29.04.1988
Neðri deild: 84. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7074 í B-deild Alþingistíðinda. (5064)
474. mál, meðferð opinberra mála
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Í frv. því sem hér er til umræðu og dreift hefur verið á þskj. 824 eru lagðar til breytingar á 112. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 74 1974. Þetta frv. hefur verið samþykkt í hv. Ed.
Í 1. gr. frv. er gerð tillaga um þá breytingu að heimilt verði að gera dómsátt í málum sem hafa í för með sér sviptingu ökuréttinda í þrjú ár eða skemmri tíma. Skv. gildandi lögum er þessi heimild bundin við það að svipting ökuréttinda sé eitt ár eða skemmri tími. Ég tel að það sé bæði sökunautum og dómskerfinu í hag að þessi mál fái eins greiða meðferð og kostur er. Það byggist á þeirri almennu skoðun að refsing sem kemur í sem beinustu framhaldi af brotinu sé líklegri til að hafa tilætluð áhrif en þegar langur tími líður frá afbroti til viðurlaga eða niðurstöðu í máli af þessu tagi.
Á undanförnum árum hafa borist á ári hverju til fullnustu 450–600 sektardómar og þótt það hafi enn ekki verið athugað sérstaklega tel ég ekki fjarri lagi að ætla að um 300 af þessum 450–600 sektardómum hafi verið fyrir ítrekaðan ölvunarakstur. Fyrir dómskerfið og dómþola hefði það umtalsverða hagræðingu í för með sér að heimilt verði að ljúka þessum málum með dómsátt.
2. gr. frv. fjallar um annað mál sem tengist líka umferðarlagabrotum en reyndar einnig öðrum brotum. Í þeirri grein frv. er lagt til að fjárhæðir í 112. gr. um meðferð opinberra mála verði hækkaðar, en þar er um að ræða sektarheimildir lögreglustjóra og lögreglumanna og heimild lögreglustjóra til að ákveða eignaupptöku vegna brota sem sektarheimild hans nær til svo og heimild dómara til að ákveða eignaupptöku ef brot er skýlaust sannað en sökunautur finnst ekki eða er ókunnugur.
Fjárhæðir þessar hafa staðið óbreyttar frá árinu 1982. Þessar sektar- og upptökuheimildir hafa gefið góða raun til þessa og létt verulega álagi af dómstólunum, en til þess að sektirnar geri gagn þurfa þær auðvitað að fylgja verðlagsþróun og í greininni sem hér er gerð tillaga um hafa þessar fjárhæðir verið hækkaðar til samræmis við verðlagsþróun.
Hæstv. forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn. þessarar deildar.