02.05.1988
Sameinað þing: 75. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7177 í B-deild Alþingistíðinda. (5202)
331. mál, störf og starfshættir umboðsmanns Alþingis
Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Hér liggur fyrir á þskj. 947 svohljóðandi nál. frá allshn. um till. til þál. um störf og starfshætti umboðsmanns Alþingis:
„Nefndin hefur rætt þáltill. á fundum sínum. Nefndin ákvað að senda till. ekki til umsagnar en sneri sér skriflega til Lagastofnunar Háskólans og bað um álit hennar. Jónatan Þórmundsson, forseti lagadeildar HÍ, ritaði ítarlega umsögn um málið og gerði nefndinni grein fyrir henni. Þá kom Gaukur Jörundsson, umboðsmaður Alþingis, á fund nefndarinnar.
Nefndinni er ljós nauðsyn þess að þáltill. nái fram að ganga á þessu þingi og leggur því til að hún verði samþykkt. Nefndin telur að Alþingi eigi að breyta 1. gr. laganna um umboðsmann Alþingis og veita forsetum Alþingis það umboð sem gert er ráð fyrir í 14. gr. þáltill. Enn fremur gerir nefndin að tillögu sinni að næsta reglulegt Alþingi taki til sérstakrar athugunar ákvæði einkamálalaga, Xl. kafla laga nr. 85 1936, um gjafsókn.
Nefndin leggur mikla áherslu á að umboðsmaður fái heimild til að veita gjafsókn þar sem hér er um að ræða nýtt embætti sem ætlað er að stuðla að réttarbótum í þjóðfélaginu og treysta rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum. Erfitt er og raunar óæskilegt að setja tæmandi ákvæði um störf og starfshætti þess manns sem gegnir hinu nýja embætti. Mikilvægt er að umboðsmaður fái gott svigrúm til að móta starfshætti sína sjálfur að fenginni reynslu hérlendis og erlendis, en rétt borgaranna til að leita ásjár umboðsmanns ætti að skerða sem allra minnst.“
Undir þetta álit skrifa allir nefndarmenn allshn., Guðni Ágústsson, Kristín Halldórsdóttir, Jón Kristjánsson, Sigbjörn Gunnarsson, Sverrir Hermannsson, Guðrún Helgadóttir og Pálmi Jónsson, og leggja til að tillagan verði samþykkt.