29.04.1988
Efri deild: 82. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7012 í B-deild Alþingistíðinda. (4955)

466. mál, ferðamál

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Þegar þetta mál var til l. umr. urðu nokkrar umræður. Fyrst og fremst voru þá þingmenn að leita eftir því að skýra málið og gera sér grein fyrir því hvað í því fælist. Við þá umræðu held ég að hafi nokkuð áunnist í því, en þegar málið kom til kasta samgn. voru þar til kallaðir, eins og kom fram hjá hv. frsm., aðilar til að fjalla um málið og þá kom reyndar í ljós að það voru ákveðnir þættir í frv. sem ekki voru betur undirbúnir en svo að beinir aðilar að frv. vissu ekki og höfðu ekki fengið neinar upplýsingar um þær tilætlanir sem í frv. felast fyrr en daginn áður en þeir voru kallaðir til skrafs og ráðagerða hjá nefndinni. Hér á ég við hið almenna starfsfólk ferðaskrifstofunnar. Það hafði ekkert verið fjallað um að það stæði til að hafa eigendaskipti á fyrirtækinu og þar af leiðandi hafði trúnaðarmaður starfsfólks, sem kom til að spjalla við okkur, Anna Haraldsdóttir, tiltölulega litla möguleika á að upplýsa okkur um afstöðu starfsfólks skrifstofunnar. Um þann þátt sem hér var upplýstur, að það gæti alveg eins komið til að Félag starfsfólks ferðaskrifstofunnar yrði eigandi, hafði ekki verið fjallað á neinn máta innan þess félags og mátti jafnvel að ýmsu leyti skilja að það félag væri alls ekki til, hefði reyndar verið vakið upp eða stofnað í sambandi við umræðurnar frá 1985, en þeirri umræðu hafði ekki verið haldið neitt áfram og þar af leiðandi var það félag alveg óviðbúið því að gefa okkur neina umsögn um það hver afstaða þess væri.

Það kom einnig í ljós þegar við spjölluðum við Guðríði Halldórsdóttur, eftirlitsmann með rekstri Edduhótelanna, sem einnig hafði verið forstjóri fyrir Edduhótelum áður en hún tók við eftirlitsmannsstarfinu, að frv. hafði ekkert verið kynnt meðal forustumanna Edduhótelanna eða alls ekki svo að hún vissi.

Í beinu framhaldi af þessum upplýsingum fór nefndin að spjalla um hvort það væri ekki nauðsynlegt að kveða ákveðið á um þann þátt að það hefði fyrst og fremst verið meiningin að selja starfsfólkinu þessa 2/3 hluta fyrirtækisins og þá komu nefndarmenn sér saman um að vera með sína eigin útskýringu á frv. Eins og frsm. nefndarinnar sagði áðan voru það tveir punktar sem eru beinlínis útskýring á framkvæmd laganna eftir að frv. væri orðið að lögum sem nefndin leggur hér fram í nál.

Í fyrsta lagi lítur nefndin svo á að frv. miði að því að eignarráð meiri hluta í hinu nýja hlutafélagi, Ferðaskrifstofu Íslands hf., flytjist til starfsmannanna. Okkur þótti sem sagt ekki að í frv. væri nógu skýrt á kveðið um að hlutirnir væru á þennan veg eða að þetta yrði svona, ekki síst þegar upplýst var að um þetta hafði ekki verið fjallað sem skyldi meðal starfsmannanna sjálfra. Og í framhaldi af þessu, með leyfi forseta:

„Heimildarákvæði frv. verði því aðeins beitt að samkomulag náist við starfsmenn um kaup á hlutafénu.“

Nefndarmenn allir voru sammála um að þetta væri grundvallaratriði til þess að samkomulag væri í nefndinni um að mæla með samþykkt þess.

Og einnig, með leyfi forseta: „Með orðalagi 3. mgr. 1. gr. frv. um „forkaupsrétt starfsmanna“ er að áliti nefndarinnar átt við alla starfsmenn, jafnt fastráðna sem lausráðna, svo sem sumarráðna starfsmenn Edduhótela.“

Ég tel þó að samkvæmt orðanna hljóðan í þessari grein sé heldur lengra gengið en við vorum að tala um. Við vorum að tala um forustufólk, það fólk sem hafði verið í störfum hjá Edduhótelunum svo árum skipti og það væri ekki beinlínis verið að meina það fólk sem hefði kannski verið á sl. sumri sumarfólk hjá Edduhótelum á þessum eða hinum staðnum.

Fulltrúar ráðuneytisins, sem voru viðstaddir umfjöllunina, féllust á þetta og ég lít svo á að ráðherra hafi fallist á þessa skilgreiningu og að þannig verði um hnútana búið þegar farið verður að framkvæma frv. að það verði á þann veg sem um getur í þessum tveimur punktum.

Það var ýmislegt fleira sem kom upp í umræðunum, t.d. um þá tvo þætti sem mætti segja að ferðaskrifstofan hefði haft að vissu leyti einkarétt á. Það er í fyrsta lagi í sambandi við sölu og þjónustu við ríkisfarþeganna. Það kom greinilega fram hjá forstjóra fyrirtækisins að hann taldi það skipta mjög miklu máli að þarna yrði ekki breyting á og það kom fram hjá einhverjum viðmælanda okkar að 1/3 hlutinn, sem áfram héldist í ríkiseign, væri að hans mati trygging fyrir því eða a.m.k. allmikil tilætlun í þá átt að ríkið héldi áfram að skipta við þetta fyrirtæki sitt sem það ætti þennan stóra eignarhlut í. Það væri fróðlegt að heyra hvað ráðherra segði um þennan þátt af því að það skiptir mjög miklu máli ábyggilega um framvindu málsins hvernig á þessum þætti verður haldið.

Um hinn þáttinn sem í framkvæmd hefur verið þannig að þar hefur verið um einkarétt að ræða, þ.e. um rekstur Edduhótelanna eða nýtingu ríkisskólanna, héraðsskólanna og grunnskólanna, sem allir eru meira og minna í höndum ríkisins og undir yfirstjórn menntmrn., vorum við upplýstir um það að þegar væri í gildi eða svo gott sem að fullu frágenginn þriggja ára samningur um nýtingu þeirra hótela sem hefðu verið notuð á undanförnum árum. Í þeim samningum er lokaákvæði um endurnýjun samningsins fyrir ákveðinn tíma þegar hann fellur úr gildi eða forgangsendurnýjunarréttur fyrir skrifstofuna.

Það hugsa ég að sé líka mikið atriði að heyra við umræður nú hver sé hugmynd ráðherra um þennan þátt, hvort það sé ekki vilji þeirra ráðherra sem nú fara með þessi mál, þ.e. hæstv. menntmrh. og samgrh., að þessi háttur verði hafður á áfram. Þetta held ég að hafi verið aðalatriðið sem um var fjallað í nefndinni.

Við fengum reyndar líka til viðtals við okkur fulltrúa frá ferðamálasamtökum landshlutanna og var greinilegt að þau samtök höfðu gert sér einhverjar hugmyndir um að þau gætu orðið eignaraðilar og með því að gerast eignaraðilar að þessu fyrirtæki gætu þau haft áhrif á að ferðaskrifstofan skipulegði í auknum mæli ferðir sinna farþega á fleiri staði en hefur verið gert að undanförnu.

Svo í lokin þetta: Það var nokkur umræða um það við 1. umr. að sjálfsagt væri að breyta þessu ríkisfyrirtæki í einkafyrirtæki eða í hlutafélag og m.a. voru þau rök höfð uppi að það væru hvergi til ríkisferðaskrifstofur nema fyrir austan tjald og það varð nokkur misskilningur á milli okkar þingmanna Vesturlands um þetta mál. Er hv. 3. þm. Vesturl. hér? (Gripið fram í.) Það skiptir ekki máli, forseti. Þetta er ekki það mikill misskilningur að það sé ekki hægt að koma því til þingmannsins og ég geri ekki ráð fyrir því að það fari að skapast deilur á milli okkar um það sem ég ætla að upplýsa hér. En það er að það er ekki þannig að það séu ekki ferðaskrifstofur reknar á vegum ríkisins á fleiri stöðum en fyrir austan tjald, enda mátti ótrúlegt vera að sósíaldemókratarnir á Norðurlöndum hefðu ekki þróað upp ríkisrekstur á þessum vettvangi eins og í ýmsum öðrum greinum eða að þeir hefðu a.m.k. ekki puttana í þessum þætti í sínu þjóðfélagi.

Staðreyndin mun vera sú að jafnvel stærsta ferðaskrifstofa Danmerkur mun vera ríkisfyrirtæki. Þar er rekin stór ferðaskrifstofa á vegum dönsku ríkisjárnbrautanna, ekki aðeins til að sinna farþegum járnbrautanna heldur líka til að sinna alls konar annarri ferðaþjónustu.

Þetta skiptir vitaskuld engu máli í sambandi við umræður okkar um Ferðaskrifstofu ríkisins. Það gæti verið jafnsjálfsagt að gera Ferðaskrifstofu ríkisins að hlutafélagi eins og hér er ætlast til þó að það sé ríkisferðaskrifstofa úti í Danmörku. En það var notað í umræðunni sem rök fyrir því að það ætti að selja að slíkt væri ekki til annars staðar en fyrir austan tjald. Ég hafði vissan grun um að sósíaldemókratarnir, vinir okkar, á Norðurlöndum hefðu verið með svona rekstur þó ég gæti ekki fullyrt það þá. En við fengum sem sagt upplýsingar um það í nefndinni að það væri á þann veginn og að sósíaldemókratarnir á Norðurlöndum væru ekki þeirrar skoðunar að það væri algert bannfyrirbæri að ferðaskrifstofa væri rekin á vegum ríkisins.