29.04.1988
Neðri deild: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7050 í B-deild Alþingistíðinda. (5027)

301. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Kristín Einarsdóttir:

Herra forseti. Kvennalistinn lagði til við 2. umr. að kaupleigufrv. yrði vísað til ríkisstjórnarinnar og það tekið með í þeirri heildarendurskoðun á húsnæðislöggjöfinni sem boðuð hefur verið. Þessi brtt. gerir ráð fyrir að ákveðnir mikilvægir þættir þessa frv. séu athugaðir sérstaklega. Einnig gerir hún ráð fyrir að ákveðnu fjármagni sé veitt til þess að verst settu sveitarfélögin geti átt möguleika á að byggja félagslegar kaupleiguíbúðir, en fjármögnunarhlið þessa máls höfum við kvennalistakonur ekki síst gagnrýnt. Í trausti þess að fleiri þættir verði teknir til athugunar við endurskoðun húsnæðislöggjafarinnar og að Kvennalistinn fái aðild að þeirri endurskoðun munum við þingkonur Kvennalistans að samþykktum þessum brtt. greiða frv. atkvæði. Ég segi því já.