30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7131 í B-deild Alþingistíðinda. (5150)

420. mál, útsendingar veðurfregna

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Ég tek undir efni þessarar till., en um leið langar mig til að vekja athygli á þeirri umræðu sem átt hefur sér stað í sambandi við útsendar veðurfregnir, þ.e. á hvaða tíma þær eru sendar út og hvaða tíma veðurfræðingar hafa til að undirbúa útsendingu veðurfregna.

Nú þegar flestir Íslendingar eru orðnir sínir eigin veðurspámenn eftir að hafa fengið veðurspána og veðurútlitið í sjónvarpsmynd inn í stofu til sín, a.m.k. einu sinni á dag, gera menn sér grein fyrir því hvað veðurstaðan umhverfis Ísland getur verið breytileg og hvað nauðsynlegt er að veðurfregnirnar séu sem nákvæmastar og að þær upplýsingar sem veðurfræðingar hafa með höndum séu sem best unnar. Sú umræða hefur verið í gangi að veðurfregnirnar séu sendar of fljótt út miðað við þær upplýsingar sem Veðurstofan fær. Ég er því miður ekki með þau gögn í höndunum sem æskileg væru í sambandi við þessa umræðu. Ég hefði búið mig betur undir umræðuna ef ég hefði gert ráð fyrir því að umræða um þessa till. yrði nú. Páll Bergþórsson veðurfræðingur hefur í ræðu og rituðu máli talið æskilegt að veðurfregnirnar væru sendar út á öðrum tíma en núna er gert og byggt þá skoðun sína á því að með því að færður væri til veðurfregnatíminn mundu veðurfregnirnar sem við fáum daglega vera miklu öruggari.

Ég vildi aðeins grípa tækifærið í umræðu um þessa till. til að benda á þennan þátt og undirstrika hvað veðurfregnirnar, upplýsingar um veður á landinu, eru mikilsverður þáttur í okkar lífi, bæði í sambandi við það að nýta okkar aðstöðu í landinu til landbúnaðar og til sjávar og svo til þess að veðurfregnirnar séu sem öruggastar til þess að forða slysum.