04.05.1988
Efri deild: 87. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7280 í B-deild Alþingistíðinda. (5312)

446. mál, Listasafn Íslands

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Ég læt í ljós ánægju yfir frv. til l. um Listasafn Íslands sem hér kemur nú til 1. umr. eftir að hafa fengið meðferð í hv. Nd. Ég tel að það sé mjög mikilvægt ákvæði sem er í 4. gr. frv. þar sem gert er ráð fyrir því að forstöðumaður Listasafns Íslands verði ráðinn til takmarkaðs tíma. Þetta er stefna sem var mótuð við afgreiðslu laganna um Þjóðleikhúsið á sínum tíma og hefur einnig verið tekin upp varðandi ýmsar aðrar opinberar stofnanir eins og t.d. bankana, viðskiptabanka í eigu ríkisins, þó að þar séu enn þá vissar takmarkanir. Ég tel reyndar einnig að sama regla ætti að gilda t. d. um útvarpsstjóra og fleiri forstöðumenn opinberra stofnana. Ég tel að hér sé um að ræða skynsamlega stefnu sem ætti að koma víðar við og álitamál, spurning hvort stefna af þessum toga á ekki einnig heima t.d. í lögum um framhaldsskóla þannig að um sé að ræða eðlilega endurnýjun á forstöðumönnum þeirra mikilvægu stofnana sem þau lög munu þegar þar að kemur kveða á um.

Ég tel að það sé mjög mikilvægt í þessu sambandi að mál þetta hefur fengið undirbúning í röðum myndlistarmanna og Samband ísl. myndlistarmanna hefur komið við sögu við meðferð málsins. Ég bendi á að þingmenn Alþb. fluttu á síðasta og næstsíðasta þingi till. til þál. um starfskjör myndlistarmanna þar sem var komið inn á málefni Listasafns Íslands. Sú till. var byggð á niðurstöðu myndlistarþings sem haldið var á árinu 1985. Ég tel að þetta frv. sé skref á þeirri braut sem gerð var tillaga um í þeirri till. til bál. þó að hún hlyti ekki afgreiðslu Alþingis með endanlegum hætti.

Ég vildi láta þessa skoðun í ljós, virðulegi forseti, og ég vil einnig fagna því ákvæði sem fram kemur í 2. mgr. 12. gr., sem Nd. bætti inn í frv., varðandi það að heimilt er að lána önnur listaverk til tiltekinna opinberra stofnana sé meiri hluti safnráðs því samþykkur. Ég hygg að það sé eðlilegt hins vegar að fara sparlega með þessa heimild, en þó hygg ég að það hafi verið stundum fullsparlega gengið um götur að því er varðar þessar almennu starfsheimildir Listasafnsins á undanförnum árum. Í þessu sambandi er auðvitað vert að íhuga hvernig staða opinberra stofnana er almennt í sambandi við listaverk. Það eru reknar í landinu stórar og þýðingarmiklar opinberar stofnanir án þess að listaverk svo að segja sjáist þar. Skýrt dæmi um það er stofnun sem ég þekki pínulitið til í seinni tíð og heitir Ríkisspítalarnir, stofnun sem veltir um 4 þús. millj. kr. á þessu ári og er með liðlega 2000 manns í vinnu. Þangað koma fleiri þúsund Íslendingar á hverju ári. Veggir þeirrar stofnunar eru býsna fátæklegir að listaverkum að ekki sé fastar að orði kveðið. Mætti í því sambandi hefja hér ef menn vildu umræðu um Listskreytingasjóð og hvernig hann hefur verið leikinn á undanförnum árum. Það verður þó ekki gert af minni hálfu heldur ítrekað að ég fagna frv. og ég tel að hér sé stigið skref á þeirri braut sem myndlistarþing 1985 markaði með samhljóða atkvæðum.