29.04.1988
Neðri deild: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7063 í B-deild Alþingistíðinda. (5045)

205. mál, lánskjör og ávöxtun sparifjár

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Ég vil ekki láta undir höfuð leggjast að svara þeim beinu fyrirspurnum sem til mín var beint. Ég vil í upphafi taka fram að ég styð þá tillögu, sem formaður hv. fjh.- og viðskn. bar hér fram áðan, að vísa þessu máli til ríkisstjórnarinnar.

Eins og kom fram í máli hans hef ég nýlega skipað nefnd til að endurskoða fyrirkomulag verðtryggingar fjárskuldbindinga og lánskjaravísitölu. Ég get fullvissað hv. 5. þm. Reykv. um að þessi nefnd er alls ekki skipuð til þess að komast hjá óþægilegum umræðum um þetta mikilvæga mál heldur þvert á móti til þess að gera fordómalausa athugun á því hvernig reynst hafi fyrirkomulag verðtryggingar fjárskuldbindinga frá því að hún var heimiluð árið 1979 og þar til nú, m.a. í ljósi þess frjálsræðis um vaxtaákvarðanir sem upp hefur verið tekið á þessum árum. Nú er það svo að við höfum reynt þessa tilhögun í blíðu og stríðu, í uppgangi og samdrætti í áratug eða því sem næst. Það er því fullkomin ástæða til þess að kanna þetta mál frá öllum hliðum. Það verður líka gert.

Vegna spurningar hv. 4. þm. Norðurl. e. um það hvenær ætlunin sé að þessi nefnd ljúki störfum vil ég svara því að í hennar erindisbréfi er þess óskað að hún ljúki störfum sem fyrst og ekki síðar en 15. júní nk.

Vegna orða sem hv. 4. þm. Norðurl. e. lét falla vil ég taka það fram að ég mun að sjálfsögðu beina því til þessarar nefndar að hún kynni sér umræður á Alþingi um þetta mál og gögn sem hafa komið fram í þinginu og nefndum þess, en það eru reyndar fleiri tillögur en það frv. sem hér er til umræðu. Þetta mál hefur komið fyrir í fyrirspurnum og öðrum þingsályktunum nokkrum sinnum í vetur. Hv. 10. þm. Reykn. er sennilega að vitna í fyrirspurnarumræður sem urðu hér ekki fyrir nokkrum vikum heldur fyrir nokkrum mánuðum, reyndar í nóvember ef ég man rétt. Í þeim lýsti ég einmitt þeirri skoðun minni að á lánskjaravísitölunni væru ýmsir gallar, hlutir sem vel mætti endurskoða. Síðar hefur líka komið fram þáltill. um að fela ríkisstjórninni að gera athugun á því sem kallað er valfrelsi um verðtryggingar fjárskuldbindinga. Allt þetta efni og umræðurnar verður nefndinni falið að kanna frá öllum hliðum og reyna að komast að niðurstöðu um það hvaða breytingar gætu verið vel til þess fallnar að tryggja farsæla framkvæmd á þessum þætti lánskjara og á lánamarkaði yfirleitt.

Vegna þeirrar umræðu sem hefur orðið um fjárhagsvandræði heimila og fjölskyldna á síðari árum, sem sumir tengja beint við lánskjaravísitöluna — en meðal annarra orða tel ég að það sé alls ekki hægt að leggja það fyrirbæri að jöfnu við nýfrjálshyggjuna þótt hv. 5. þm. Reykv. geri það, a.m.k. efast ég um að talsmenn nýfrjálshyggjunnar mundu vilja við það kannast — þá vil ég segja það skýrt að þar eru vissulega víða mikil vandamál á ferð og þau þarf að reyna að leysa, en ekki með hinum almennu lánskjörum eða skipulagi lánamarkaðarins heldur með því að þróa áfram ráðgjafarþjónustu Húsnæðisstofnunar sem þegar er á fót komin. Líklega er heppilegt að koma á einhverri opinberri skipan við skuldaskil fjölskyldna og heimila sem lent hafa í þrotum. Þetta mál er ég að láta athuga, ekki á vegum viðskrn. heldur á vegum dómsmrn., og vonast til þess að geta komið með tillögur á því sviði á næstu misssirum. Þetta er hið þarfasta mál og ég er að sjálfsögðu sammála hv. 3. þm. Suðurl., hv. 5. þm. Reykv. og öðrum sem hér hafa talað að hjartalagið er mikilvægt í hverju máli, en þótt hjartað sem undir slær sé heitt þurfa menn að halda höfðinu köldu og út á það gengur þetta mál.