29.04.1988
Neðri deild: 84. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7083 í B-deild Alþingistíðinda. (5079)

476. mál, útvarpslög

Flm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég flyt á þskj. 826 frv. til laga um breytingu á útvarpslögum. Í þessu frv. er Ríkisútvarpið skyldað til þess að koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar og svæðisútvarps í öllum kjördæmum landsins utan höfuðborgarsvæðisins eigi síðar en á næsta ári.

Nú er það svo að fastir starfsmenn Ríkisútvarpsins eru á þremur stöðum utan höfuðborgarinnar. Á Akureyri munu vera níu fastir starfsmenn, á Egilsstöðum tveir og á Ísafirði einn. Svæðisútvarp er nú þegar rekið á Akureyri og Egilsstöðum, en þó aðeins tvo daga í viku fyrir austan.

Í núgildandi útvarpslögum eru einmitt ákvæði þess efnis að Ríkisútvarpið skuli, eins og segir í 6. mgr. 16. gr., stefna að því að koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar og hljóðvarps í öllum kjördæmum landsins. Núna, tæpum þremur árum eftir að þessi lög voru sett, er sem sagt búið að framkvæma þetta eða a.m.k. vísir að þessu í tveimur kjördæmum og kannski örlítill vísir í því þriðja, þ.e. Vestfjörðunum, en þar hafa engar útsendingar hafist enn þá, en í fjórum kjördæmum hefur engin hreyfing verið á þessu máli enn og þó vantar ekki að mikill áhugi er á því víða um land að ákvæði útvarpslaga nái fram að ganga. Með þessu frv. er Ríkisútvarpinu einfaldlega lögð sú skylda á herðar að koma þessu stefnumáli í höfn ekki síðar en á næsta ári í stað þess að nú er þetta einungis stefnuyfirlýsing sem ekki er dagsett í lögunum.

Ég vil taka það fram sérstaklega að þessi starfsemi, sem hér er gerð tillaga um að verði skyldustarfsemi Ríkisútvarpsins, er hvorki sérlega dýr í stofnkostnaði eða rekstri. Það má mikið vera ef þessi starfsemi getur ekki hreinlega staðið undir sér. Staðreyndin er sú að staðbundnar auglýsingar á hóflegu verði eru mjög eftirsóttar úti um landið. Það er svo margt sem ekki á endilega erindi til allra landsmanna heldur á fyrst og fremst erindi til viðkomandi landshluta. Ég t.d. segi það fyrir mig að ef ég þarf að auglýsa fundi á fimm stöðum í mínu kjördæmi um eina helgi mundi ég ekki hafa neina sérstaka ástæðu til að auglýsa það í Ríkisútvarpinu ef ég ætti þess kost að auglýsa það í útvarpi kjördæmisins sem ég ætti von á að væri hlustað á kannski af flestum íbúum kjördæmisins, kannski ein klukkustund á hverjum degi.

Sama gildir um fjöldamargar aðrar tilkynningar og erindi sem eiga fyrst og fremst að ná hlustum íbúa á afmörkuðu svæði eða þá umræður sem varða hagsmunamál héraða, samvinnu byggða á ýmsum sviðum. Ég held sem sagt að klukkustundar reglubundin útsending svæðisútvarps í hverju kjördæmi inni í fastri dagskrá Ríkisútvarpsins dragi til sín athygli fólks á viðkomandi svæði og það yrði auðveldara að ná eyrum þess með tilkynningar og umræður þegar um væri að ræða efni sem sérstaklega varðaði það svæði. Þannig yrði útvarpsrekstur af þessu tagi nokkuð hliðstæður og útgáfa á héraðsblaði sem auðvitað er nauðsynlegt á hverju landsvæði og það reyndar fleiri en eitt og hefur þau áhrif að efla félagslíf og styrkja búsetu á viðkomandi svæði.

Herra forseti. Ég hef ekki ástæðu til að rökstyðja frv. öllu frekar. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til hv. menntmn.