09.11.1987
Sameinað þing: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (497)
77. mál, launakostnaður við mötuneyti framhaldsskólanna
Flm. (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. á þskj. 80 um launakostnað við mötuneyti framhaldsskólanema. Flm. tillögunnar auk mín eru Málmfríður Sigurðardóttir, Margrét Frímannsdóttir og Ingi Björn Albertsson. Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera nauðsynlegar ráðstafanir í því skyni að launakostnaður starfsfólks í mötuneytum framhaldsskólanna verði greiddur úr ríkissjóði.“
Með stofnun nýrra framhaldsskóla víðs vegar um landið á undanförnum árum hafa aðstæður til náms batnað til muna. Enn þá vantar þó nokkuð á að möguleikar fólks til náms eftir búsetu og efnahag séu jafnir. Hollir lifnaðarhættir eru ein af undirstöðum daglegrar vellíðunar, góðrar heilsu og þar með árangurs í starfi. Ein af frumþörfum hvers og eins er að nærast reglulega. Á vinnustöðum fullorðinna þykir sjálfsagt að hafa mötuneyti þar sem boðið er upp á heitar máltíðir. En það er ekki síður mikilvægt fyrir nemendur en annað vinnandi fólk að geta neytt matar á vinnustað sínum.
Vinnudagur framhaldsskólanema er æðilangur og þeir sem sækja skóla langt að eiga reyndar ekki annarra kosta völ en að borða í skólanum hvernig svo sem aðstæður kunna að vera, en þær eru mjög mismunandi í hinum ýmsu skólum og bera reyndar vott um visst skilningsleysi á þörf nemenda. Sem dæmi langar mig að nefna einn skóla sem ég þekki til í, en það er Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi sem er í raun orðinn ellefu ára gömul stofnun og þjónar öllu Vesturlandi, en hann sækja einnig nemendur úr öðrum landshlutum. Á þessari önn eru rúmlega 500 nemendur við skólann og þar af rúmlega 200 utanbæjarnemendur. Núverandi mötuneyti skólans tekur 30 nemendur.
Ef svo fer sem horfir í fjárlagafrv. er ekki fyrirsjáanlegt að á þessu verði breyting, en vonandi verður það eitt af því sem breytist í þessu fjárlagafrv. í meðförum þingsins.
Við flesta skólana eru einhvers konar mötuneyti eða vísir að þeim þar sem hægt er að fá heitar máltíðir eða brauð og mjólkurmat á matmálstímum, en við suma skólana eru einungis skyndibitar eða sælgæti á boðstólum.
Fyrr á tímum bjuggu Íslendingar oft við skort á fæðu og þjáðust af ýmsum kvillum þess vegna. Nú höfum við meira en við getum í okkur látið, en reyndin er sú að til eru þeir einstaklingar sem þjást af næringarskorti.
Í grein sinni „Mataræði námsfólks fyrr og nú“ í Morgunblaðinu 4. nóv. segir Margrét Þorvaldsdóttir m.a., með leyfi forseta:
„Úr góðri og fjölbreyttri fæðu koma efni sem sjá um eðlilega endurnýjun og viðhald fruma í vefjum. Stuðlar hún þannig að heilbrigði einstaklingsins. Slæm fæða og einhæf getur aftur á móti raskað öllu eðlilegu efnajafnvægi í líkamanum og valdið honum skaða. Viðurkennt er að mannslíkaminn er viðkvæmastur fyrir skakkaföllum vegna ónógrar og rangrar fæðu á vaxtarskeiðinu.“
Það hlýtur því að vera afar mikilvægt að gera það að eðliegum og sjálfsögðum hlut að allir nemendur geti neytt góðrar fæðu í skólanum.
Fram til þessa hefur sá háttur verið hafður á við mötuneyti framhaldsskólanna að nemendur sjálfir hafa borið allan launakostnað vegna þeirra. Miðað við verðlag og laun má ætla að greiða þurfi a.m.k. 90 þús. með hverjum framhaldsskólanemanda í fullu fæði þetta skólaárið. Þar af er áætlað að launakostnaðurinn sé milli 30 og 40%. Þessi gífurlegi kostnaður er þungur baggi á þeim fjölskyldum sem þurfa að senda börn sín í heimavist, ekki síst þegar við bætist hinn hái bókakostnaður sem námi í framhaldsskóla fylgir, svo og húsaleiga. Fyrir marga er þetta svo þungur baggi að margir unglingar eiga þess vart kost að afla sér framhaldsmenntunar. Hér er því um að ræða mikið hagsmunamál nemenda og foreldra, ekki síst þeirra sem í dreifbýli búa.
Síbreytilegar og æ flóknari aðstæður í þjóðfélagi okkar krefjast þess að fólk verður í sífellt ríkara mæli að auka við menntun sína að grunnskólaprófi loknu. Það er því ein af skyldum samfélagsins að gera fólki slíkt kleift án tillits til efnahags eða búsetu. Algengt er og þykir sjálfsagt að ríkið greiði launakostnað í mötuneytum starfsmanna sinna. Fullorðnir telja sig ekki hafa úthald án þess að fá næringu á matmálstímum.
Í Iðnskólanum í Reykjavík hagar svo til að nemendur og kennarar borða í sama mötuneytinu nákvæmlega sama matinn. Ríkið greiðir launakostnað í mötuneyti kennara þannig að fyrir fiskmáltíð greiðir kennarinn 125 kr. en nemandinn 175 kr. Mismunur er þar 50 kr. á máltíð. En fyrir góða kjötmáltíð greiðir kennarinn 175 kr. en nemandinn 250 kr. Þar er mismunurinn 75 kr. Það er ljóst að pyngjur allmargra nemenda eru það léttar að þeir fara ekki inn í mötuneytið á hverjum degi. Þeir fara í sjoppuna og kaupa eitthvað sem í bili virðist ódýrara en er að sjálfsögðu mun óhollara og hefur lítið næringargildi.
Á undanförnum árum hafa augu fólks opnast fyrir gildi góðs mataræðis fyrir heilsufar fólks og heilbrigðisyfirvöld boða nú aukna áherslu á forvarnir, ekki síst með tilliti til bættrar neyslu- og manneldisstefnu. Mikilvægur liður í slíkum áætlunum hlýtur því að vera að ala uppvaxandi kynslóð upp við heilbrigða lífshætti.
Með lögum um ráðstafanir til jöfnunar á námskostnaði, sem samþykkt voru á Alþingi 1972, var í raun viðurkenndur aðstöðumunur nemenda í dreifbýli til náms gagnvart nemendum í þéttbýli, en sá dreifbýlisstyrkur, sem úthlutað er, er aðeins örlítið brot af þeim kostnaði sem nemendur úr dreifbýli þurfa að bera.
Sú till. sem hér er fram borin er brýnt hagsmunamál allra framhaldsskólanemenda, ekki síst nemenda í dreifbýli og fjölskyldna þeirra. Sá launakostnaður sem nemendur hafa hingað til þurft að bera er stór hluti af tekjum hvers heimilis en fyrir heildina hlýtur hann að teljast léttvægur.
Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til félmn.