02.05.1988
Neðri deild: 86. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7194 í B-deild Alþingistíðinda. (5241)
514. mál, bann gegn viðskiptum við Suður-Afríku og Namibíu
Geir H. Haarde:
Herra forseti. Ég ritaði undir nál. með fyrirvara sem ég vil nú gera nokkra grein fyrir.
Ríkisstjórn Suður-Afríku hefur um áratuga skeið gert sig seka um einhverja alvarlegustu misbeitingu ríkisvalds sem þekkist í víðri veröld. Þessi misnotkun valds felst í því að meina meiri hluta þjóðarinnar á grundvelli litarháttar eða kynþáttar um stjórnmálaleg og önnur mannréttindi sem hvarvetna þykja sjálfsögð meðal lýðræðisþjóða. Slík kúgun stríðir gegn réttlætisvitund siðaðra manna um allan heim. Hún er óréttlætanleg og hana hljóta allir lýðræðislega sinnaðir menn að fordæma.
Mannréttindi eru hins vegar fótum troðin víðar en í Suður-Afríku þótt óvíða séu brotin jafnskipuleg af hálfu ríkisvaldsins og á jafnsiðlausum grunni og sú aðskilnaðarstefna sem þar tíðkast. Menn þurfa ekki að láta hugann reika víða til að geta nefnt fjölda ríkja sem brjóta mannréttindi á þegnum sínum og neita þeim t.d. um trúarbragðafrelsi, ferðafrelsi, skoðana- og tjáningarfrelsi. Hér mætti benda á ýmis ríki í Suður-Ameríku, Asíu, Afríku, Austurlöndum nær og austan járntjalds.
Alþingi Íslendinga og íslensk stjórnvöld, sem jafnan hafa skipað sér í raðir þeirra sem fordæmt hafa kynþáttaaðskilnaðarstefnuna, standa frammi fyrir nokkrum vanda í þessu efni. Eiga þau að beita sér fyrir samskipta- eða viðskiptabanni gagnvart einu ríki sem kúgar þegna sína eins og lagt er til með frv. þessu eða ætti e.t.v. að marka almenna stefnu um viðskipti Íslands við öll þau ríki sem gera sig sek um mannréttindabrot af opinberri hálfu? Til þessa hefur það verið stefna íslenskra stjórnvalda að eiga vinsamleg viðskipti við öll ríki án tillits til stjórnarfars eða stefnu ríkjandi stjórnvalda í innanríkismálum.
Ég hlýt að spyrja: Ætla helstu talsmenn þessa máls að leggja til að horfið verði frá þeirri stefnu gagnvart fleiri ríkjum?
Það er einnig óvíst, herra forseti, að viðskiptabann eins og hér er lagt til gagnist hinum kúgaða minni hluta í Suður-Afríku sem skyldi. Það er til að mynda ekki ólíklegt að einhverjir blökkumenn muni í kjölfar viðskiptabanns missa það lífsviðurværi sem þeir hafa haft af framleiðslu ávaxta sem seldir hafa verið til Íslands. Ekki getur það verið tilgangurinn með viðskiptabanninu.
Þannig er ég einungis að benda á, herra forseti, að það eru margar hliðar á þessu máli. Það er t.d. freistandi að spyrja eftirfarandi spurningar: Mundu helstu stuðningsmenn viðskiptabanns við Suður-Afríku leggja slíkt bann jafneindregið til ef Íslendingar ættu þar einhverra raunverulegra viðskiptahagsmuna að gæta, ef þar væri t.d. skreiðarmarkaður á borð við Nígeríu eða saltfiskmarkaður á borð við það sem eitt sinn var í Zaire?
Herra forseti. Ég mun ekki leggjast gegn því að Ísland skipi sér á bekk með þeim ríkjum Vestur-Evrópu sem eindregnasta afstöðu hafa tekið gegn kynþáttaaðskilnaðarstefnu Suður-Afríkustjórnar. Með þeim ríkjahópi eigum við meiri samstöðu um utanríkispólitísk málefni en öðrum. Ég get tekið undir það að vegna alþjóðlegrar samstöðu sé meiri von til þess í Suður-Afríku en sums staðar annars staðar að utanaðkomandi þrýstingur eins og viðskiptabann skili einhverjum árangri og flýti fyrir því að minni hlutinn hætti að kúga meiri hlutann.
Í ljósi þess og með tilliti til þess að hér er fyrst og fremst um það að ræða að veita blökkumönnum í Suður-Afríku táknrænan og siðferðilegan stuðning mun ég greiða þessu máli atkvæði mitt.