30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7153 í B-deild Alþingistíðinda. (5167)

450. mál, kynbótastöð fyrir eldislax

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Með tillögu þessari er hreyft þörfu máli og ég get tekið undir það sem hér hefur verið sagt um mikilvægi fiskeldis í okkar þjóðarbúskap horft til framtíðarinnar. Reynslan er að sanna það þessi árin að hér er um að ræða þýðingarmikinn vaxtarbrodd í okkar atvinnulífi sem rennt getur verulegum stoðum undir okkar útflutningstekjur í framtíðinni.

Á hitt hefur skort að staðið væri að undirbúningsstarfi, rannsóknum og tilraunum í þessu efni eins og þyrfti og einnig varðandi samræmd tök í stjórnkerfinu á þessum málum þannig að þeir mörgu aðilar sem eru að spreyta sig í fiskeldi gætu leitað með eðlilegum hætti eftir stuðningi og fyrirgreiðslu af opinberri hálfu þó að ekki séu þarna neinir ölmusumenn á ferð. Þeir hafa þurft að standa undir sínum rekstri og taka þar verulega áhættu margir hverjir.

Ég ætla ekki að ræða þessi mál vítt og breitt vegna þessarar tillögu. Hún snertir einn lið í þessu starfi, þ.e. að kynbæta eldislax, en þó er eðlilegt að á það sé bent hversu brýn þörfin er á því að taka af opinberri hálfu miklu skilmerkilegri þátt í undirbúningsatriðum varðandi fiskeldið, bæði líffræðilegum og vistfræðilegum rannsóknum og einnig stuðningi við hagrænan undirbúning mála.

Það hefur verið reipdráttur, því miður, innan ríkisstjórnar hérlendis frá því að þessi mál fóru á eitthvert skrið. Frá árinu 1982–1983 að telja hafa ráðuneyti sjávarútvegs og landbúnaðar verið að takast á um hvar eigi að vista þennan málaflokk í stjórnkerfinu og ég er ansi smeykur um að þessi reipdráttur, sem enn stendur yfir að ég best veit, geti orðið nokkuð dýrkeyptur fyrir þróun mála og orðið þess valdandi að sitthvað fari úrskeiðis sem ella hefði verið unnt að komast hjá.

Ég flutti till. um fiskeldismálin 1983–1984 á þinginu þá, mælti fyrir henni hér í febrúar 1984, um stefnu varðandi rannsóknir er tengdust fiskeldi og fyrirgreiðslu af opinberri hálfu og fleiri tillögur fylgdu síðan á eftir. Þessari tillögu var á sínum tíma vísað til ríkisstjórnar og nú fyrst má segja, síðustu missiri, er að koma vísir að rannsóknaraðstöðu þar sem er rannsóknarstöð á vegum Hafrannsóknastofnunar við Grindavík til stuðnings við fiskeldi og til undirstöðurannsókna. Hér er að vísu allt of lítið á tekið, þetta er allt of smátt í sniðum og allt of seint á ferðinni í rauninni. Það er því fyllilega ástæða til að hvetja framkvæmdarvaldið til dáða í þessum efnum og fjárveitingavaldið, þar sem er Alþingi, að taka betur undir í þessum málum.

Fyrir þinginu liggur nú í nefnd tillaga um áætlun vegna Hafrannsóknastofnunar, um fjármögnun Hafrannsóknastofnunar til fimm ára. Þar reynir m.a. á fiskeldisþáttinn, að veitt verði meira fjármagni í því skyni. Hér er gert ráð fyrir að ríkisstjórnin sé eignar- og rekstraraðili kynbótastöðvar fyrir eldislax. Ekki teldi ég það út af fyrir sig neitt óeðlilegt. Spurning er hvort þátttakendur í þessum atvinnurekstri ættu að tengjast þessum rekstri með einhverjum hætti, hvort sem það væri eignarlega eða stjórnunarlega. Ég vil ekki á þessu stigi taka afstöðu til þess, en ég teldi út af fyrir sig ekki óeðlilegt að svo væri þar sem þeir eiga mest undir því komið að vel takist til í þessum efnum og tengslin þurfa auðvitað að vera sem best þannig að reynslu sé safnað og þarna séu eðlileg tengsl og sambönd á milli.

En ég vænti þess að þessi till. fái hér góða meðferð og vil hvetja til þess að á þessum málum verði tekið af meiri alvöru en sumu af því sem hefur farið fram hjá framkvæmdarvaldinu í þessum málum og þeirri togstreitu sem ég nefndi að enn stendur yfir og þyrfti að ljúka sem allra fyrst þannig að menn geti unnið að þessum málum út frá alveg skýrum forsendum hvað þetta snertir.