03.05.1988
Sameinað þing: 76. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7236 í B-deild Alþingistíðinda. (5284)
Almennar stjórnmálaumræður
Guðmundur H. Garðarsson:
Herra forseti. Góðir Íslendingar. Stundum heyrist sagt að lítill munur sé á stjórnmálaflokkunum og að raunverulega snúist barátta þeirra um völd og áhrif sér til handa, stjórnmálabaráttan snúist ekki um hag og velferð fólksins, en það er og á að vera meginmarkmið stjórnmálamanna. Hið rétta í þessu er að sjálfsögðu að flestallir stjórnmálamenn í lýðræðisríkjunum vilja og ætla að láta gott af sér leiða með baráttu sinni. Markmiðið er því svipað. Það sem greinir stjórnmálamenn og stjórnmálaflokka að er leiðin að markmiðum, stefna flokkanna og framkvæmd.
Sjálfstfl. hefur ætíð lagt áherslu á að hyggja að velferð sem flestra á grundvelli einkaframtaks í atvinnurekstri. Það er skoðun sjálfstæðismanna að öflugt atvinnulíf tryggi best afkomu og velferð fólksins. Þess vegna er mikilvægt að fólk átti sig á því að það er aðeins á þessum grunni, öflugu atvinnulífi, sem unnt er að tryggja atvinnuöryggi og góða afkomu fólks.
Í þessum efnum er ekkert sjálfsagt. Allir verða að vera virkir þátttakendur ef vel á að takast. Stjórnvöld bera mikla ábyrgð, en fólkið sjálft ræður úrslitum um framgang mála í daglegu starfi. Framtak fólksins, hugvit og djörfung hefur skapað þessa merku þjóð. Hlutverk stjórnmálamanna er að auðvelda þjóðinni að ná settu markmiði í skjóli laga og réttar og eftir þeim leiðum sem fólkið hefur lagt áherslu á í lýðræðislegum kosningum. Í áratugi hefur íslenska þjóðin treyst Sjálfstfl. best í þessum efnum. Sjálfstfl. hefur lagt áherslu á að fólkið væri sem frjálsast og að afskipti stjórnvalda væru sem minnst. Þessi stefna hefur treyst farsæld og velmegun fyrir landsmenn í heild.
Íslendingar vilja vera sem frjálsastir í orði og verki. Það er þeim í blóð borið. Athafnafrelsið hefur skilað miklum efnahagslegum ávinningi og treyst íslenska menningu. Mörg dæmi mætti nefna sem styðja þessa fullyrðingu. Ég nefni sjósókn Íslendinga á þessari öld. Ég nefni uppbyggingu og ræktun landsins. Ég nefni blómleg byggðarlög víðs vegar um landið. Og ég segi: Berið þið saman íslenskt þjóðfélag, þjóðfélag 240 000 manna, við milljónaþjóðfélögin og niðurstaðan verður að óvíða í heiminum býr fólk við almennt betri kjör en á Íslandi.
En það þýðir ekki að eigi megi gera betur. Það þýðir heldur ekki að ekki verði að endurmeta stöðu fjölda einstaklinga og styrkja stöðu ýmissa atvinnugreina innan þess ramma sem við störfum í. Og það þýðir einnig að það þarf að finna nýjar leiðir til að lyfta láglaunafólki upp úr því lága kjarastigi sem það er í. En fyrir okkur sem þjóð er aðalatriðið að við gerum okkur grein fyrir meginkjarna málsins sem er að á grundvelli athafnafrelsis og einkaframtaks hefur verið byggt upp efnahags- og menningarlega sterkt ríki á Íslandi. Það er óhrekjanleg staðreynd.
Sjálfstfl. hefur sem stjórnmálaafl haft forustuna í uppbyggingu þessa þjóðfélags. Sjálfstfl. hefur lagt áherslu á að byggja upp sterkt atvinnulíf sem gæti treyst velferð landsmanna sem best. Ég minni á að í tíð ráðherra Sjálfstfl. voru almannatryggingagreiðslur stórbættar og vegna tengsla við lög um staðgreiðslu skatta voru barnabætur hækkaðar verulega. Sjálfstfl. hefur ætíð látið sér annt um stöðu aldraðra, öryrkja og sjúkra og mun halda áfram að vinna að velferð þeirra.
Enn hefur Sjálfstfl. forustuna, m.a. í núverandi ríkisstjórn. Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar hefur nú starfað í tæpt ár og kappkostað að halda jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Ytri skilyrði, fall dollarans og verðlækkun helstu afurða hafa valdið erfiðleikum í atvinnu- og efnahagslífi landsmanna. Það dylst engum. Þá hefur ríkisstjórnin þurft að glíma við þann vanda að halda verðbólgunni niðri. En verðbólgan er og verður mesti óvinur fólksins. Mikilli verðbólgu fylgir atvinnuleysi, lífskjaraskerðing og skortur, það vita allir.
Í hita umræðunnar gleyma ýmsir stjórnmálamenn oft að skýra í einföldu og skiljanlegu máli hvers vegna það er svo mikilvægt að halda verðbólgunni niðri. Ástæðurnar eru margar, en þessi er hin helsta: Íslendingar eiga allt sitt undir ótrufluðum og hagstæðum utanríkisviðskiptum. Við verðum að flytja inn svo til allar helstu neysluvörur, að sjávar- og landbúnaðarvörum undanskildum. Þá verðum við að flytja inn flestallar nauðsynjar, nauðsynlegar vélar, tæki, skip o.s.frv. Til að greiða fyrir þennan mikla innflutning verðum við að flytja út, selja erlendum aðilum eigin framleiðsluvörur og þjónustu. Þetta er einfalt mál, öllum skiljanlegt. En margir eiga erfitt með að skilja samhengið milli mikilla innlendra kostnaðarhækkana, verðbólgu og þess sem við fáum fyrir útflutningsvörur okkar erlendis.
Mikil innlend verðbólga gerir Íslendinga ósamkeppnishæfa á erlendum mörkuðum. Þá getum við ekki selt vöruna á fullnægjandi verði í krónutölum mælt. Við fáum of lítið til baka. Afleiðingarnar eru framleiðslustöðvun og atvinnuleysi. Þessu ber að forða, en það verður ekki gert án aðgerða sem allir landsmenn hljóta að taka þátt í.
Hjól atvinnulífsins verða að snúast af fullum krafti, það er lífsspursmál. Verðbólgunni verður að halda niðri til að tryggja stöðugleika í atvinnulífinu og góða afkomu landsmanna allra. Rétt er að hv. þm. minnist þess einnig hverja verðbólgan leikur verst: Það eru lífeyrisþegar, öryrkjar og sjúkir, það eru sparifjáreigendur, það er unga fólkið sem er við nám, það eru kaupendur íbúða, húsbyggjendur og það er láglaunafólk.
Sjálfstfl. ætlar sér að verja stöðu þessa fólks. Við tökum ekki þátt í ábyrgðarlausu hjali um að hættur verðbólgunnar séu ekki fyrir hendi. Þetta vandamál hefur fylgt þjóðinni í áratugi en þrátt fyrir það hefur tekist að framkvæma þær aðgerðir sem hafa dugað til að byggja upp þetta góða þjóðfélag.
Enginn getur losnað undan skyldum sínum, Íslendingar ekki heldur. Við einir berum ábyrgð á framtíð okkar og barna okkar. Við erum ein þjóð í stóru landi. Það ríður á miklu að skilningur ríki milli manna og stétta hjá þessari fámennu þjóð. Víða er sótt að og hættur eru miklar í hverfulum heimi.
Sjálfstfl. leggur áherslu á sátt milli manna. Við munum standa vörð sem fyrr um öryggis- og varnarmál þjóðarinnar með þátttöku í Atlantshafsbandalaginu. Við munum verja stöðu atvinnuveganna. Við munum stuðla að sem bestri nýtingu hinna auðugu fiskimiða við strendur landsins og hefja fiskiðnaðinn til öndvegis á ný. Ég sagði fyrr og endurtek: Á Íslandi býr ein þjóð. Við eigum að starfa saman af einlægni og drengskap og við eigum að efla með okkur hollan þjóðarmetnað. Við skulum í verki vera þess verðug að hljóta sæmdarheitið „góðir Íslendingar“.