03.05.1988
Sameinað þing: 76. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7225 í B-deild Alþingistíðinda. (5280)

Almennar stjórnmálaumræður

Óli Þ. Guðbjartsson:

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Eldhúsdagur og eldhúsdagsumræður eru gömul hugtök um íslensk stjórnmál. Í sviphendingu er þá litið yfir störf Alþingis í þinglok og staða mála vegin og metin. Á þessu vori blasa við straumhvörf í efnahagsþróun hér á landi sem allir aðilar þjóðfélagsins, háir sem lágir, verða að taka tillit til. Uppsveiflunni 19841987 er lokið, en samdráttur í afrakstri útflutningsframleiðslunnar og þar með þjóðartekna er staðreynd, m.a. vegna rangra ákvarðana hæstv. ríkisstjórnar eða aðgerðarleysis, eins og glöggt kom fram í máli hæstv. utanrrh. rétt áðan.

Góðærið hefði betur verið nýtt með því að ná hallalausum ríkisbúskap á meðan útflutningstekjur okkar jukust ár frá ári. Því miður var það ekki gert. Það er hins vegar fyrst nú á þessu ári sem sú sjálfsagða stefna er upp tekin að ná jöfnuði í ríkisrekstrinum, einmitt þegar erfiðast er að axla þær byrðar.

Við slíkar aðstæður hefði mátt búast við að einkum yrði gætt aðhalds og sparnaðar í ríkisrekstrinum þannig að einhverrar hluttekningar gætti í garð hins skattpínda almúga. Sú samúð kom fram á þann veg að forsendur fjárlaga 1988 gerðu ráð fyrir 17–18% meðaltalsverðbreytingum milli áranna 1987 og 1988. Flestöll ráðuneytin gerðu hins vegar ráð fyrir 30–90% hækkun í sinn hlut við þessar sparnaðar- og aðhaldsaðstæður. Fjmrn. auglýsti svo vikum saman með heilsíðu auglýsingum í dagblöðunum eftir hugmyndum um sparnað í ríkisrekstrinum.

Þetta var í þann mund sem matarreikningur heimilanna hækkaði um fjórðung, heil 25%, og raunverulegar ráðstöfunartekjur heimilanna lækkuðu þeim mun meira sem tekjur fyrirvinnunnar voru lægri. Frjálshyggjusósíalisminn í framkvæmd. Jafnvel Margaret Thatcher í Lundúnum lætur sér lynda að sleppa virðisaukaskattheimtu á mat og bækur. En hér er engu eirt. Þetta er megineinkenni vorsins 1988 við þinglausnir.

En lítum á annan þátt í þjóðmálum Íslendinga um þessar mundir. Átök standa yfir um tekjuskiptinguna og ekki að ófyrirsynju. Ef þjóðinni væri skipt í nokkurn veginn tvo jafnstóra hópa og í öðrum hópnum væru þeir sem lægri hafa launin og þar með tekjurnar kemur í ljós að þessi 50% hluti þjóðarinnar ber úr býtum einungis 22,5% heildarteknanna, en hinn helmingurinn 77,5% af heildartekjunum. Enn hrikalegar lítur dæmið út ef borin eru saman þau 10% þjóðarinnar sem mest bera úr býtum, en þeirra hlutur er tæplega 27% heildarteknanna þegar þau 10% sem minnst bera úr býtum fá aðeins 1,3% heildartekna í sinn hlut. Munurinn er yfir tvítugfaldur á milli þessara hópa.

Þessar upplýsingar hafa m.a. komið fram vegna þáltill. um tekjumyndun og skiptingu þjóðartekna sem Borgarafl. undir forustu frú Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur bar fram í sameinuðu þingi. Hér er vissulega brotið upp á máli sem snertir kviku dagsins og e.t.v. spannar eða a.m.k. snertir flest öll önnur réttlætismál. Og þetta mál hefur margar hliðar. Enginn vafi leikur á að konur eru í miklum meiri hluta í tekjulægri hluta þjóðarinnar, konur sem bera uppi starfsemina á uppeldis- og heilbrigðisstofnunum og margs konar annarri þjónustu sem og framleiðslunni.

Þá má telja næsta fullvíst að bændur fylla að meginhluta þennan flokk. Sáð hefur verið sæði ótrúar á möguleikum íslensks landbúnaðar um mörg undanfarin ár. Hún bar þann ávöxt að 2% samdráttur varð í þeirri atvinnugrein á sl. ári. Engu að síður varð tvöföldun í útflutningsverðmæti af fiskeldi og þar stöndum við á þröskuldi nýrrar aldar. Hins vegar skortir sárlega á skilning stjórnvalda á mikilvægi þeirra möguleika sem þar bíða ónýttir áður en byggðirnar bresta. Það skortir til að mynda á skilning á mikilvægi eðlilegrar verðstýringar á raforku í þágu fiskeldis og raunar einnig fiskvinnslunnar allrar í landinu.

Landsbyggðin á nánast hvarvetna undir högg að sækja. Og þegar lénsherrarnir eru minntir á ýmsar staðreyndir í því efni bregðast þeir ókvæða við og tala um nöldur og niðurdrep. Á landsbyggðinni kemur ranglætið og raunar fáránleikinn í framkvæmd lánskjaravísitölunnar fyrst og skýrast í ljós. Húseignin sem á hvílir 3,5 millj. kr. er ekki söluhæf nema á innan við 3 millj. ef kaupandi þá fæst, en samkvæmt lánskjaravísitölunni hækka lánin í ca. 4 millj. við næstu afborgun. Hver trúir því að í okkar landi sé fólk og það með völd og ráð annarra í hendi sér sem telur þetta eðlilegt kerfi og vill viðhalda því?

En þessi landlæga lítilsvirðing á landsbyggðinni gengur t.d. svo langt að þegar efnt er til útsölu á kjöti sem stendur vikum saman er hún vitaskuld aðeins á einum stað á Íslandi, þ.e. hér í Reykjavík í Árbæjarhverfinu. Það er með ólíkindum hvað menn eru frjóir í hugsun á þessu sviði að ég nú ekki tali um viðskiptavitið. Þar fara fáir í fötin þeirra sem hér ráða för.

Og það er víða hægt að tína til dæmi af sama toga þar sem lítilsvirðing á landsbyggðinni er nánast ræktuð árum og áratugum saman. Samræmdum prófum grunnskóla lauk fyrir helgina. Árangur nemenda í þessum prófum er metinn og gefinn út eftir umdæmum og hefur verið svo um árabil. Þar er svæðum skipað í virðingarsess eftir árangri hverju sinni. Í flestum tilfellum hefur Reykjavík borið höfuð og herðar yfir önnur umdæmi í þessu efni. Sjaldan eða aldrei er leitað ástæðna fyrir þessum veruleika eða margbreytni þess sem að baki býr og margháttuðum aðstöðumun, en sýknt og heilagt er landsbyggðarfólki núið því um nasir að í þessu efni sem öðrum sé það annars flokks, undirmálsfólk. Og svona til frekari áherslu vilja þeir sem betur mega sín hér á Reykjavíkursvæðinu fá sína einkaskóla þannig að þeirra afkvæmi fái betri aðhlynningu en börn múgamanna ellegar einstæðra foreldra. En að þetta sérhyggjufólk greiði með öllu kostnað af sérgæðunum er víst ekki við hæfi.

Nei, láglaunafólk og landsbyggðarmenn eiga samleið í þessu landi á nánast öllum sviðum og þá gildir einu hvort um er að ræða karla ellegar konur. Að rétti þessa fólks og raunar allra annarra sem eiga undir högg að sækja vill Borgarafl. vinna.

Ég hef lokið máli mínu, hæstv. forseti, og þakka fyrir.