30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7165 í B-deild Alþingistíðinda. (5180)
421. mál, íslenskunámskeið fyrir almenning
Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Herra forseti. Ég get tekið heils hugar undir efni þeirrar till. sem hér er til umfjöllunar. Ég tel reyndar að það þurfi að gera margt fleira en einungis að efna til námskeiða fyrir almenning. Það sem ég tel vera meginvanda okkar nú er það hversu mjög ritað mál á í vök að verjast. Það má m.a. rekja til allt of langs vinnutíma. Foreldrar freistast til þess að geyma börnin fyrir framan sjónvarpið til að geta sinnt nauðsynlegum heimilisstörfum þann stutta tíma sem þeir eru heima. Þessir sömu foreldrar hafa ekki mikla afgangsorku til að stunda bóklestur sjálfum sér til gagns og gleði. Þetta er mikið áhyggjuefni, en ég held að aldrei fyrr hafi staða ritmálsins verið jafnveik og nú. Það virðist vera að skapast gjá milli talaðs og ritaðs máls.
Þannig sagði mér sögukennari frá því á dögunum, sögukennari við einn af framhaldsskólunum hér á landi, að hann hefði látið nemendur sína gera verkefni sem þeir síðan fluttu í tímum munnlega. Síðar þegar hann las ritgerðirnar yfir kom í ljós að málfarið var með þvílíkum eindæmum að hann taldi sér ekki stætt á því að gefa þeim einkunn fyrir verkefnin í samræmi við efni þeirra og innihald eingöngu. Nemendur brugðust reiðir við og töldu hann engan rétt eiga á að taka tillit til málfarsins við einkunnagjöfina.
Þetta er eitt dæmi sem sýnir að ég held að við verðum að gera miklu fleira en aðeins efna til námskeiðs í einangruðu námsefni, þ.e. íslenskunni. Við verðum að taka á þessu máli í heild sinni og það þarf t.d. að gefa kennurum í skólum landsins aukið svigrúm til að samþætta námsgreinar. Það kostar mikla vinnu. Ef vel á að vera þarf stundum að láta nemendur endurskrifa það sem þeir hafa áður skrifað. Það eru ekki allir kennarar sem endast til þess ár eftir ár við þau kjör sem þeir nú búa við og flestum eru kunnug.
En ég get tekið undir það sem hv. 1. flm., Júlíus Sólnes, og hv. síðasti ræðumaður, Guðrún Helgadóttir, sögðu. Hún hrósaði reyndar Morgunblaðinu og má það vel vera, en það gerðist í morgun að Morgunblaðið brást mjög illilega og langar mig til að lesa fyrir ykkur brot úr frétt sem ég las í Morgunblaðinu einmitt nú í morgun. Þar er verið að fjalla um verkfall verslunarmanna og undanþágu fyrir fólk sem þurfti að komast til útlanda. Þar segir, með leyfi forseta:
"„Undanþágan var auðfengin hjá Verslunarmannafélagi Suðurnesja og verkfallsverðirnir klöppuðu fyrir okkur þegar við fórum í gegn“, sagði Kristján Þórarinsson sem var á leið með sex ára dóttur dóttir sína, Heiðu Kristínu Viðarsdóttur, til hjartaaðgerðar til Lundúna í morgun.“
Ég læt hér þessari tilvitnun lokið, en tek það fram að „dóttur dóttir“ var skrifað í tveimur orðum svo dæmi sé tekið.
Það segir síðan áfram í greininni, með leyfi forseta: „Móðir Heiðu Kristínu.“ Ég ætla ekki að lesa lengra, en þetta eru mjög áberandi og alvarlegar villur og það er illa komið ef sá litli texti sem fólk gefur sér tíma til að lesa, því ég held að allmargir lesi dagblöðin, er skrifaður þannig. Þá er auðvitað ekki að undra að tungan mengist.
En varðandi beinar útsendingar frá sjónvarpsstöðvum erlendum vildi ég segja það að ég tel að þar beri að fara mjög varlega í sakirnar. Ég held að við séum ekki reiðubúin. Við þurfum að gera átak í okkar eigin tungumáli fyrst og stórauka þátt íslensks efnis og þá ekki síst barnaefnis í fjölmiðlum.