30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7097 í B-deild Alþingistíðinda. (5101)

153. mál, lagning vegar með suðurströnd Reykjanesskaga

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Ég fagna því að till. sem þessi skuli fá þinglega afgreiðslu og tel að meðferð hv. nefndar á henni hafi verið réttlát, en ég harma að þegar verið er að fjalla um mál af þessu tagi og að vissu leyti verið að opna leiðir til að koma nýjum vegaleiðum til umræðu og umfjöllunar að hæstv. samgrh. skuli ekki vera viðstaddur. Við hv. þm. erum kallaðir til starfa á laugardagsmorgni, sem sjálfsagt er, að ósk ríkisstjórnarinnar að ég geri ráð fyrir, en hér er verið að fjalla um málefni sem mér finnst vera þess eðlis að það sé fráleitt, og ekki síst þar sem hæstv. ráðherra er þingmaður þess kjördæmis sem þessi vegur er í, að ráðherrar sýni okkur venjulegum þingmönnum ekki þá virðingu að vera viðstaddir þegar verið er að fjalla um mál sem snerta beint þeirra ráðuneyti. Mér sýnist að dagskráin sem við höfum fengið á borðin sé einmitt á þann veg að eðlilegt sé að hæstv. samgrh. væri hér. (HBl: Enda hafa ráðherrar ekki annað þarfara að gera en hlusta á þingmenn.) Enda, segir einn af hv. stjórnarliðum, hafi ráðherrar ekki annað þarfara að gera, og það geri ég nú ráð fyrir að sé alveg rétt, að þeir hafi ekki annað þarfara að gera og það sé skylda þeirra að fylgjast með umræðum hér á Alþingi, a.m.k. um þau málefni sem falla undir þeirra ráðuneyti. Jafnan er hv. þm. Halldór Blöndal réttsýnn og bendir á réttar leiðir og skyldur manna.

Ég beini því til virðulegs forseta að . . . (SvH: . . . ná í manninn. ) Já, það er eðlilegt að óska eftir því að gerðar verði ráðstafanir til þess að hæstv. ráðherra verði hér viðstaddur og þetta mál verði ekki tekið út af dagskrá fyrr en við heyrum afstöðu hans til þessa.