30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7103 í B-deild Alþingistíðinda. (5107)
394. mál, lækkun raforkukostnaðar í gróðurhúsum
Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég kem í ræðustól til að lýsa stuðningi mínum við þá till. til þál. sem hv. 4. þm. Suðurl. Margrét Frímannsdóttir flytur. Það má kannski segja að ég þurfi ekki miklu að bæta við hennar ræðu hér. Hún gerði svo ítarlega grein fyrir stöðu þessarar framleiðslugreinar eins og hún horfir við í dag.
Eins og kom fram hjá henni er hér um að ræða þýðingarmikið hagsmunamál fyrir þessa framleiðslugrein. Ylrækt hér á landi ætti að hafa góð skilyrði til að vera blómleg atvinnugrein, en hún á, eins og kom fram í hennar máli, undir högg að sækja í samkeppni við innflutning vöru sem framleidd er við allt önnur skilyrði en við höfum hér. Hér er oftast um að ræða viðkvæma vöru, eins og fram kom í hennar máli, sem ekki hefur geymsluþol, eins og t.d. afskorin blóm sem eru flutt inn jafnvel frá Suður-Afríku eða Brasilíu. Það geta allir gert sér grein fyrir því að slík vara er framleidd við allt önnur skilyrði og innkaupsverð allt annað en það sem hægt er að bjóða innlenda vöru á hér.
Það mætti nefna hvernig þessari framleiðslugrein er komið t.d. í nágrenni höfuðborgarinnar eins og í Mosfellsbæ. Þar var áður fyrr blómleg ylhúsarækt, mörg gróðurhús sem eru nú ekki lengur til staðar, og þar er þessi atvinnugrein á undanhaldi.
Ég vil því taka undir að það er mikið í húfi að skapa þessari atvinnugrein skilyrði svo að hún geti sem best keppt á samkeppnisgrundvelli við innflutta vöru þó það verði kannski seint hægt að ná, eins og ég nefndi hér áðan, samkeppni við þá vöru sem kemur frá þessum suðrænu löndum. En engu að síður fjallar þessi till. um einn þátt í þeirri aðgerð og þess vegna vildi ég lýsa stuðningi mínum við hana.
Hv. flm. kom inn á einn þátt sem er sá að neytendur vita hvað er verið að bjóða upp á þegar verið er að framleiða íslenskt grænmeti sem, eins og hún réttilega nefndi, er betri og væntanlega ómengaðri vara en sú sem kemur víða annars staðar frá. Í því skyni langar mig að nefna það að eftir Tsjérnóbýl-slysið voru tómatar fluttir út frá Íslandi til Svíþjóðar. Ég býst við að það gerist ekki oft. En það var einmitt af þeim ástæðum og þá vildu Svíar fá meira af tómötum en hægt var að selja og það gerist ekki oft hjá okkur. Mér datt í hug að nefna þetta til þess að taka undir það sem hv. flm. nefndi varðandi þá ómenguðu vöru sem við getum boðið upp á.
En ég ítreka að ég tel að þetta sé einn liður í því að skapa betri skilyrði fyrir þessa framleiðslugrein og því vil ég heils hugar taka undir þessa till.