30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7124 í B-deild Alþingistíðinda. (5136)
Nefndafundir á þingfundatíma
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Það sér nú á ýmsu að það er farið að vera dálítið mikið að gera hér á hv. Alþingi, sem m. a. kemur fram í því að þingnefndir eru kallaðar til starfa á sama tíma og hv. Sþ. er hér að störfum.
Ég óska beinlínis eftir úrskurði hæstv. forseta um það hvort þingmenn eigi frekar að mæta á fundum deildanefnda eða annarra nefnda eða sitja hér á fundi í hv. Sþ. Það hefur verið boðað til fundar nú á þessum tíma í landbn. Ed. Ég sé að auk mín er hv. 6. þm. Vesturl. hér staddur líka. Sá hv. þm. hefur því talið eðlilegra að mæta hér á fundi í Sþ. en að mæta á nefndarfundi. Ég hef frétt af því að það sé þegar búið að boða fund kl. 2 í fjh.- og viðskn. Ed. Ég vil þá líka spyrja hæstv. forseta ef þannig heldur áfram að þm. eru kallaðir á nefndarfundi: Á að halda hér fundi áfram í Sþ. þrátt fyrir það?