03.05.1988
Sameinað þing: 76. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7253 í B-deild Alþingistíðinda. (5291)
Almennar stjórnmálaumræður
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Á eldhúsdegi Alþingis er bæði litið til baka og reynt að horfa fram á veginn. Við sjáum að sumt hefur gengið vel að undanförnu, annað ekki sem skyldi. Þar er bæði um að kenna orsökum sem við getum ekki haft áhrif á, eins og gengislækkun dollars, og einnig því að ekki hefur nægilega fljótt verið á réttan hátt brugðist við breyttum aðstæðum. En viðhorf eru að breytast með sívaxandi hraða. Það á ekki síður við um landbúnaðinn en á öðrum sviðum.
Í öllum löndum í kringum okkur hefur framleiðslugetan vaxið miklu meira en þarfir markaðarins. Því hefur þar verið gripið til margvíslegra skipulagsaðgerða um leið og fjárveitingar til landbúnaðar, uppbætur og niðurgreiðslur og ýmis önnur framlög eru t.d. um 70% af fjárlögum Evrópubandalagsins. Þessum þjóðum og stjórnendum þeirra er ljóst að óheft samkeppni og skipulagsleysi hefur í för með sér óbætanlegt tjón og ringulreið.
Með setningu búvörulaganna og framkvæmd þeirra hefur tekist hér að ná mikilvægum árangri. Jafnvægi er að nást í flestum greinum búvöruframleiðslunnar og sala mjólkur og mjólkurafurða fer reyndar svo vaxandi að þar virðist vera komið yfir örðugasta hjallann. Þá söluaukningu má þakka samræmdum aðgerðum landbrn. og Stéttarsambands bænda og góðu skipulagi mjólkuriðnaðarins undir forustu Osta- og smjörsölunnar sem stöðugt vinnur að fjölbreyttari framleiðslu úrvalsvara sem njóta þeirrar almennu viðurkenningar að slíkar sé hvergi betri að fá.
Lengri tíma tekur að ná þessu markmiði í kindakjötsframleiðslunni. Bæði var birgðavandinn þar miklu meiri þegar lögin gengu í gildi og bústofnsfækkun leiðir til meiri slátrunar og framleiðslu meðan hún stendur yfir. En samið hefur verið við mörg hundruð bændur um fækkun sauðfjár vegna búháttabreytinga og riðuniðurskurðar.
Í haust verður samið um lokaáfangann við útrýmingu á riðu sem er grundvöllur fyrir framtíð íslenskrar sauðfjárræktar. Í búrekstrinum hefur tekist að ná ýmiss konar hagræðingu sem m.a. hefur leitt til mikils samdráttar á innflutningi rekstrarvara.
Í sambandi við búháttabreytingu er skógrækt og gróðurvernd ofarlega á blaði, en frv. til nýrra laga um skógvernd og skógrækt liggur nú fyrir Alþingi.
Að gerð og framkvæmd búvörusamninganna hafa landbrn. og fjmrn. unnið fyrir hönd ríkisins með nánu samstarfi. Við þetta mikla átak sem gera þurfti í framleiðslumálunum var lögð áhersla á að verja afkomu bænda áföllum eins og frekast var kostur. En jafnframt hefur verið stutt við uppbyggingu nýrra atvinnugreina og á það lögð vaxandi áhersla.
Fiskeldi er að byggjast upp víðs vegar um landið og sífellt fleiri bændur taka þátt í því, enda vaxa möguleikarnir á því sviði með aukinni þekkingu, eins og nú er unnið að með bleikjueldi.
Loðdýraræktin varð fyrir áfalli á þessum vetri vegna verðhruns á refaskinnum auk annarra slæmra ytri skilyrða. Við slíkum verðsveiflum á uppboðsmarkaði má að sjálfsögðu alltaf búast og því er stuðningur óhjákvæmilegur þegar um er að ræða nýja atvinnugrein. Í því sambandi hefur verið lögð áhersla á hagræðingu og endurskipulagningu fóðurstöðvanna og mun það treysta rekstrargrundvöll þessarar búgreinar á komandi árum.
Nauðsynlegt er að vinna að hagræðingu og skipulagningu í öllum greinum atvinnulífsins til að draga úr kostnaði. Að því er unnið hjá vinnslustöðvum landbúnaðarins, en ýmsar þeirra eiga nú í rekstrarerfiðleikum, m.a. vegna minnkandi framleiðslu. Meginástæðan fyrir þeim erfiðleikum er þó tvímælalaust sú sama og í öðrum framleiðslugreinum, þ.e. stóraukinn rekstrarkostnaður sem á rætur að rekja til þenslunnar á höfuðborgarsvæðinu á s.l. ári. Af henni leiddi vaxandi verðbólga sem hafði í för með sér tvöföldun vaxta og mikla hækkun á öðrum liðum. Slíkt getur ekki gengið þegar útflutningsverð hækkar ekki eða fer jafnvel lækkandi eins og nú á síðustu vikum.
Þær greinar sem framleiða fyrir innlendan markað eiga í harðnandi samkeppni við ódýran innflutning. Að vísu heyrist því haldið fram að mikill gróði sé fyrir þjóðina að ódýrum innflutningi á kostnað innlendrar framleiðslu víðs vegar um landið. En hvaða verði verður þessi ódýri innflutningur raunverulega greiddur að lokum þegar þjóðinni tekst vonandi á komandi árum að vinna fyrir nægum gjaldeyri til að greiða með vöxtum og vaxtavöxtum erlendu lánin sem nú verður að taka til kaupanna?
Fleira þarf að taka með í reikninginn. Hér í umræðunum eins og á undanförnum vikum hefur verið rætt um bruna suður í Róm. En fleira gerðist forðum í þeirri borg. Til að fá lýðhylli lét keisarinn útdeila ódýru korni og brauði. Þess var aflað með því að láta greipar sópa um skattlöndin. Afleiðing þeirrar stjórnsýslu varð sú að stuðningur frá skattlöndunum þvarr og að lokum féll Róm líka.
Þannig má ekki vegna skammsýni og skilningsleysis fara fyrir íslensku dreifbýli og höfuðborgarsvæðinu vegna offjárfestingar í verslunarhúsnæði og fleiri röngum athöfnum. En þróun sem áður tók áratugi eða aldir getur nú gerst á nokkrum vikum eða mánuðum. Af þeim sökum er nauðsynlegt að þeir sem ábyrgðina bera fylgist vel með ef einhvers staðar ætlar að síga á ógæfuhliðina og breyti um vinnubrögð þegar með þarf til að koma málum í viðunandi horf. Það er skylda allra að benda á það sem betur þarf að fara.
Það er sagt að okkur varði sífellt meir gangur mála hvar sem er í heiminum. Hversu miklu frekar róum við Íslendingar þá ekki allir á sama báti? Það þarf að hafa vel í huga við þær ákvarðanir sem flestir eru sammála um að óhjákvæmilegt sé að taka nú á næstu vikum. Jafnframt þurfum við að muna að fjármagnið á að vera til nota fyrir atvinnulífið og fólkið í landinu. Þess vegna þurfum við traust og öflugt bankakerfi sem láti hagsmuni þess sitja í fyrirrúmi en komi í veg fyrir starfsemi sem minnir á spilamennsku, því að reynslan sýnir að þar eru spilaborgir fljótar að hrynja.
En þrátt fyrir mikilvægi fjármagns og efnahagslífs megum við ekki gleyma að fleira er verðmæti sem miklu máli skiptir. Á mörgum sviðum erum við betur sett en flestar aðrar þjóðir ef við berum gæfu til að standa saman um að nýta tækifærin og gleymum því ekki að af landinu og í landinu lifum við en ekki í einhverjum tilbúnum heimi, hvort sem hann er kallaður fjármálaheimur eða eitthvað annað.