02.05.1988
Neðri deild: 86. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7188 í B-deild Alþingistíðinda. (5238)

445. mál, eiturefni og hættuleg efni

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um eiturefni og hættuleg efni sem flutt er á þskj. 795 og er 445. mál Ed.

Með lögum nr. 85/1968 var í fyrsta sinn kveðið á um eiturefni og hættuleg efni á heildstæðan hátt hér á landi. Hefur verið starfað eftir þessum lögum síðan hvað snertir flokkun, merkingar, tilbúning, innflutning og dreifingu eiturefna og hættulegra efna.

Í lögunum frá 1968 er meðal annars að finna fyrstu ákvæði er taka á iðnaðarmengun hér á landi þannig að lögin voru á vissan hátt afsprengi þeirrar umhverfismálaumræðu er hófst hér á ofanverðum sjöunda áratugnum. Allt fram að gildistöku laga um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit 1. ágúst 1982 voru lög um eiturefni og hættuleg efni grundvallarlög á sviði mengunarvarnaréttar og fyrsta reglugerð um varnir gegn mengun af völdum eiturefna og hættulegra efna var sett 1972 og byggðist á þessum lögum.

Í lögunum er greint á milli eiturefna annars vegar og hættulegra efna hins vegar og gilda um þessi efni mismunandi ákvæði. Það er þó sameiginlegt að eiturefnanefnd, sem sett var á laggirnar með lögum 1968, gerir tillögur um flokkun efna á lista, annars vegar yfir eiturefni og hins vegar yfir hættuleg efni. Öll meðferð eiturefna lýtur miklu strangari reglum en meðferð hættulegra efna, ekki síst hvað snertir innflutning og dreifingu. Sala hættulegra efna er hins vegar háð ákveðnum skilyrðum sem ekki eru eins ströng.

Á undanförnum árum hafa verið sett margs konar lög er beinlínis kveða á um ýmiss konar starfsemi er lýtur að eiturefnum og hættulegum efnum og eftirliti með þeim. Má hér nefna lög nr. 46/1980, um Vinnueftirlit ríkisins, lög nr. 109/1984, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, þar sem mælt er fyrir um heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og starfsemi Hollustuverndar ríkisins, og lög nr. 108/1984, um lyfjaeftirlit ríkisins. Einnig má benda á lög nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu, þar sem mælt er fyrir um aðra skipan læknishéraða og starfsemi héraðslækna en í gildi var þegar gildandi eiturefnalög voru sett.

Með bréfi, dags. 13. sept. 1984, skipaði þáv. heilbr.- og trmrh. Matthías Bjarnason nefnd er falið var að endurskoða lög um eiturefni og hættuleg efni nr. 85/1968, með síðari breytingum, ekki síst með hliðsjón af því sem áður hefur verið nefnt. Nefndinni var hins vegar ekki ætlað að gera tillögur um skipan þessara mála innan matvælasviðsins þar sem hugmyndir eru uppi um að kveða sérstaklega á um það í sérlöggjöf um matvæli og er ætlunin að ýta því starfi úr vör á þessu ári.

Í nefndinni áttu sæti Ingolf J. Petersen, deildarstjóri lyfjamáladeildar ráðuneytisins, og var hann jafnframt formaður nefndarinnar, Ólafur Pétursson, forstöðumaður mengunarvarna Hollustuverndar ríkisins, og Þorkell Jóhannesson prófessor, formaður eiturefnanefndar.

Nefndin skilaði áliti til ráðuneytisins á síðasta ári í formi frv. til laga ásamt athugasemdum.

Nefndin var sammála um að sérstaklega þyrfti að lagfæra lög um eiturefni og hættuleg efni vegna þeirra breytinga sem orðið hafa frá gildistöku þeirra 1968, ekki síst með tilkomu þeirra laga sem ég nefndi áðan. Enn fremur þyrfti að taka á þeim þáttum sem snerta landlæknisembættið, en landlæknir fór með umsjón málaflokksins þegar gildandi lög voru samþykkt 1968.

Nefndin er þeirrar skoðunar að lög um eiturefni og hættuleg efni eigi áfram að vera rammalög þar sem kveðið er á um framkvæmdina að verulegu leyti með reglugerðum.

Frv. það sem hér liggur frammi er að langmestu leyti samhljóða tillögum endurskoðunarnefndarinnar. Þó hefur verið gerð ein veigamikil breyting frá tillögum nefndarinnar og snertir hún ákvæði 2. gr. frv. þar sem lagt er til varðandi flokkun efna á lista yfir eiturefni og hættuleg efni að flokkunin fari eftir skaðlegum áhrifum og notkunarsviði efnanna en ekki eftir fyrir fram gefnum flokkunarreglum eins og gildandi lög gera ráð fyrir. Er þetta gert fyrst og fremst með það fyrir augum að hægt sé að kveða á um flokkun, merkingu og bann og takmörkun við notkun í einni og sömu reglugerð og á þann hátt farið inn á sömu braut og Efnahagsbandalag Evrópu og önnur Norðurlönd hafa gert.

Með þessu er lagt til að reynt verði að samræma íslenska flokkunar- og merkingarkerfið og kerfi Efnahagsbandalagsins og annarra Norðurlanda, en íslensk stjórnvöld hafa þegar skuldbundið sig til þess að samræma þessar reglur, ekki síst í norrænu samstarfi.

Samræmd flokkun og samræmdar merkingar hljóta að teljast mikill kostur, auk þess sem þær auðvelda eftirlit með innflutningi, framleiðslu og dreifingu á eiturefnum og hættulegum efnum.

Jafnframt er þess að geta að eftirlitsaðilar, þ.e. Vinnueftirlit ríkisins, Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, Hollustuvernd ríkisins og Lyfjaeftirlit ríkisins, telja fyllilega tímabært að hér á landi verði teknar upp hliðstæðar merkingar og hliðstæðar flokkunarreglur og gilda í nágrannalöndunum.

Ég vil geta þess sérstaklega að sem stendur er unnið að reglugerð hér að lútandi og er reglugerðin reyndar tilbúin, en hún tekur mið af breyttum lögum og sömu reglum og gilda í nágrannalöndunum.

Varðandi einstaka efnisþætti frv. vil ég taka eftirfarandi fram:

Ekki þykir ástæða til þess að breyta flokkun efna í tvo höfuðflokka, þ.e. annars vegar eiturefni og hins vegar í hættuleg efni. Þetta byggist á því að eiturefni skv. II. kafla laganna eru ekki í frjálsri sölu en hættuleg efni, sbr. Ill. kafla, eru það hins vegar nema annað sé sérstaklega ákveðið. Eiturefni eru skaðvænlegri en hættuleg efni og líklegri til að valda eitrun. Því eru þau yfirleitt ekki látin út nema til þeirra sem hafa tilskilin leyfisskírteini og sala þeirra og innflutningur er háður sérstökum skilyrðum. Slík fyrirmæli gilda hins vegar yfirleitt ekki um hættuleg efni nema í undantekningartilvikum.

Varðandi starfsemi eiturefnanefndar er gert ráð fyrir því að hún starfi áfram, en verði skipuð sex mönnum í stað fjögurra og fimm þegar fjallað er um notkun eiturefna í landbúnaði. Ástæðan fyrir fjölgun nefndarmannanna er sú að gert er ráð fyrir því að fulltrúi landbrn., sem á að hafa sérþekkingu á notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði og garðyrkju, verði fastur fulltrúi í nefndinni í staðinn fyrir að vera lausafulltrúi og eingöngu til taks þegar fjallað er um notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði og garðyrkju. Enn fremur er bætt við nefndarmanni með efnafræðilega þekkingu þannig að annar skal hafa fræðilega þekkingu en hinn tæknilega.

Í gildandi lögum er gert ráð fyrir einum aðila en ekki gert upp á milli þessara þekkingarþátta. Auk þess er lagt til að eiturefnanefnd starfi framvegis meira sem sérfræðinganefnd og að störf hennar verði minna í formi stofnunar, en töluverðrar tilhneigingar hefur gætt á undanförnum árum til þess að fela nefndinni störf, þar með talin eftirlitsstörf. Öll skrifstofuvinna og eftirlitsvinna er í dag í höndum eftirlitsstofnana sem þegar hafa verið nefndar. Er því ekki ástæða til þess að fela nefndinni það hlutverk. Auk þess eru lagðar auknar upplýsingaskyldur á nefndina og bætt inn málaflokkum sem ástæða er til að nefndin fjalli um, t.d. að gera tillögur um viðbrögð við slysum af völdum eiturefna og hættulegra efna svo dæmi sé tekið.

Varðandi útgáfu leyfisskírteina, svokallaðra eiturbeiðna, er lagt til í frv. að heilbrigðisfulltrúar sveitarfélaganna gefi út eiturbeiðnir í stað lögreglustjóra, enda er þannig búið að heilbrigðiseftirliti í dag að heilbrigðisfulltrúar þurfa sérstakt leyfi til starfa og liggur að baki því viðurkennd sérþekking.

Það er nýmæli að leita skuli umsagnar eiturefnanefndar áður en leyfi er gefið. Vísast nánar um þetta til 7. gr.

Í gildandi lögum er gert ráð fyrir að sé veitt undanþága frá ákvæðum laganna skuli hún auglýst sérstaklega, þ.e. megi selja efni á frjálsum markaði t.d. í almennum verslunum. Reynslan hefur sýnt að ekki er þörf fyrir þessa undanþágu og er hún því felld niður en í stað þess er látið nægja að heimila sölu á frjálsum markaði á tilteknum varningi er inniheldur eiturefni. Þetta fyrirkomulag mun auðvelda framkvæmd laganna verulega.

Rétt er að vekja athygli á því að í 9. gr. er að finna nýmæli í samræmi við það sem ég hef áður sagt um samræmda flokkun og merkingarreglur, en þar segir að íslensk eiturmerki skuli vera í samræmi við hliðstæð eiturmerki í nágrannalöndum svo sem kostur er.

Í 13. gr. er að finna nýmæli sem ætlað er að sporna við þeirri hættu sem fylgir notkun lífrænna leysiefna. Lífræn leysiefni eru mikið notuð til þess að leysa upp ýmis efni og efnasambönd sem torleyst eru í vatni svo sem í lími, málningu og lökkum og til eldsneytis. Notagildi þessara lífrænu leysiefna er talið mjög mikið, en eituráhrif margra eru að sama skapi lítið rannsökuð. Eiturefnanefnd er falið að reyna að stýra notkun þessara efna þannig að hættuminni efni verði notuð í stað hinna hættumeiri og þá sérstaklega höfð í huga snefun eða sniff unglinga, sbr. nánar 13. gr. frv.

Þótt ekki hafi það verið hlutverk endurskoðunarnefndarinnar að gera tillögur um skipan mála varðandi eiturefni og hættuleg efni innan matvælasviðsins var eigi að síður talið ráðlegt að viðhalda gildandi ákvæðum í lögunum um eiturefni og hættuleg efni uns ný lög um notkun eiturefna og þessara efna í matvælum eða mengun matvæla af völdum slíkra efna hafi verið sett, sbr. það sem ég sagði hér áðan um setningu nýrra laga um tilbúning og dreifingu matvæla.

Rétt er að vekja athygli á nýmæli í 19. gr. þar sem lagt er til að eiturefnanefnd verði falið að fylgjast með upplýsingum um rannsóknir er varða krabbamein eða illkynja frumubreytingar í mönnum og dýrum af völdum eiturefna og hættulegra efna. Enn fremur er rétt að vekja athygli á nýmælum í 21. gr. þar sem mælt er fyrir um að merkja skuli farartæki er flytja eiturefni og hættuleg efni, en slíkur flutningur hefur færst í vöxt á undanförnum árum og má þar sem dæmi nefna tankbíla garðúðunarmanna.

Eins og þegar hefur komið fram í máli mínu er ekki reiknað með því í frv. að eiturefnanefnd verði eftirlitsaðili með framkvæmd laganna. Þess í stað er gert ráð fyrir því að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna komi í auknum mæli inn sem eftirlitsaðili. Að öðru leyti er gert ráð fyrir þeim eftirlitsaðilum sem starfa að þessu eftirliti í dag, eins og Vinnueftirlitinu innan vinnustaðanna, Lyfjaeftirliti ríkisins varðandi lyfjaframleiðslu fyrirtækja og lyfjabúðir og Hollustuvernd ríkisins. Einnig geta þar komið til lögreglustjórar og embættislæknar, þ.e. héraðslæknar og heilsugæslulæknar. Í frv. sjálfu er ekki fjallað um valdsvið og þvingunarúrræði eftirlitsaðila heldur er skírskotað til þeirra laga sem gilda um hinar einstöku eftirlitsstofnanir, en þau hef ég nefnt áður.

Í 27. gr. er lagt til að lögfest verði ákvæði um samstarfsnefnd eftirlitsaðila með framkvæmd ákvæða laganna og er höfð til hliðsjónar skipan núverandi samstarfsnefndar sem starfar í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 238 frá 1986, um eftirlit með framkvæmd ákvæða laga um eiturefni og hættuleg efni, en til þess nefndarstarfs var formlega stofnað með reglugerð nr. 455 frá 1975 með sama heiti.

Í þessari nefnd eiga sæti, auk fulltrúa heilbr.- og trmrh., fulltrúi eiturefnanefndar, fulltrúi Hollustuverndar ríkisins, fulltrúi Lyfjaeftirlits ríkisins og fulltrúi Vinnueftirlits ríkisins og er það hlutverk nefndarinnar að fjalla um verkaskiptingu milli eftirlitsaðila í takmarkatilfellum og um samræmingu aðgerða.

Gert er ráð fyrir því að eiturefnanefnd sem nú situr starfi út yfirstandandi ár þótt lögin öðlist gildi frá og með 1. júlí á þessu ári, nái þau fram að ganga. Helgast þetta af því að töluverðan tíma getur tekið að endurskipa í nefndina, enda er ekki hlaupið að því að fá til þá sérþekkingu sem krafist er lögum samkvæmt. Ég vil að lokum geta þess að á fundi samstarfsnefndar um eftirlit með framkvæmd ákvæða laga nr. 85/1968, um eiturefni og hættuleg efni, sem starfar samkvæmt reglugerð nr. 238 frá 1986 og ég fjallaði um á undan, var nýlega samþykkt að beina þeim tilmælum til mín að í frv. til laga um eiturefni og hættuleg efni verði sett ákvæði sem heimila að banna megi afhendingu ákveðinna hættulegra efna nema viðkomandi uppfylli sömu skilyrði og gildi um útlán eiturefna. Samþykkt þessi var gerð í framhaldi af því að upp hafði komist um framleiðslu á amfetamíni í heimahúsi.

Lyfjaeftirlit ríkisins var kallað til aðstoðar við rannsókn málsins og hefur undir höndum lista yfir efni sem notuð voru við framleiðsluna. Voru þar á meðal tvö efni á lista 1, þ.e. sterkt eitur, eitt efni á lista 2, þ.e. sem merkist sem eitur, og fjölmörg á Listum 3 og 4, en þeir fjalla um hættuleg efni. Efni þessi höfðu fengist keypt hjá lyfjaheildsölum og nokkrum öðrum aðilum án þess að athugasemd væri gerð og er ljóst að sala efna á lista 1 og 2 brýtur í bága við ákvæði gildandi laga og reglugerða. Telur nefndin brýnt að sett verði inn í lög um eiturefni og hættuleg efni heimild sem veiti leyfi til að takmarka sölu á hættulegum efnum til einstaklinga.

Þótt frv. þetta sé seint fram komið held ég að í því sé ekki að finna nein veigamikil atriði sem gætu valdið deilum. Hér er um að ræða tillögur um breytingar á lögum sem flestar leiða af breytingum í þjóðfélaginu á þeim 20 árum sem lögin hafa verið í gildi og breytingar á ýmiss konar sérlöggjöf sem sett hefur verið á þeim tíma, auk þess sem breytingarnar styðjast við skuldbindingar íslenskra stjórnvalda í alþjóðasamstarfi.

Ég tel brýnt að frv. þetta nái fram að ganga á yfirstandandi þingi, ekki síst til þess að skapa grundvöll til setningar reglugerðar um merkingar, flokkun, tilbúning o.fl. þegar í hlut eiga vörur er innihalda eiturefni og hættuleg efni þannig að hér gildi svipaðar reglur og í nágrannalöndunum.

Herra forseti. Ég legg því til að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn. með beiðni um að nefndin hraði störfum svo frv. þetta geti orðið að lögum á yfirstandandi þingi. Ég vil þó vekja athygli á því að þetta frv. hefur ekki verið á forgangslista yfir mál sem skyldu afgreiðast fyrir lok þessa þings, en bendi hins vegar á að það tengist að verulegu leyti frv. sem hér er til meðferðar í þinginu og hv. heilbr.- og trn. Nd. hefur þegar fjallað um og það í síðari deild, þ.e. frv. um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, sem ég vonast eindregið til að nái fram á þessu þingi. Það væri mjög æskilegt ef þetta frv. gæti fylgt þeirri afgreiðslu og einnig orðið að lögum fyrir þinglok.