30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7128 í B-deild Alþingistíðinda. (5146)
398. mál, akstur utan vega
Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka undirtektir hv. þm. Danfríðar Skarphéðinsdóttur við þessa till. Ég vænti þess hins sama og fram kom í hennar orðum að þingið geti fjallað um þetta þó að skammur tími sé væntanlega til þingloka og að sú nefnd sem ég lagði til að fengi tillöguna til meðferðar nái að afgreiða hana til þingsins á nýjan leik. Ég á ekki von á því að hér sé um ágreiningsmál að ræða. Hér er ekki flokkspólitískt mál á ferðinni eins og kemur fram í breiðum stuðningi margra flm. á þessari till. og það skiptir verulegu máli að sú vinna sem þarna er gert ráð fyrir að unnin verði á vegum milliþinganefndar hefjist fyrr en seinna.
Það hefur ekki farið mjög mikið fyrir fregnum af fjórhjólaakstri nú að undanförnu. Ástæðan er vafalaust sú að notkun þessara tækja hefst fyrst og fremst þegar fer að vora. Vísa ég í því sambandi til margra frétta sem voru í sumarbyrjun fyrir ári varðandi akstur fjórhjóla.
Ég vil aðeins nefna það hér að öðru hverju er að finna í blöðum ósmekklega hvatningu til notkunar á tækjum af þessu tagi sem í rauninni hafa ekki lagastoð. Hér hef ég fyrir framan mig sem dæmi auglýsingu úr Morgunblaðinu 26. apríl 1988 frá Fjárfestingarfélaginu undir fyrirsögninni „Sagan um Sigvalda og fjórhjólið“. Ég veit ekki hvort hv. þm. hafa lesið þessa auglýsingu. Hún er einmitt dæmi um furðuleg uppátæki aðila sem standa að slíku. Hér er fjórhjól dregið inn í ávöxtun fjár með mjög einkennilegum hætti. Það er sagan af Sigvalda sem gerð er að uppistöðu sem virðist vera nokkuð vel stæður því að hann gaf konu sinni, sem reyndar starfaði utan heimilis, Toyota Corolla bíl fyrir utan það að hann keypti sjálfum sér Mercedes. Síðan segir síðla í þessum texta eftir að hann hafði reitt af hendi myndarlegar upphæðir fyrir þessi tæki: „Þar af leiðandi átti hann eftir 820 422 kr. sem nægðu honum til að gefa Jónasi dóttursyni sínum splunkunýtt fjórhjól í fermingargjöf.“ Nú gera umferðarlög að vísu ekki ráð fyrir því að unglingar undir 15 ára aldri fái leyfi til að aka þessum tækjum. En hérna er með þessum ósmekklega hætti verið að hvetja til fermingargjafa á þessu leikfangi. Raunar veit ég það að á síðasta ári var nokkuð um það að börn fengju fjórhjól í fermingargjöf. Það kom fram í blöðum og var viðurkennt opinberlega að nokkuð væri um slíkt.
Ég treysti því, virðulegi forseti, að hv. félmn., fái hún málið til meðferðar, sjái sér fært að afgreiða þetta mál til þingsins fyrir þinglok.