30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7114 í B-deild Alþingistíðinda. (5121)

Vinnubrögð og fundahald

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hér hljóðs um þingsköp vegna þeirrar umræðu sem hér hefur staðið hátt í klukkutíma og reyndar nálægt því frá því að þingfundur hófst um tíuleytið, um 1., 2. og 3. mál á dagskrá fundarins. Inn í það hefur komið að óskað var eftir að hæstv. samgrh. væri við afgreiðslu þessara mála og hæstv. ráðherra er nú hér í þingsal. Síðan ræða menn vítt og breitt um það hvert málin hefðu átt að fara. Það er rétt og skylt að ræða um þau efni en æskilegast er auðvitað að málin lendi í réttan farveg þegar í upphafi.

En það sem ég vil sérstaklega nefna er að hér er verið að halda þingfund á laugardegi sem ætti ekki að þekkjast hér á Alþingi. Laugardagur er ekki almennur vinnudagur í landinu. Mér finnst það illa farið með tíma þingmanna að vera að kveðja þá til fundar á laugardegi til að koma fram þingmálum þegar ekki er betur staðið að undirbúningi en fram kemur hér í sambandi við þessa umræðu. Mér er það mjög til efs að ég taki þátt í því að mæla hér fyrir málum seinna í dag ef þannig á að halda fram. Ég vil beina því til forustu þingsins að tekið verði til sérstakrar athugunar hvort það eigi að vera að bregða út af því sem venja er í sambandi við þingstörfin, ekki síst með tilliti til þess að þm. vita ekkert hvert stefnir í sambandi við þinghaldið og þinglok.