29.04.1988
Neðri deild: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7052 í B-deild Alþingistíðinda. (5032)
116. mál, læknalög
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Samkvæmt meginreglu þessara laga verða menn að hafa læknispróf til að úrskurða í sjúkdómum manna. Skv. þessari grein hefur ráðherra heimild til að fara inn á valdsvið lækna því hann fær að veita leyfi og þar með að úrskurða um heilbrigði, að vísu að fenginni umsögn. Mér sýnist þetta stangast illilega á við skottulæknaafgreiðsluna hér á undan og segi því nei.