02.05.1988
Efri deild: 86. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7188 í B-deild Alþingistíðinda. (5236)
212. mál, fangelsi og fangavist
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Vegna orða síðasta ræðumanns vildi ég bara taka fram að höfundar þeirrar skýrslu sem hann las upp úr langan kafla hafa komið að máli við mig. Mér virtist þeir hafa skilning á því — eins og ég vona að þingið hafi — að fyrsta skilyrðið, fyrsta forsendan fyrir því að unnt sé að bæta hina félagslegu þjónustu í fangelsunum sé að samþykkja þetta frv. Það er ekki þar með sagt að þar með sé öllu svarað. Reyndar vil ég leyfa mér að draga í efa að það sé verðugt markmið fyrir fangelsisstefnuna að fangar lifi mjög öfundsverðu lífi, eins og virtist vera gagnályktunin sem draga mætti af því sem kom fram í upplestrinum þar sem sagt var að fangar lifðu ekki mjög öfundsverðu lífi á Íslandi. Það er staðhæfing sem ég efast ekkert um.
En ekki vil ég drepa þessu máli á dreif, alls ekki. Ég segi það af einlægni að ég held að þingið geri best í því að samþykkja þetta frv. og treysta svo á að fjárveitingavaldið, það er þingið sjálft, sýni því skilning að þarna þurfi úr að bæta ef íslenskt mannúðarsamfélag á að rísa undir nafni.