir. Þeir telja sig hafa úrræðin sem duga við hverjum vanda. Meinið er hins vegar það að úrræði á úrræði ofan eru einskis virði ef fólkið treystir ekki þeim sem eiga að framkvæma þau. Og þannig er nú komið fyrir hæstvirtri ríkisstjórn. Fólkið treystir henni ekki til að ráða fyrir sameiginlegu búi okkar allra. Það biður um ný efnistök, ný vinnubrögð.
Það eru tímamót í íslenskum stjórnmálum. Hugarfarsbreyting hefur orðið. Fólk hafnar í æ ríkara mæli firringu og sambandsleysi hefðbundinna stjórnmálaforingja. Það hafnar spillingu og samtryggingu. Það hafnar valdbeitingu og hroka.
Hv. þm. Guðni Ágústsson lýsti eftir forustukonum Kvennalistans. Það virðist hafa farið fram hjá honum að Kvennalistinn er grasrótarhreyfing sem nýtur nú samkvæmt skoðanakönnunum fylgis um 30% kjósenda þrátt fyrir formannsleysið, en kannski einnig vegna þess. Þetta fólk spyr ekki: Hvað er í pokanum? eins og Halldór Blöndal. Hann þyrfti að opna eigin skjóðu og kanna hvað þar er að finna sem fólk er að hafna í æ ríkara mæli.
Stjórnmálaforingjar gamla tímans grafa sér sína eigin gröf í grunnum ráðhúsbragga og íþróttamonthalla. Þeir hlusta ekki á fólkið og fólkið nennir ekki lengur að hlusta á þá. Þessi ríkisstjórn er ekki í sambandi. Þess vegna á hún að fara frá.
Ég þakka þeim sem hlýddu og býð góða nótt.