03.05.1988
Sameinað þing: 76. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7238 í B-deild Alþingistíðinda. (5285)
Almennar stjórnmálaumræður
Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Góðir áheyrendur. Nú er senn að ljúka fyrsta þingi frá myndun ríkisstjórnarinnar undir forsæti Þorsteins Pálssonar og því komið að eldhúsumræðum hér í sölum Alþingis, eða nokkurs konar vorhreingerningu í almennum stjórnmálaumræðum sem nú fara fram og varpað er inn á heimili landsmanna á öldum ljósvakans.
Sumum finnst það e.t.v. vera að bera í bakkafullan lækinn því aðeins eru örfáir dagar síðan landsmenn áttu þess kost að hlýða á umræður um vantrauststillögu á ríkisstjórnina sem stjórnarandstöðuflokkarnir fluttu. Við þær umræður gafst landsmönnum tækifæri til að vega og meta málflutning stjórnar og stjórnarandstöðu og ég efast ekki um að sú niðurstaða hafi leitt í ljós að ríkisstjórnin stendur traustum fótum, þrátt fyrir niðurstöður skoðanakannana að undanförnu, og mun halda fast við að vinna sig út úr vandanum.
Því er ekki að neita að mikill munur er á því að mynda ríkisstjórn sem saman stendur af þremur stjórnmálaflokkum, um margt með ólík markmið, heldur en tveggja flokka stjórn og auðvitað endurspeglar það nokkuð stjórnarsamstarfið. Við sjálfstæðismenn gerðum grein fyrir þessum vanda fyrir kosningar og lögðum áherslu á þýðingu þess að stærsti stjórnmálaflokkurinn, Sjálfstfl., þyrfti að halda sínum þingstyrk til þess að gera myndun tveggja flokka stjórnar mögulega. Sú von okkar brást, en við sjálfstæðismenn höfum aldrei skorast undan þeirri ábyrgð að setjast í ríkisstjórn og takast á við vandann, jafnvel til þess að sópa undan teppum vinstri stjórna eins og sagan sannar.
Nú hafa skoðanakannanir undanfarið gefið í skyn að miklar sveiflur séu í fylgi milli flokka. Ef marka má þær er Sjálfstfl. ekki stærstur í augnablikinu, heldur Kvennal. Kvennal. vill ekki kalla sig stjórnmálaflokk heldur grasrótarhreyfingu. En ég held að það sé alveg ljóst að slíkt gengur ekki til lengdar, enda er það svo að vinstri öflin í landinu hafa greinilega beint huga sínum til Kvennal. í skoðanakönnunum undanfarið og eru t.d. á góðri leið með að gera Alþb. að minnsta flokknum ásamt því að þurrka Borgarafl. út.
Það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt að fólk beini huga sínum að stjórnmálaflokki sem er í raun óskrifað blað, eins og Kvennal. á meðan hann hefur ekki viljað axla þá ábyrgð að setjast í ríkisstjórn og takast á við lausn vandans. Það er reginmunur á því að sitja í ríkisstjórn eða vera „stikkfrí“ í stjórnarandstöðu. Ég segi „stikkfrí“ því að þm. stjórnarandstöðunnar geta flutt sín óskamál hér inn í þingsali með málatilbúnaði í formi þáltill. eða frv. vitandi það að fjármagn er ekki fyrir hendi til að hrinda þeim í framkvæmd. Enda er það svo að þm. stjórnarandstöðunnar hafa flutt á þessu þingi hundruð mála og ef þau kæmust öll í gegn mundi það orsaka gífurlega aukningu á erlendum lántökum og aukna skuldasöfnun. Það er ekki alltaf spurning um pólitískan vilja, heldur spurning um fjármagn. Það getur sem sagt verið breitt bil á milli þess að vilja og geta. Ég tek undir orð Margrétar Frímannsdóttur hér áðan að stjórnmálaflokkur er ekki það sem hann segir, heldur það sem hann gerir.
Eitt mikilvægasta verkefni stjórnmálamanna er að aðlaga þjóðfélagið breyttum þörfum hvers tíma. Nú hin síðari árin hefur hraðinn á öllum sviðum þjóðlífsins verið svo mikill að aldrei höfum við fundið eins fyrir þeim öru breytingum sem hafa átt sér stað bæði í jákvæðum og neikvæðum skilningi. Við erum svo sannarlega komin inn í tæknivædda veröld og því er það brýnna en nokkru sinni að bregðast við og aðlaga þjóðfélagið breyttum þörfum. Þessar breyttu þarfir beinast ekki síst að högum fjölskyldunnar og blasa hvarvetna við.
Þegar talað er um fjölskyldumál er oft tilhneiging til að eigna þau konum — fjölskyldumál séu fyrir konur að tala um. Þetta er alrangt. Ef efnahagsmál varða ekki hagsmuni fjölskyldunnar, þá veit ég ekki hvað eru hennar hagsmunir. Eða skyldi það ekki varða hagsmuni fjölskyldunnar að halda góðum lífskjörum í landinu, ná niður verðbólgu, koma í veg fyrir atvinnuleysi og treysta undirstöður framleiðslugreinanna? Allt eru þetta vandamál sem ríkisstjórnin er að fást við með hagsmuni fjölskyldnanna að leiðarljósi.
Við sjálfstæðismenn höfum ætíð lagt áherslu á að standa vörð um fjölskylduna og heimilið og nauðsyn þess að þjóðfélagið komi til móts við breyttar aðstæður hennar.
Á síðasta kjörtímabili var unnið markvisst átak varðandi skólamálin. Þáverandi menntmrh., Ragnhildur Helgadóttir, skipaði vinnuhóp um bætt samstarf heimila og skóla, samfelldan skóladag og nestismál skólabarna. Vinnuhópurinn skilaði tveimur skýrslum, annars vegar um dreifbýlið og hins vegar um þéttbýlið. Við áttum mjög góða samvinnu við skólamenn um land allt og má fullyrða að árangur af starfi nefndarinnar fór að skila sér strax meðan hún var að störfum í ýmsum umbótum víða í skólastarfinu, enda er það svo að ekki þurfa lagabreytingar að koma til varðandi t.d. samfellda viðveru nemenda í skólum eða nestismálin, svo eitthvað sé nefnt, heldur vilji og skilningur samstarfsaðila, ríkis, sveitarfélaga, forráðamanna skólanna og heimilanna.
Aldrei verður lögð nægileg áhersla á nauðsyn þess að gagnkvæmur trúnaður ríki milli foreldra og kennara. Foreldrar mega ekki líta á skóla barna sinna sem lokað hús sem sé þeim óviðkomandi og skólinn verður að opna dyr sínar fyrir foreldrum sem vilja leggja það á sig að styðja skólastarfið. Sama gildir um samstarf heimila, dagheimila og leikskóla sem annast börn innan skólaaldurs.
Það er ljóst að mikil þörf er fyrir aukið dagvistarrými barna. Þar stöndum við á tímamótum. Hér er því mikið verk að vinna, að finna leiðir til að fullnægja þörfinni í þessum efnum. Á þetta lögðum við sjálfstæðismenn áherslu við myndun ríkisstjórnarinnar. Við sjálfstæðismenn lögðum áherslu á að markvisst yrði unnið að þessum málum og í starfsáætlun ríkisstjórnarinnar segir um fjölskyldu- og jafnréttismálin, með leyfi forseta:
„Unnið verður að því að treysta stöðu fjölskyldunnar með markvissri fjölskyldustefnu, fyrst og fremst með velferð barna fyrir augum.
Í samráði við samtök vinnumarkaðarins og sveitarfélög verður leitast við að taka meira tillit til þarfa fjölskyldunnar og þess að foreldrar beri jafna ábyrgð á börnum sínum, m.a. með sveigjanlegum og styttri vinnutíma og bættri dagvistarþjónustu.
Átak verður gert til að koma á jafnrétti kvenna og karla með sérstakri áherslu á launajafnrétti. Störf kvenna hjá hinu opinbera verði endurmetin. Við þetta endurmat verði m.a. höfð hliðsjón af mikilvægi umönnunar- og aðhlynningarstarfa og starfsreynslu á heimilum.
Launastefna ríkisins sem aðila að kjarasamningum miði að því að bæta kjör hinna tekjulægstu og að endurmeta störf kvenna og stuðla að jafnrétti í launakjörum og hlunnindagreiðslum hjá ríkinu. Jafnframt verði kannað hvernig unnt er að gefa foreldrum færi á að fá launalaust leyfi vegna umönnunar barna þegar sérstaklega stendur á.
Unnið verður samkvæmt framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna.
Í skatta- og lífeyrismálum og almannatryggingum verður tekið meira tillit til heimavinnandi fólks.
Fyrirkomulag dagvistar barna og tilhögun greiðslna fyrir hana verður athugað og í því sambandi verður litið á þátt barnabóta og hvernig þær geti stuðlað að auknum samvistum barna og foreldra.
Lokið verði við endurskoðun framfærslulaga. Aðstaða aldraðra og fatlaðra verður bætt og unnið að því að tryggja þeim jafnrétti í þjóðfélaginu.
Áætlun verði gerð í samráði við sveitarfélög um átak til að bæta heimilisþjónustu og vistunaraðstöðu fyrir aldraða og fatlaða.
Starfsemi Framkvæmdasjóðs fatlaðra verði styrkt samkvæmt fjögurra ára áætlun um framkvæmdir og fjármögnun þeirra. Sérstök áhersla verður lögð á uppbyggingu sambýla fyrir fatlaða og verndaða vinnustaði.“
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra skipaði samstarfsnefnd ráðuneyta um fjölskyldumál á sl. hausti í samræmi við starfsáætlun ríkisstjórnarinnar í fjölskyldu- og jafnréttismálum. Mun nefndin skila skýrslu sinni innan tíðar.
Mér hefur fundist rétt, góðir áheyrendur, að dvelja svolítið við þennan málaflokk til að það sé alveg ljóst að sú ríkisstjórn sem nú situr leggur áherslu á mikilvægi þessara mála og að þeim sé sinnt, t.d. á þann hátt að foreldrum sé gert kleift að sinna störfum utan heimilis sem það vilja en jafnframt sé ekki vanmetinn þáttur þeirra foreldra sem ekki vinna utan heimilis.
Í gær barst okkur skýrsla landlæknis um mannvernd. Í henni er einmitt fjallað um þann vanda sem steðjar að nútímafjölskyldu vegna breyttra aðstæðna hennar. Í þessari skýrslu er fjallað ítarlega um þessi mál og birtar niðurstöður úr athugunum sem gerðar hafa verið, m.a. á lífsháttum og aðbúnaði foreldra og barna. Það er ástæða til að þakka landlæknisembættinu fyrir þessa skýrslu sem undirstrikar mikilvægi þess að standa vörð um hagsmuni fjölskyldunnar, að standa vörð um mannvernd.
Ég minntist hér fyrr í máli mínu á hraðann sem endurspeglast á öllum sviðum þjóðlífsins. Ég vil ljúka þessum orðum mínum með því að koma hér inn á enn einn þátt sem snertir sérhvern einstakling, ungan sem gamlan, og þar með fjölskylduna alla, en það er umferðaröryggið. Umferðaröryggismál eru fyrst og fremst fjölskyldumál.
Foreldrar ungra skólabarna hljóta að láta sig varða hvernig aðstæður eru fyrir börnin að komast milli heimilis og skóla og hvaða ráðstafanir eru gerðar til að tryggja öryggi barnanna í umferðinni. Þeir þurfa að ræða hvernig best sé að bregðast við þeim vanda sem við blasir.
Það hafa orðið alvarleg slys í umferðinni hér að undanförnu, þar sem ungt fólk á í hlut, vegna hraðaaksturs á götum borgarinnar. Ungir sem aldnir verða að hafa það í huga að bifreiðin er ekki leiktæki heldur samgöngutæki til að komast á milli áfangastaða. Hraðaakstur eiga menn aðeins að stunda á sérstökum svæðum til þess gerðum. Með því að sýna gagnkvæma tillitssemi í umferðinni er oft hægt að koma í veg fyrir að ferð sem fara átti á fund gleðinnar endi á fundi sorgarinnar.
Hinn 1. mars sl. tóku nýju umferðarlögin gildi og nú stendur yfir þjóðarátak í umferðaröryggi. Nauðsynlegt er að hafa það hugfast að ekki er nóg að stjórnvöld eða aðrir utanaðkomandi aðilar geri sínar ráðstafanir til að draga úr slysum eða slysahættu. Meginmálið er að við öll, hvert og eitt sem ferðumst í umferðinni, ökumenn sem aðrir vegfarendur, sameinumst um að sýna hvert öðru tillitssemi. Sýnum gott hjartalag á vegferðinni.