29.04.1988
Neðri deild: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7054 í B-deild Alþingistíðinda. (5040)
205. mál, lánskjör og ávöxtun sparifjár
Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. sem prentað er á þskj. 920.
„Nefndin hefur athugað frv. á fundum sínum. Þar sem ríkisstjórnin hefur nú skipað nefnd til að gera tillögur um verðtryggingu fjárskuldbindinga undir formennsku Björns Björnssonar bankastjóra leggur nefndin til að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar.“
Undir nál. rita Páll Pétursson, Kjartan Jóhannsson, Geir H. Haarde, Einar Kr. Guðfinnsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Kristín Halldórsdóttir, með fyrirvara, Steingrímur J. Sigfússon.
Þetta er afstaða nefndarinnar.
Ég vil áður en ég fer úr ræðustól taka fram að sjálfur tel ég að þær hugmyndir sem fram koma í frv. séu allrar athygli verðar og eðlilegt að nefnd Björns Björnssonar bankastjóra athugi þær vandlega. Núverandi ástand er óviðunandi. Við framsóknarmenn ákváðum á miðstjórnarfundi um síðustu helgi að leita samkomulags við samstarfsflokka okkar um að afnema lánskjaravísitölu á nýjum fjárskuldbindingum og ekki þarf að hafa orð um vaxtapólitíkina í landinu.