30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7144 í B-deild Alþingistíðinda. (5158)

430. mál, arðgreiðslur viðskiptabanka í ríkiseign

Flm. (Guðmundur H. Garðarsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóðar upplýsingar og tek fram að þegar flm. sömdu þessa þáltill. var þeim ekki kunnugt um tilskrif ráðherra til ríkisbankanna. Hefði ekki verið óeðlilegt að hv. þm. fengju að vita um framkvæmd slíkra mála með þeim hætti sem ráðherra hefur þegar gert á þessum fundi. En sleppum því. Ég ætla ekki að orðlengja um það atriði frekar.

En varðandi skýrslu ráðherra og svör við þessari þáltill., sem margt gott er hægt að segja um, verð ég að taka fram að mér fannst ráðherrann óþarflega nákvæmur í framsetningu sinni um einstök atriði því að þessi þáltill. gefur ekki tilefni til þess.

Svo er það annað atriði sem mér fannst einkar eftirtektarvert. Það var eins og hæstv. ráðherra væri kominn í einhverja sérstaka varnarstöðu út af ríkisbönkunum. Þessi þáltill. var ekki hugsuð þannig að það ætti að efna til illdeilna hér á þingi um ríkisbanka annars vegar eða einkabanka hins vegar heldur er þessi till. fram lögð sem ábending um hvað tillögumenn teldu eðlilegt miðað við tiltekið ár, árið 1987, að stefnt væri að í sambandi við ríkisbankana. Þar með vorum við ekki að fara út í neinn sérstakan samanburð við aðra banka.

Ég vil því segja að mér fannst hæstv. ráðherra draga óþarflega sterkar ályktanir af tilgangi okkar flm., en það er ágætt fyrir þingmenn að gera sér grein fyrir því að þeir þurfa að koma mjög vel undirbúnir þegar þeir mæta hæstv. ráðherrum þessarar ríkisstjórnar, hvort sem þeir eru stuðningsmenn stjórnarinnar eða ekki, og mun ég gera það í framtíðinni þegar ég leyfi mér að beina máli mínu til hæstv. ráðherra þessarar ríkisstjórnar í einstökum málum. Það kom mér töluvert á óvart hvernig ráðherrann tók á þessu máli. Það er eins og hér væri á ferðinni af hálfu flm. einhver gagnrýni á ríkisbankana þó að við leyfðum okkur að hreyfa við þessum málum með þeim hætti sem hér segir.

En að öðru leyti vil ég segja þetta að lokum: Það þarf ekki að vera lögmál að þótt einkabankar greiði ekki jafnháa prósentu og hv. þm. kunna að ætlast til geti ríkisbankarnir ekki eða skuli ekki í framtíðinni greiða hærri arð ef því er að skipta að sjálfsögðu. Ég tek undir það með hæstv. ráðherra að auðvitað verða allar forsendur að vera til staðar til þess að hægt sé að leggja þær skyldur á ríkisbankana að þeir greiði hærri arð en einkabankar.