30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7116 í B-deild Alþingistíðinda. (5124)
Vinnubrögð og fundahald
Sverrir Hermannsson:
Virðulegi forseti. Þetta var orð í tíma talað hjá virðulegum forseta. Flm. tillögu gerir tillögu um málsmeðferð og vísun til nefndar og þingið tekur svo sjálft ákvörðun um hvert málum er vísað. Hann hefur lítið upp úr þeim vindhöggum að vísa því til okkar að við séum með einhverja háværa gagnrýni á virðulegan forseta Sþ. Þó ætla ég ekkert að hukla það að ég álít að hann hefði átt að gæta betra samræmis í þessu falli. En honum er nokkur vorkunn þegar hann stendur í því á hálshnútunum að afgreiða allt þetta tillögurusl, þótt það gangi misjafnlega úr hendi.
En það sem á einkum við er það að við höfum nóg annað að sýsla hér, hættum að taka við ómerkilegum tillögum frá vitlausum nefndum og snúum okkur að öðru þarfara að ræða. Svo auðvitað fellur manni þungt þegar hv. 2. þm. Austurl. ávítar mann fyrir málþóf.