03.05.1988
Sameinað þing: 76. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7264 í B-deild Alþingistíðinda. (5296)
Almennar stjórnmálaumræður
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Góðir tilheyrendur. Við höfum nú haft hér í kvöld í annað sinn á stuttum tíma umræðu sem er útvarpað og sjónvarpað inn á hvert heimili í landinu. Væntanlega er þjóðin nokkru nær — eða hvað? — með það sem við erum að bauka hér daginn út og daginn inn sem skipum þessa virðulegu stofnun.
Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með umræðunum hér í dag og alveg sérstaklega þeirri staðreynd hvernig talsmenn stjórnarflokkanna hafa í rauninni allir reynt að fara fram hjá staðreyndum íslensks þjóðlífs um þessar mundir sem eru stórfelld stéttaátök, stéttaátök sem eru miklu harkalegri en maður hefur séð mjög lengi í þessu landi.
Í umræðunum í dag hefur því að vísu ekki verið haldið fram að stéttabaráttan sé úr sögunni, en það er vinsæl klisja formanns Sjálfstfl. sem hann hefur endurtekið aftur og aftur í umræðum á undanförnum mánuðum og missirum. En það er ekki von að hann dragi upp þessa yfirlýsingu núna þegar þess er gætt að mjög hörð stéttaátök eiga sér stað.
Ég vil nota þetta tækifæri hér, herra forseti, til að mótmæla þeirri aðför að verslunarfólki sem hefur birst undanfarna daga. Ég mótmæli því hvernig farið hefur verið með sáttatillögu gegn þessu fólki, ég mótmæli lagaákvæðunum sem notuð hafa verið gegn verslunarfólki. Það eru lagaákvæði sem verður að breyta. Ég mótmæli því harðlega hvernig fyrirtæki forustumanna Vinnuveitendasambandsins hafa verið notuð markvisst gegn láglaunafólkinu í verslunarmannafélögunum hvort sem þau heita Flugleiðir, Eimskip, BM Vallá eða Hólagarður. Ég mótmæli því sérstaklega að jafnvel samvinnufyrirtæki séu orðuð við atlöguna að verslunarfólki í þessu landi. Og ég mótmæli því mjög harðlega hvernig það hefur birst síðustu sólarhringa að Vinnuveitendasambandið hótar að setja þau fyrirtæki í afgreiðslubann sem leyfa sér að fallast á að hækka lægstu laun upp í 42 þús. kr. Þessari bannfæringarstefnu mótmælir Alþb. harðlega. Og við mótmælum því sérstaklega að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar, Framsfl. og Alþfl. er beitt í þessari kjaradeilu gegn þessu fólki í verslunarmannafélögunum.
Hvernig stendur á því að þessi kjaradeila er komin upp? Ástæðan er auðvitað sú að það er ríkjandi reiði, réttlát reiði í öllu landinu, meðal allra launamanna gegn þeirri stefnu misréttis og ranglætis sem núverandi ríkisstjórn fylgir. Þessi uppreisn birtist okkur á landsbyggðinni. Þessi uppreisn birtist okkur meðal launamanna. Hún er gegn vaxtaokrinu, hún er gegn peningafrelsinu, hún er gegn matarsköttunum sem hafa verið lagðir á hér á þessu ári. Og svo koma þessir þingmenn stjórnarflokkanna í halarófu hver á fætur öðrum upp í ræðustólinn í þessari virðulegu stofnun og þykjast hvergi hafa komið nærri, gagnrýna stjórnarstefnuna harðlega og kalla hana helstefnu eins og ritari Sþ. mér á vinstri hönd, en greiða svo atkvæði gegn vantrauststillögu á ríkisstjórnina sem fylgir helstefnunni.
Tvöfeldnin, margfeldnin og hræsnin hefur verið megineinkenni Framsfl. í gegnum söguna, en nú hefur Framsfl. öðlast keppinaut, keppinaut þar sem er Alþfl. og stendur framsókn víða á sporði í hræsni, tvískinnungi, að ég segi ekki ómerkilegheitum í málflutningi gagnvart kjósendum þessa lands.
Efnahagsstefnan er að sigla öllu í strand, segir landbrh., í grein í Tímanum í dag. Róm brennur, segir Steingrímur Hermannsson. Það er allt í sæmilegu lagi, segir hins vegar Páll Pétursson, nema byggðamálin, efnahagsmálin og atvinnumálin. Að öðru leyti allt í fínu lagi, en þessi smámál í dálitlu ólagi. Staðreyndin er auðvitað sú að Framsfl. ber ábyrgð á þessu öllu saman, vaxtaokrinu í landbúnaðinum sem er framkvæmt með samþykki Jóns Helgasonar, vaxtaokrinu í sjávarútveginum sem er samþykkt og framkvæmt með stuðningi Halldórs Ásgrímssonar. Auðvitað ber framsókn þarna alla ábyrgð.
Og Alþfl. Hvað hefur hann gert? Hefur hann leyst stórkostlegan vanda, Alþfl., sem allt í einu þykist vera orðinn ábyrgur eftir ræðu hv. þm. Eiðs Guðnasonar? Hvað hefur Alþfl. leyst? Hafa biðlistarnir hjá Húsnæðisstofnun styst? Hefur efnahagsvandinn á láglaunaheimilunum minnkað? Hefur verið lagður skattur á hátekjumenn og stórfyrirtæki og gróðaaðila? Nei. Á hverja hefur verið lagður skattur? Matarskattur á alþýðuheimilin í landinu. Þetta er ekki jafnaðarstefna.
Og Sjálfstfl. Það má segja að út af fyrir sig hafi stefna hans víða verið í framkvæmd í tíð núverandi ríkisstjórnar, en þó hygg ég að yfirlýsingar hans fyrir kosningar um að ekki verði lagðir á hærri skattar þyki nokkuð sérkennilegar í dag. Andspænis þessari stefnu er okkar stefna, alþýðubandalagsmanna, sem höfum flutt hér á Alþingi tillögu um launajöfnun, um hækkun lægstu launa, um samstöðu með samtökum launafólks, um nýja skattastefnu, um nýja byggðastefnu og jöfnun lífskjara, styttri vinnutíma, frumkvæði Íslands í utanríkis- og umhverfismálum sem birtist í tillöguflutningi um ýmsa málaflokka sem hafa verið raktir fyrr í dag.
En nú á að reka þingið heim. Nú á að hafna þeirri stefnu og þeirri umræðu sem hér getur farið fram. Nú gæti nefnilega farið svo að næstu daga mundi einhver Ólafur Þ. Þórðarson enn þá rísa upp úr stjórnarliðinu og segja: Nei takk, þegar ríkisstjórnin fer að taka ákvarðanir um aðgerðir í efnahags- og kjaramálum. Það er verið að reka þingið heim, herra forseti, vegna þess að ríkisstjórnin ætlar að losa sig við stjórnarliða til að geta beitt þeim ráðstöfunum, afturhaldsráðstöfunum, sem hún hefur í undirbúningi í kjaramálum og efnahagsmálum.
Því hlýtur stjórnarandstaðan að mótmæla, mótmæla því mjög harðlega hvernig ríkisstjórnin ætlar með þessum hætti að lítilsvirða þingið. Þess vegna mun umræða halda áfram þó þinginu verði frestað. Vantrauststillögunni verður vísað til þjóðarinnar allrar.