04.05.1988
Efri deild: 87. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7279 í B-deild Alþingistíðinda. (5309)
389. mál, veiting ríkisborgararéttar
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég er samþykkur þeim brtt. við frv. um veitingu ríkisborgararéttar sem hv. allshn. hefur gert. Ég mun fúslega verða við þeim tilmælum, sem hv. formaður allshn. beindi til mín, að taka þátt í samtali í sumar með formönnum allshn. beggja deilda þingsins og starfsmönnum Alþingis um endurskoðun á þeim viðmiðunarreglum sem þingið hefur fylgt við veitingu ríkisborgararéttar. Þetta er áreiðanlega mjög gagnlegt, m.a. af því að frá því þessar reglur voru mótaðar með áliti allshn. í maí 1978 hafa verið sett ný lög um ríkisborgararétt sem tóku gildi árið 1982.
Á vegum dómsmrn. er nú unnið að því að Íslendingar gerist aðilar að samkomulagi Norðurlanda um gagnkvæman rétt til ríkisborgararéttinda í löndunum fimm. Þar er um að ræða reglur sem reyndar eru mjög nærri þeim sem allshn. þingsins hafa fylgt. Þá stendur nú yfir á vegum Evrópuráðsins endurskoðun á samningi Evrópuríkjanna frá árinu 1963 um tvöfaldan ríkisborgararétt. Allt þetta gerir það að verkum að undirbúningsstarf eins og hv. formaður allshn. þessarar deildar gerði hér að tillögu sinni er mjög tímabært og þarft.