30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7109 í B-deild Alþingistíðinda. (5117)

133. mál, samræming áætlana á sviði samgöngumála og mannvirkjagerðar

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég hef lengi talið það vissan galla á störfum Alþingis að það skuli ekki starfa samgn. í Sþ. Hins vegar hefur þar starfað samstarfsnefnd um samgöngumál á hverjum vetri stuttan tíma, en það er engin ein nefnd sem fjallar um samgöngumál. Hér hefur umræðan snúist um að þetta væri allt hjá fjvn. Svo er þó ekki að öllu leyti ef það er skoðað því að flugráð grunnvinnur áætlanir um flugmál. Þar sitja þingmenn og sú grunnvinna á sér alls ekki stað í fjvn. Samræmingin sem hér er verið að tala um að sé til staðar kemur mér fyrir sjónir á þann veg að það bendi fátt til þess að Vegagerð ríkisins, Flugmálastjórn og Vita- og hafnamálastjórn hafi það samstarf sín á milli sem æskilegt væri.

Ég vil geta þess hér og nú að auðvitað má alltaf um það deila hversu langt eigi að fara í skipulagðri áætlanagerð og hversu langt fram í tímann sé hægt að standa að slíku, hversu langt sjá menn fram í tímann. En hitt blasir við að t.d. breyting á snjómokstursreglum, sem samgrh. hefur í hendi sér, getur ráðið úrslitum um hvort áætlunarflug á einhvern flugvöll er nauðsynlegt eða ekki, hvort hægt er að fækka þeim og koma öðru skipulagi og betra á. Ég minni á umræður í hafnamálum um Blönduóshöfn þegar mörgum hér í þinginu fannst að aðaláherslan hlyti að verða á bættar samgöngur á landi á milli Skagastrandar og Blönduóss. Ég sé fram á það í dag að með nýjum áföngum í vegaframkvæmdum munu sum hafnarmannvirki og líka flugmannvirki í landinu verða óþörf, heyra sögunni til.

Ég vænti þess að mönnum sé almennt ljóst um hvað er verið að tala í þessari till. og hver er tilgangurinn. Ég sé ekki annað en tilgangurinn sé af hinu góða, hann sé sá að stuðla að því að hver stofnun um sig vaði ekki áfram með fjárfestingar án þess að vita um hvað hinir eru að gera. Í sumum kringumstæðum liggur alveg ljóst fyrir að bættir vegir munu leysa verkefni sem eru óleyst í dag á sviði hafnargerða og sviði uppbyggingar flugvallarmannvirkja.

Með þessu er ég ekki á nokkurn hátt að ráðast á núverandi samgrh. og hann má alls ekki, hæstv. ráðherra, skilja þetta sem nokkra árás á sig því það væri mikill misskilningur. Hann er fyrir stuttu búinn að taka við því starfi sem hér um ræðir og ég hef ekki ástæðu til að ætla annað en hann hafi hugleitt þá hluti sem hér eru til umfjöllunar.

Hins vegar má segja sem svo að með því að vísa þessu til ríkisstjórnarinnar hafi nefndin litið svo á að hún vildi með jákvæðum hætti taka undir till. þó hún treysti sér ekki til að mæla með því að það yrði farið í einhverja stórkostlega áætlun langt fram í tímann, en hún vildi sem sagt mæla með því að þau vinnubrögð yrðu upp tekin í ríkara mæli en áður hefur verið að horfa á alla þessa þætti samtímis.

Ég verð að segja að samræming innan sama geirans í samgöngumálum er sums staðar ekki til staðar. Hver ætlar að verja það t.d. hve margar sérleyfisrútur fara fyrir Hvalfjörð samtímis? Hver ætlar að verja þá vitleysu? Auðvitað þurfum við að ná fram meiri samræmingu á þessu sviði og ég hygg að það sé nær að snúa sér að því verki en að deila hart um hvort þessi till. hafi átt að fara til atvmn. eða fjvn. En að sjálfsögðu er ekki við flm. hennar að sakast um það hvort hún hefur verið látin fara í ranga nefnd. Það hlýtur þá að vera mál sem menn verða að ræða við forseta, en hann hefur leiðbeinandi skyldum að gegna varðandi það atriði.