04.05.1988
Efri deild: 87. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7283 í B-deild Alþingistíðinda. (5319)
228. mál, framleiðsla og sala á búvörum
Frsm. landbn. (Egill Jónsson):
Virðulegi forseti. Ég er að sjálfsögðu afar þakklátur forseta fyrir að þetta mál skuli geta gengið til umræðu með sæmilega eðlilegum hætti. Það var útlátalaust fyrir mig að fallast á að nokkur ágreiningslaus mál yrðu tekin til afgreiðslu áður en kæmi að þessu máli. Ég hef hins vegar ekki samið um neitt annað í þeim efnum, hvorki tímalengd fyrir mig né aðra hv. þm. sem ég hef að sjálfsögðu ekki heldur nokkurn einasta rétt til.
Nál. landbn., sem hér liggur frammi, er að því leyti afar skýrt að undir það hafa skrifað allir nefndarmenn landbn. Ed. Alþingis og allir nema tveir með fyrirvara. Það hlýtur að vekja nokkra eftirtekt hvað þetta sanngjarna mál hefur átt erfitt uppdráttar í þinginu og mun ég koma nokkuð að því síðar.
Það má vera að ástæða fyrir því sé m.a. sú að það virðist ekki vera sérstaklega vinsælt meðal þings og þjóðar að fjalla um málefni atvinnuveganna í landinu, enda vitað hvernig hag þeirra er komið og á þetta þó alveg sérstaklega við landbúnaðarmálin. Eins og við vitum hefur fólki fækkað í sveitum landsins en fjölgað annars staðar. Atkvæðin hafa flust til. Þessar breytingar hafa átt sinn þátt í að skapa neikvæð viðhorf gagnvart íslenskum landbúnaði í þéttbýlinu.
Það má líka minna á að þegar þessi málaflokkur hefur fengið umfjöllun á Alþingi er það einkum í þeim tilvikum að mál hafi snert bændur landsins með neikvæðum hætti. Þetta átti sér býsna oft stað á síðasta kjörtímabili, t.d. þegar gefnar voru út reglugerðir um stjórn búvöruframleiðslunnar sem auðvitað höfðu ýmsa annmarka. Þá stóð ekki á því að fjalla um þau mál t.d. utan dagskrár í Sþ. Menn minnast þess kannski líka að þá glottu sjónvarpsvélar í hverri gátt og þá fékkst tilvalið tækifæri fyrir áhugasama þingmenn að láta fréttir berast af því hvernig afstaða þeirra væri til málefna landbúnaðarins. Það gilti einu í þessum efnum hvort í hlut áttu stjórnar- eða stjórnarandstöðuþingmenn.
Nú hefur mér hins vegar fundist að þessi umræða væri býsna mikið að breytast. Það er búið að taka margar erfiðar og stórar ákvarðanir í málefnum landbúnaðarins á síðustu árum og landbúnaðurinn er með undraverðum hætti búinn að aðlaga sig að þeim breyttu aðstæðum. Og auðvitað ætti það að vera eins með stjórnmálamennina, það hlýtur að vera eðlilegt að ætlast til þess að þeir hafi líka metið aðstæður þótt annað hafi komið á daginn eins og ég mun síðar víkja að. Það var m.a. af þessum ástæðum sem ég flutti þetta sanngjarna mál á Alþingi og hefði raunar ekki búist við öðru en það gæti gengið greiðlega í gegnum þingið og yrði lögfest. Ég er að þessu leyti reynslunni ríkari og ég hygg líka að það megi segja almennt um bændur landsins að þeir geti nokkuð lært af þessari niðurstöðu. Vert er að minna á að þegar málið kom til 1. umr. hlaut það góðar undirtektir allra þeirra sem um það fjölluðu. Mér er m.a. sérstaklega í minni að landbrh. byrjaði ræðu sína og lauk henni einnig með því að lýsa því yfir að þarna væri um sanngirnismál að ræða. Mál hans varð ekki öðruvísi skilið en hann teldi eðlilegt að málið næði fram að ganga. Það var eins við þá umfjöllun sem fór fram um málið í þingnefnd. T.d. voru þær umsagnir sem bárust frá öllum þeim aðilum sem fengu það til umsagnar jákvæðar nema frá sláturleyfishöfum. Þeirra umsögn var neikvæð og mun ég víkja að því síðar. En búnaðarþing, Stéttarsamband bænda, Framleiðsluráð landbúnaðarins og Samband sauðfjárbænda, allir þessir aðilar lýstu yfir stuðningi við málið.
Þegar betur er að gáð kemur líka í ljós að hér er einungis verið að fjalla um réttindi sem þessi búgrein hefur átt síðan búvörulögin voru sett á vordögum árið 1985. Þau lög fólu í sér ýmsar framleiðslutakmarkanir í landbúnaði. Það voru lagðar ýmsar byrðar og skyldur á bændur landsins, en þeir fengu líka tiltekin réttindi aftur á móti. Þau mikilvægustu voru að þær búvörur sem heimilt er að framleiða innan fullvirðisréttar verða greiddar bændum, staðgreiddar eins og það hefur verið kallað. En með því að ekki lá fyrir hvernig þeim málum yrði fyrir komið að því er varðaði sauðfjárræktina var ekki tekinn upp sami háttur þar og varðaði mjólkurframleiðsluna en gefið svigrúm til uppgjörs þannig að 15. des. var valinn sem uppgjörsdagur fyrir sauðfjárafurðir. Nú hefur hins vegar fengist reynsla í þessum efnum og með síðustu reglugerðarbreytingu sem hefur verið gefin út að tilhlutan landbrh. er þessi framkvæmd enn þá auðveldari og þar með liggur að sjálfsögðu beint við að koma þessu mikilvæga hagsmunamáli fram.
Þetta eru allt saman óyggjandi staðreyndir, að samkvæmt frv. er einungis verið að fá sauðfjárbændum þau réttindi sem þeir eiga en af tæknilegum ástæðum hefur ekki verið hægt að koma í framkvæmd fyrr en nú.
Frá því að ég tók sæti á Alþingi man ég ekki eftir máli sem er jafnsjálfsagt og sanngjarnara en þetta mál að þessu leyti og auðvitað eru þau rök sem ég hef hér lagt fram fullnægjandi skýringar og meira en það. En með því hvað málið hefur átt erfiðan framgang hér í þinginu og líka vegna þeirra fyrirvara sem komu fram í umsögnum, þótt þær séu að öðru leyti jákvæðar, og enn fremur líka vegna þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað a.m.k. sums staðar í þjóðfélaginu hefur mér þótt eðlilegt að sanna niðurstöðu þessa máls.
Í frv. sem ég lagði fram var með skýrum og ótvíræðum hætti sýnt fram á að afurðastöðvar hafa fengið fullnægjandi fyrirgreiðslu til að gera þeim kleift að standa við lagaákvæði um staðgreiðslu búvara. Samkvæmt grg. sem fylgdi frv. kemur fram að einungis vanti 5% á að staðgreiðslu- og afurðalán mæti öllum kostnaði við sauðfjárframleiðsluna á heildsölustigi. Þess hefur hins vegar orðið vart að menn tóku ekki mark á þessari niðurstöðu þrátt fyrir þessar skýru álitsgerðir. Af þeirri ástæðu leitaði ég eftir því hvernig þessum málum væri háttað eftir að uppgjör fór fram. Með bréfi til formanns framkvæmdanefndar um búvörusamninga leitaði ég eftir upplýsingum um niðurstöðu þessara mála. Bréf mitt er birt sem fskj. og svarið við því frá Guðmundi Sigþórssyni, skrifstofustjóra landbrn. Þar var aflað upplýsinga frá bönkunum um hver upphæð afurðalána hefði verið. Jafnframt var fengin staðfesting á því hverjar hefðu verið greiðsluskyldur sláturleyfishafa. Niðurstaðan byggist því á rauntölum sem ég trúi varla að menn treysti sér að hnekkja. Þá kemur það í ljós að einungis skortir á 5% að afurða- og staðgreiðslulánin hefðu sl. haust valdað allar greiðslur á heildsölustigi. Eins og fram kemur í grg. með frv. fellur ekki allur kostnaður sláturleyfishafa til í sláturtíð og þar af leiðandi hefur þessi fyrirgreiðsla nægt til að greiða allan áfallinn kostnað bæði við slátrun og líka til að standa skil á fullum greiðslum til bændanna. Ég veit ekki hvernig á að fara að því að sanna mál, sanna niðurstöðu í máli ef það er ekki gert með þessum hætti.
Það hefur blandast inn í þessa umræðu að af þessari breytingu mundi hljótast aukinn kostnaður sem ríkissjóður þyrfti að standa skil á. Í þessu sambandi vitna ég til fskj. II þar sem Sigurður Þórðarson vararíkisendurskoðandi fór yfir þennan þátt málsins og sýnir þar að sá voðalegi kostnaður muni nema 20 millj. kr. Auðvitað er þetta hárrétt miðað við framleiðslumagn sláturafurða sl. haust. Hins vegar, ef tekið er tillit til þess hvað fjárþörfin minnkar að því er staðgreiðslulánin varðar vegna minni framleiðslu, kemur í ljós að á milli ára verður trúlega sáralítill eða enginn aukakostnaður þótt þessi skipan mála yrði upp tekin, lítill eða enginn kostnaður sem af þessu leiddi á milli ára. Ástæðan fyrir því er sú að sauðfjárframleiðslan á næsta hausti, miðað við þann fullvirðisrétt sem í gildi er, verður verulega miklu minni en á sl. hausti og auk þess hefur fjárþörf fyrir staðgreiðslulán einnig minnkað við mjólkurframleiðsluna vegna betri markaða.
Hér að framan hef ég sannað tvö grundvallaratriði í þessum efnum. Annars vegar að fjármagnsfyrirgreiðsla hefur verið fullnægjandi og að af þessari breytingu milli ára muni ekki leiða aukinn kostnað. (SkA: Má ég benda ræðumanni á að hér er komin tillaga frá forsrh. um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar?) Aftur get ég sagt að þetta séu fullnægjandi skýringar, en mér þykir samt vert að rökstyðja málið enn frekar.
Það er sérstök ástæða til að minnast á hvernig búskaparhættir hafa verið að þróast síðustu árin og þá einnig vegna þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað í þinginu síðustu daga. Ég hefði nú gjarnan viljað, virðulegur forseti, að hæstv. viðskrh. yrði viðstaddur meðan ég fjalla um þann þátt mála. (Forseti: Ég mun gera ráðstafanir til þess að ná í hæstv. viðskrh.)
Nú er það svo, eins og ég sagði áðan, að fyrir hendi er ákveðin andstaða gegn þessu máli og óttast ég að hún hafi náð inn í samstarfsflokkinn, Framsfl. Menn minnast þess væntanlega þegar því var neitað að greiða bændum 15. des. eins og lög mæla fyrir um. Síðan hefur það skeð, sem er náttúrlega afar óvænt í þessu máli, að forustan hjá sláturleyfishöfum hefur gert sérstakar ráðstafanir til þess meðal sinna manna .. . (Forseti: Má ég aðeins segja hv. ræðumanni frá því að hæstv. viðskrh. mun vera í ræðustóli í Nd., en ég hef gert ráðstafanir til þess að biðja hann að koma hingað eins fljótt og hann getur.) Hafðu þökk fyrir það, virðulegur forseti. — að bændur fengju ekki lögboðnar greiðslur 15. mars. M.a. hef ég máli mínu til stuðnings símskeyti sem sent hefur verið öllum sláturleyfishöfum og mér finnst ástæða til að festa hér í þingtíðindi sem sögulegt plagg, með leyfi virðulegs forseta:
„Stjórn Landssamtaka sláturleyfishafa beinir þeim tilmælum til meðlima sinna að greiða ekki verðhækkun þá sem greiða átti 15. mars fyrr en greiðsla vaxta og geymslugjalds verður færð í fyrra horf eða sambærilegar ráðstafanir gerðar.“
Fyrir hönd stjórnar sláturleyfishafa undirrita þetta símskeyti tveir þekktir framsóknarmenn, Ólafur Sverrisson og Þorsteinn Sveinsson.
Það er víða róið í þessum efnum og að sjálfsögðu er það mikið áhyggjumál þegar á að brjóta lögin í þessu landi með hótunum af þessum toga. E.t.v. er þetta ein skýring þess hvað málið hefur átt erfitt uppdráttar því að mikið má vera ef það eru ekki einhverjir fleiri sem hafa fengið skeyti frá Ólafi Sverrissyni og Þorsteini Sveinssyni en bara sláturleyfishafar.
Það vekur líka athygli í þessum efnum að hlutur sláturleyfishafa hefur ekki verið fyrir borð borinn og það er reyndar eitt af því sem er sannað í nál. því að það kemur þar í ljós að greiðslur til sláturleyfishafa eru óbreyttar, rétt tæpur milljarður, allan síðasta áratug og gildir þar alveg einu hver framleiðslan hefur verið. Þeir hafa fengið sína reikninga borgaða, enda eins og kemur líka fram í meðfylgjandi gögnum hefur heildsölukostnaður í þessari grein hækkað um 25% á síðustu árum. Það er þess vegna mikil ástæða til að minna á að þeir ættu að reyna að leysa sinn vanda með öðrum hætti en þeim að afhenda ekki lögbundnar greiðslur til bænda á réttum tíma.
Menn verða líka að athuga það, og ég held að það sé mál sem verðlagsstjóri þarf að kanna betur hér eftir en hingað til, hvernig sláturkostnaðurinn er saman settur og hvernig hann er til kominn. Það eru fleiri not af þeim húsum en bara vegna sauðfjárslátrunar. Ég er alveg sannfærður um að sú framleiðslugrein er að of stórum hluta látin bera uppi þann kostnað.
Þegar litið er til annars kostnaðar í verðmyndun sauðfjárafurða á síðustu árum kemur í ljós að þar hefur orðið mikil breyting til ófarnaðar t.d. í sambandi við smásöluálagningu. Svo ég minni enn á það sem kemur fram í nál. er niðurstaðan sú að verðlag á þessari vöru hefur hækkað um 26% á síðustu árum. Í nál. er líka á það bent að slík hækkun muni þegar hafa valdið markaðstapi sem nemur 1/10 af innanlandsmarkaðnum. Það hefði vissulega verið mikil ástæða fyrir hæstv. viðskrh. að athuga þessa hluti, ekki síst vegna þess að það er ekki langt um liðið frá því að hann sat í forustu fyrir Þjóðhagsstofnun, sem hefur að sjálfsögðu miklu hlutverki að gegna, og þaðan er vissulega að fá margar og góðar upplýsingar.
Ég hef minnst á þennan hæstv. ráðherra alveg af sérstöku tilefni, en í vantraustsumræðunni hér á dögunum komst hæstv. ráðherra þannig að orði: „Auðvitað hefði verið æskilegt að ná líka nokkurri lækkun útgjalda til annarra þarfa en velferðarmála almennings, sérstaklega að hætta að ausa í þá botnlausu hít sem landbúnaðarútgjöldin eru og verða og að fresta ýmsum framkvæmdum sem þola bið, en um þetta hefur enn ekki náðst samkomulag.“
Þarna er gripið til þess ráðs, sem ég minnti á í upphafi máls míns, að landbúnaðurinn er hafður fyrir blóraböggul til þess að geta kennt honum um að ekki sé nægilega vel séð fyrir velferðarríkinu. Það er annar alvarlegur þáttur í þessari framsetningu. Hinn er svo sá að hér fer ráðherrann ekki með rétt mál. Hér er rangt frá sagt. Það sannar m.a. nál. Og það sem verra er, að í eldhúsdagsumræðum sem fram fóru í gær kemur fram nákvæmlega sama skoðun í ræðu hv. þm. Kjartans Jóhannssonar, en þar segir svo, með leyfi forseta:
„Mikilvægast er þó að stefnumörkun sé sniðin að þjóðhagslegum markmiðum og hag þjóðarinnar allrar. Í þessu sambandi verður ekki hjá því komist að minna sérstaklega á landbúnaðarmálin. Það kerfi sem hirðir milljarða á milljarða ofan ár eftir ár í alls kyns bætur og styrki úr ríkissjóði á sama tíma og sífellt sverfur meira og meira að bændum stenst ekki. Þetta er sóun sem við þolum ekki. Þetta kerfi þjónar ekki hagsmunum bænda og það er andstætt þjóðarhag. Þess vegna verður að leita nýrra leiða. Meðan ekki er náð tökum á þessu fargani verða bæði bændur og ríkissjóður í sífelldri úlfakreppu. Og mín skoðun er sú að hætt sé þá við að hin brýnu viðfangsefni sem ég taldi um hér í upphafi muni áfram sitja á hakanum.“
Eins og menn sjá er hér nákvæmlega sama skoðunin á ferðinni þótt orðalag sé ekki alveg með nákvæmlega sama hætti. Og síðar segir enn fremur og það vekur ekki minni athygli, með leyfi forseta:
„Við erum dugleg að fjárfesta, Íslendingar, í steinsteypu, í verslunarhöllum, í virkjunum, í landbúnaði og í veiðiskipum, svo dugleg að það keyrir atvinnugreinarnar um koll og njörvar þær niður í óhagkvæm og flókin skömmtunarkerfi.“
Nú er að sjálfsögðu afar mikilvægt að fá vitnisburð Þjóðhagsstofnunar um þessi efni, þeirrar stofnunar sem hæstv. viðskrh. hefur stjórnað til skamms tíma. Sumt af því kemur hér fram í nál. en annað ekki. Ef við tölum þá fyrst um fjárfestinguna í landbúnaði, sem Kjartan Jóhannsson talar um með þeirri vandlætingu sem ég hef nú lýst. Hefur hún gengið þannig fyrir sig eins og hv. þm. Kjartan Jóhannsson segir? Nei, það sanna er að á síðustu tíu árum hefur hún minnkað úr 1 milljarði niður í 250 millj. miðað við verðlag 1987. Fjárfesting í landbúnaði er sem sagt 1/4 af því sem hún var fyrir u.þ.b. einum áratug. Og þessar voðalegu jarðræktarframkvæmdir hafa þróast þannig að þar hefur fjárfesting gengið saman úr tæpum 450 millj. kr. frá árinu 1984 og niður í 150 millj. eins og hún er nú. Sannleikurinn er sá að það er orðið áhyggjuefni hvað framkvæmdir eru litlar í hefðbundnum landbúnaði því að þær eru einungis brot af viðhaldsþörfinni.
Mönnum hefur orðið tíðrætt um eyðslu og viðskiptahalla og ég held að það hafi engir talað meira um það en alþýðuflokksmenn, m.a. hæstv. viðskrh. Þar af leiðandi er ástæða til að meta hvaða þátt þessi óhagkvæmi atvinnuvegur á í þeim vanda. Miðað við verðlag síðasta árs hefur innflutningur til landbúnaðarins minnkað um 1/3 á þremur árum. Hann hefur dregist saman um 350 millj. kr. og er nú einungis 1,9% af öllum innflutningi til landsins. Er þetta hítin sem hæstv. viðskrh. er að tala um eða botnlausa skuldasöfnunin sem Kjartan Jóhannsson orðar svo? Ef við förum svo að tala um ríkisútgjöldin, þá hafa þau líka verið að lækka býsna mikið að því er landbúnaðinn varðar. Árið 1982 var hlutur landbúnaðarins rétt í kringum 12% af ríkisútgjöldum að meðtöldum niðurgreiðslum. Þessi tala hafði lækkað um helming þegar kom til ársins 1986. Er þetta botnlausa hítin sem hæstv. viðskrh. er að tala um?
En hvað hefur þá skeð hjá bændunum sjálfum? Ég hef verið að lýsa því hvernig sláturleyfishafarnir hafa bætt sinn hlut. Ég hef einnig verið að lýsa því hvernig smásalarnir hafa bætt sinn hlut í verði sauðfjárafurða. Ég hef ekki heyrt hæstv. viðskrh. tala þar um botnlausa hít. En hvernig er þá háttað rekstrinum í landbúnaðinum? Má ég kannski minna á það sem eðlilega kom fram þegar framleiðslutakmarkanir voru settar, að bændur mundu þá taka laun sín af færri framleiðslueiningum og þar af leiðandi greiddu neytendur í búvöruverðinu svipuð laun og áður.
Nú liggur fyrir hvernig verðlag á landbúnaðarvörum hefur þróast hin síðari ár. Nú liggur fyrir hvort þessar ályktanir og þessar spár hafa gengið eftir. Og hvað kemur þá í ljós? Það sem fyrir liggur er að verðlag á landbúnaðarvörum hefur farið lækkandi hin síðari ár. Verðlag á sauðfjárafurðum hefur þannig lækkað á síðustu árum um 7%. Er þetta sú botnlausa hít, hæstv. viðskrh.? Væri þetta eitt út af fyrir sig ekki nægjanlegt til þess að jafnsanngjarnt og eðlilegt mál og hér er verið að ræða verði samþykkt án þess að um það þyrfti mikið að þrefa?
Í mjólkurframleiðslunni hefur orðið enn meiri verðlækkun. Sú verðlækkun nemur um 20%. Vegið meðaltal af þessum tveimur stærðum er um 14–15% sem er bein verðlækkun á landbúnaðarvörum á síðustu árum. Er þetta hítin sem hæstv. viðskrh. var að tala um?
En hverju skyldi þessi 15% verðlækkun á framleiðsluvörum í krónum talið nema? Þessi tala er einhvers staðar mjög nálægt 1 milljarði kr. Kannski er það einn af þessum milljörðum á milljarða ofan sem Kjartan Jóhannsson er að tala um. Eða er þetta botnlaus hít, hæstv. viðskrh.?
Hér hef ég farið yfir alla efnahagsþætti í íslenskum landbúnaði, alla, og sýnt fram á að kostnaðurinn við landbúnaðinn, þá er ég að tala um framleiðslukostnað, hefur lækkað svo milljörðum skiptir á síðustu árum. Samt raða menn sér hér upp og tala um botnlausa hít. Ætli það væri ekki svolítið öðruvísi umhorfs í þjóðfélaginu ef annars staðar væri gætt jafnmikils sparnaðar, hagsýni og hagræðingar og gert er í landbúnaðinum?
En kannski eru þau ummæli sem ég hef vitnað til, bæði að því er varðar hæstv. viðskrh. og eins fyrrv. formann Alþfl., lýsandi fyrir þá vanþekkingu sem er um þessi málefni, á þeim árangri sem bændur landsins hafa náð. Og vissulega hlýtur fólkinu í landinu að vera vorkunn þegar viðskrh.talar með þeim hætti sem ég hef hér lýst, ekki síst vegna þess að mörg þeirra gagna sem ég hef dregið hér fram koma frá þeirri stofnun sem hann hefur stjórnað til skamms tíma. (Forseti: Má ég vekja athygli hv. ræðumanns á því að nú er klukkan 4 og ráðgerðir þingflokksfundir. Þess vegna vil ég spyrja hv. ræðumann hvort hann hafi lokið máli sínu eða hvort hann vilji gera hlé á máli sínu?) Ég á eftir ótalað í 8–10 mínútur, virðulegur forseti, og skal fúslega gera hlé á ræðu minni. — [Fundarhlé.]
Herra forseti. Þegar héðan var horfið fyrir þingfundarhlé voru það orð hæstv. viðskrh. hér í deildinni, reyndar var það persónulega við mig mælt, að við mundum hittast hér kl. hálfsex. Ég átti sérstakt erindi við hæstv. viðskrh. og ég hef ekki lokið því enn, herra forseti, og ég kann ekki við að tala á bak mönnum. (Forseti: Ég hef þegar gert ráðstafanir til þess að ná í viðskrh. Ég veit að hann er upptekinn, en ég reikna með að hann reyni að koma og ef ræðumaður telur ástæðu til að ég fresti málinu og taki annað fyrir, þá er það möguleiki. En öðruvísi get ég ekki starfað.) Ég hafði líka, herra forseti, heitið því að ljúka máli mínu á tíu mínútum eða skemmri tíma og af þessari ástæðu getur vel verið að tímasetningarnar verði ekki nákvæmar. En það verður að skrifast einhvers staðar annars staðar en á reikning bændanna í þessu landi.
Ég hef nú farið yfir meginatriði í þróun verðlagsþátta í landbúnaðinum og ég hef sýnt fram á með alveg óyggjandi hætti hvernig þau mál hafa skipast á allra síðustu árum. Það sem er hins vegar vert að bæta við er að ekki verður annað séð en að um beina ákvörðun um lækkun vöruverðs hjá landbúnaðinum hafi verið að ræða því þegar gjaldaliðir hans eru metnir kemur í ljós að laun og fjármagnskostnaður hafa minnkað hlutdeild sína í búvöruverðinu, í verðlagsgrundvelli landbúnaðarvara.
Árið 1979 hygg ég að þessir tveir verðlagsþættir hafi numið 64% af verðlagsgrundvellinum, en eru núna komnir niður í 58%. Og það er athyglisvert, ekki síst þegar verið er að tala um botnlausar hítir og óhagkvæma fjárfestingu í landbúnaði, að sá kostnaðarþáttur hefur minnkað hlutdeild sína í búvöruverðinu á síðustu árum. Ég segi og skrifa: Hann hefur minnkað hlutdeild sína í búvöruverðinu á síðustu árum. Ætli það sé ekki býsna mikil sönnun þess að það hafi verið haldið sparlega á í þeim efnum?
Það væri reyndar full ástæða til að tala miklu lengra mál um fjárfestinguna í landbúnaði og þá m.a. meta hvað bændur landsins hafa lagt fram sjálfir og hvernig verðmætin færast á milli ættliða án þess að vera skuldfærð. Ég er ekki óánægður með það fyrirkomulag, en ég segi hins vegar að þeir sem hæst gala um óhagkvæmni fjárfestingar í landbúnaðinum og annað í þessum dúr ættu að kynna sér svolítið betur þau mál.
Nú er það vissulega svo, eins og ég hef reyndar áður sagt hér í þessari umræðu, að það hefur mikið verið lagt á bændur landsins að undanförnu. Ég hef líka sagt frá því hvernig þeir hafa brugðist við því.
Ýmislegt í landbúnaði hefur gengið til betri vegar á síðustu árum og víða eru bændur landsins í sókn. Hins vegar eru vandamál í sauðfjárræktinni. M.a. þess vegna hefði þetta sanngirnismál átt að hafa greiðan gang í gegnum deildina. Verðlagshækkanir og minnkandi niðurgreiðslur hafa valdið því að markaður hér innan lands hefur dregist saman um ca. 1000 tonn og erlendir markaðir tæpast lengur fyrir hendi. Þetta þýðir að í rauninni eru framleiðslumöguleikar í þessari atvinnugrein um það bil fjórðungi minni en þeir voru fyrir örfáum árum. Ef menn fletta upp á súluriti 4 í nál. sést hvernig framleiðslan í þessari grein hefur minnkað. Á árunum 1979 til 1982 var framleiðsla í sauðfjárrækt um 4 milljarðar kr. en á síðustu árum ca. 3 milljarðar. Auðvitað er ekki hægt að horfa fram hjá því að hér er um vandamál að ræða.
Ef betur er að gáð skýrist þetta líka á súluriti 2, og sýnir það að afkoma í sauðfjárrækt er svipuð og hún var fyrir tíu árum. Á sl. hausti var verðlagt eftir ákvæðum nýrra búvörulaga í fyrsta sinn og eins og ég skýri hér í nál. má ætla að það valdi umtalsverðri rauntekjuaukningu í sauðfjárrækt.
Herra forseti. Ég lýk nú senn máli mínu. En mér þykir vert að minna á í lok þessarar umræðu að það verður að sjálfsögðu ekki komist hjá því að líta eftir því með nákvæmari hætti en gert hefur verið fram að þessu hvernig mál íslensks landbúnaðar verða afgreidd hér á Alþingi. Það kom upp ágreiningur á sl. hausti um þau efni. Fjárlagafrv. eins og það var lagt fram var óásættanlegt fyrir landbúnaðinn og fjárlög voru afgreidd án þess að fullar sættir næðust þótt unnist hafi mjög mikilvægur varnarsigur. En það er svo annað mál að varnarsigrar skila ekki fullnægjandi árangri. Meiri árangur verður að nást þegar tekist verður næst á í þeim efnum.
Ég vil svo taka fram að lokum, herra forseti, að eftir því var leitað við mig af varaforseta að ég féllst á að til afgreiðslu yrðu tekin á undan þessu máli nokkur mál sem ekki er ágreiningur um. Þeirri afgreiðslu er lokið og annað samkomulag hef ég að sjálfsögðu ekki gert.