02.05.1988
Efri deild: 86. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7185 í B-deild Alþingistíðinda. (5235)

212. mál, fangelsi og fangavist

Guðmundur Ágústsson:

Herra forseti. Því miður átti ég þess ekki kost við 2. umr. að taka til máls, sem ég ætlaði þó sannarlega að gera, vegna anna sem ég átti í á öðrum stað. Þess vegna tek ég til máls núna, en ég mun verða mjög stuttorður.

Ég átti sæti í hv. allshn., sem hafði frv. til meðferðar, og er sammála efni frv. eins og raunar kemur fram í atkvæðagreiðslu minni áðan og í nál. Ég tel brýna nauðsyn á að endurskipulagt verði allt viðurlagakerfið og sérstaklega sá hluti er lýtur að fangelsum og vistun manna á þeim stofnunum. Í þeirri viðleitni er áríðandi að stjórnvöld marki sér stefnu er ekki aðeins taki mið af fordómum þjóðfélagsins gagnvart þeim mönnum sem brotið hafa af sér heldur hvernig byggja megi þessa menn upp svo að þeir geti að afplánuninni lokinni orðið nýtir þjóðfélagsþegnar. Til þess að þetta megi gerast þarf að athuga ýmislegt og þá kannski annað en fram kemur í þessu frv. Ég tel þó nauðsynlegt við þessa umræðu að vekja máls á þessu ef það yrði við framkvæmd þessara laga stjórnvöldum til leiðbeiningar.

Í fyrsta lagi tel ég að bæta þurfi mjög verulega núverandi fangelsi, en eins og fram hefur komið í fyrri ræðu minni og fram hefur komið hjá þeim aðilum sem fyrir nefndina komu er núverandi fangelsiskostur mjög bágborinn og til háborinnar skammar.

Þá er annað atriði að það ætti að fækka föngum í fangelsum. Ég held að allir ættu að vera sammála um að núverandi fangelsi eru fullnýtt og þau taka núna miklu fleiri fanga en eðlilegt er talið.

Í þriðja lagi vil ég beina því til stjórnvalda og þá sérstaklega ráðherra að bæta félagslega þjónustu innan fangelsa og veita föngum bæði félagslega og sálfræðilega aðstoð og bæta þá sérstaklega þá þætti í innri uppbyggingu fangelsa.

Í fjórða lagi bendi ég á að gera fangelsisstofnanir sjálfstæðari gagnvart ráðuneyti og gefa föngum kost á styttingu afplánunartíma vegna góðrar hegðunar.

Í fimmta lagi að fangar fái meðferð vegna utanaðkomandi félagslegra og sálfræðilegra vandamála og að bæta aðstöðu aðstandenda fanga til að ræða við fanga og þá aðila sem sjá um fangahjálp.

Í sjötta lagi að föngum verði tryggður átta stunda vinnudagur. Ég held að þetta atriði sé mjög mikilvægt. Eins og staðan er nú eru þetta á Litla-Hrauni t.d. þrír tímar og enn þá styttra í öðrum fangelsum.

Síðast en ekki síst, í áttunda lagi, að aðstoða fanga eftir að afplánun lýkur.

Í frv. eru stigin nokkuð stór spor í þá átt að auka réttindi og skyldur fanga og þá fangavarða og stjórnvalda og tel ég þær allar vera til bóta, en varðandi innra skipulag fangelsa vantar hins vegar töluvert upp á að gætt sé alls í frv. En þó er einn stór þáttur í frv. sem vonandi á eftir að komast á og það er deildaskipting fangelsanna þar sem fangar verði vonandi hólfaðir af eftir því sem líkindi eru fyrir að félagsskapurinn henti þeim.

Það er annað atriði sem er líka mjög áríðandi að unnin verði bót á. Það er um þá menn sem dæmdir eru í öryggisgæslu. Ég held að þjóðfélagið verði að taka á málefnum þeirra. Í þessu frv. er það ekki gert, en hins vegar er fellt niður eitt ákvæði sem mælti fyrir um það að þeir mættu vera vistaðir í fangelsum um stundarsakir. Það er brýnt verkefni fyrir stjórnvöld að ráða bót á því.

Ég mun ekki hafa þessi orð mín öllu fleiri, en langar til þess að lesa upp úr ritgerð sem tveir nemar í félagsvísindadeild Háskólans sömdu, en þeir voru á starfsnámskeiði á Litla-Hrauni og í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og athuguðu aðstæður fanga og hvernig þessum málum væri komið fyrir. Eins og máltækið segir er gests augað langgleggst í þessu, en þeir voru þarna í þrjá mánuði. Niðurstöður þeirra eru eftirtaldar og mig langar að lesa upp lokaorð í skýrslu þeirra:

„Í upphafi þessa verks, félagsleg aðstoð við fanga á Íslandi, settum við m.a. fram þá spurningu hvort félagsleg aðstoð væri í boði í íslenskum fangelsum. Ljóst er að þessari spurningu er hægt að svara játandi, en þó með hálfum huga. Félagsleg aðstoð, eins og svo mörg önnur þjónusta til handa föngum, er af mjög skornum skammti og byggist á einurð og áhuga þeirra sem hana veita en ekki jákvæðri og skipulagðri uppbyggingu af hálfu samfélagsins. Við undirritaðir höfum því oft velt fyrir okkur til hvers þessi sýndarmennska sé.

Eins og nefnt er í inngangi er fangelsisvistun sem refsivistarúrræði tekin upp vegna þess að hún þótti mannúðlegri leið en hýðingar og aðrar líkamlegar refsingar. En nú spyrjum við okkur hvort slík sé raunin miðað við aðbúnað og þjónustu í dag. Við lifum ekki lengur á 18. öldinni, þegar þetta úrræði var tekið upp, heldur á þeirri 20., öld mikilla lífskjara og framfara. En hvað varð um framfarirnar í þessum málaflokki? Það segir e.t.v. sína sögu að ekki hafa verið byggð fangelsi á Íslandi í 113 ár og aðbúnaði í íslenskum fangelsum er þannig háttað að ekki er gert ráð fyrir að mikið þurfi við fanga að tala.

Eins og fram kemur hér að framan gátu viðtöl á Litla-Hrauni farið upp í 20 talsins yfir daginn. Var þá setið við frá því kl. 11 að morgni til kl. 9 að kvöldi. Það má því vera ljóst að ekki er mögulegt að vinna markvisst í málefnum þessara einstaklinga við slíkar aðstæður. Þetta teljum við undirritaðir að sé einnig vandamál í öðrum faghópum sem veita föngum þjónustu. Allir þessir faghópar eru undirmannaðir og geta fyrir vikið ekki veitt eins góða þjónustu né náð þeim árangri sem þeir óska.

En þá erum við aftur komnir að afstöðu valdamanna þessa þjóðfélags því að þar gætir greinilegs skilningsskorts á eðli þjónustunnar og nauðsyn þess að skapa viðunandi starfsaðstöðu og auka fjölda starfsfólks til að markmiðinu með þjónustunni verði náð.

Nú kemur sjálfsagt fram í huga lesandans spurning um kostnað af aukinni þjónustu og hvort íslenska ríkið hafi efni á að veita hana. Rök okkar fyrir bættri þjónustu í fangelsum hvílir á þeim grunni að með bættri þjónustu megi þegar fram líða stundir ná betri árangri í endurhæfingu afbrotamanna og þar með minnka kostnað ríkisins með lækkuðu hlutfalli endurkomu í fangelsi. Þetta er þó ekki hægt að færa sönnur á nema tækifæri til þess verði veitt og kann mönnum að blandast hugur um hvort þetta sé þess virði að reyna það. Hvað kostnað varðar, þá þurfi einungis örfáa fanga til þess að snúa frá villu síns vegar til þess að hægt sé að réttlæta tvöföldun starfsmannafjölda í þeirri sérfræðiþjónustu sem nú er boðið upp á.“

Það ætti að vera ljóst eftir lestur þessarar ritgerðar að fangar lifa ekki mjög öfundsverðu lífi. Til viðbótar við þann skort sem þeir búa við meðan á afplánun stendur bætast síðan fordómar almennings þegar út í samfélagið er komið.

Síðan segir: „Að breyta þessu hvoru tveggja er engan veginn auðvelt verk, en fyrsta skrefið hlýtur þó að vera að bæta aðbúnað og þjónustu í fangelsum til að auðvelda föngum fyrstu skrefin utan múranna. Eins og margoft hefur komið fram teljum við undirritaðir að þar verði félagsleg aðstoð við fanga að hafa forgang þar sem hún er svo til engin í dag.

Nú er nýtt frv. um fangelsismál að fara fyrir Alþingi, en frv. eitt sér er ekki nóg. Aukinn skilningur og breytt afstaða áhrifamanna í þjóðfélaginu verða að fylgja með. Getur íslenska velferðarríkið verið þekkt fyrir að bjóða þeim þegnum sínum sem brotið hafa lögin ekki upp á annað en geymslupláss í fangelsum landsins í ákveðinn tíma, en samt krafist þess að þeir verði betri borgarar þegar út er komið?"

Þessi síðustu orð eru einmitt grunnurinn að því sem ég vildi sagt hafa og vonast að lokum eftir því að það frv., sem hér verður vonandi samþykkt, verði til þess að aðbúnaður verði bættur í fangelsum og við sem stjórnum eða eigum að stjórna þessu landi getum litið óhrædd framan í þessa menn.