04.05.1988
Efri deild: 87. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7294 í B-deild Alþingistíðinda. (5325)
228. mál, framleiðsla og sala á búvörum
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Eins og kom reyndar fram í þingskapaumræðunum í upphafi fundar í hv. deild í dag hefur þetta frv. um breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum verið til umfjöllunar í hv. landbn. nokkuð lengi og í upphafi virtist sem fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna í nefndinni mundu ekki standa að sameiginlegu áliti. Það lá nokkurn veginn fyrir að meiri hluti mundi verða í nefndinni með hv. flm., formanni nefndarinnar, og öðrum fulltrúa Sjálfstfl., hv. 4. þm. Vestf., hæstv. forseta Sþ., og okkur fulltrúum Kvennalistans og Alþb. í nefndinni sem lýstum því fljótlega yfir eftir að umræða hófst um málið í nefndinni að við teldum okkur geta stutt þetta mál með ákveðnum fyrirvara, en við teldum eðlilegt og sjálfsagt að málið fengi eðlilega þinglega meðferð.
Það leit þannig út um tíma að málið yrði afgreitt úr nefndinni með þessum meiri hluta. Hitt lá reyndar ekki fyrir hvort aðrir fulltrúar í nefndinni, þ.e. fulltrúar Framsfl. og Alþfl., mundu beita sér gegn frv., en það lá þó frekar í loftinu að þannig mundi fara. Svo gerist það upp úr páskum að það er komið annað andrúmsloft í nefndina og ágætir fulltrúar Framsfl. fara að gefa undir fótinn með að það geti verið að þeir séu tilbúnir að vera á nál. Og það fréttist að um málið hefði verið fjallað á fundum ríkisstjórnarinnar, það hefði verið tekin fyrir í ríkisstjórn þessi tillaga hv. 5. þm. Austurl. um að unnið verði að markmiðum búvörulaganna, að það væri eitthvert vandamál í ríkisstjórninni um að það væri stefnt að því að standa við markmið búvörulaganna. Og ekki nóg með að um þetta hafi aðeins verið fjallað í ríkisstjórn á einum fundi heldur lá í loftinu að það hefði ekki verið hægt að leysa það á einum fundi, menn hefðu ekki verið álveg sammála um það í ríkisstjórninni hvort ætti að standa við búvörulögin eða ekki heldur þyrfti að kanna málið betur á milli funda.
Ég er ekki heldur frá því að hv. 5. þm. Austurl. hafi verið tekinn á teppið og spjallað við hann um það hvort ekki væri hægt að fara með þetta mál á þann veg að það skapaðist ekki úlfúð í ríkisstjórninni, hvort þetta mál mætti ekki bara liggja í nefndinni, jafnvel þó að hann hefði þegar meiri hluta fyrir því að taka málið úr nefnd.
Sem betur fer, eins og nú er komið í ljós, mun hv. 5. þm. Austurl. Egill Jónsson ekki hafa fallist á þessa afgreiðslu mála. Hann hefur haldið fast við þá skoðun sína að það væri sjálfsagt að standa að markmiðum búvörulaganna sem hann hafði unnið að, staðið að ásamt með Sjálfstfl. og Framsfl. að fá samþykkt á hv. Alþingi. En einhverra hluta vegna var ekki hægt að þoka málinu svo langt áleiðis að það væri hægt að skapa meiri hluta á hv. Alþingi til að fá frv. samþykkt. Sjálfsagt hefur flm. verið gerð grein fyrir því að þar væru miklir erfiðleikar á, jafnvel stjórnarslit, ef ætti að ganga fast eftir því að beita þeim meiri hluta sem jafnvel væri hér í hv. deild til að fá málið samþykkt. Því er alveg öfugt farið með hv. þm. en þær lýsingar báru með sér sem flokksbróðir hans gaf á honum í dag við þingskapaumræðuna. Maðurinn er sáttfús og vill leysa öll mál og hann vill vitaskuld, eins og aðrir sjálfstæðismenn, standa að því að þessi ríkisstjórn lafi saman, standa að því með ráðherrum sínum og hv. þm. Halldóri Blöndal að halda frið í ríkisstjórninni. Þingmaðurinn mun jafnvel hafa verið tekinn á teppið aftur til forsrh. og farið fram á það við hann hvort ekki væri hægt að leysa þetta mál með því að það fengi umræðu í hv. deild, en síðan yrði því vísað til ríkisstjórnarinnar. Það er vitaskuld ekki mjög langt frá því að það sé verið að samþykkja málið með þeirri yfirlýsingu sem hér hefur verið lögð fram frá ríkisstjórninni eða frá hæstv. forsrh., en það er undarlegt að Framsfl. sé ekki tilbúinn að samþykkja þetta mál eins og að standa að þeirri yfirlýsingu sem hér var lögð fram. Er það bara af því að hv. þm. Egill Jónsson flutti þetta frv. að ekki má samþykkja það? Er ástandið þannig milli stjórnarflokkanna að Framsfl. geti ómögulega samþykkt frv. sem forustumaður úr bændahópi sjálfstæðismanna flytur? Þarf að búa til einhverja sérstaka leið vegna þess að það er þingmaður úr flokki sjálfstæðismanna sem flytur frv. um að standa við búvörulögin? Það er greinilegt að þingmaður eins og Halldór Blöndal telur miklu eðlilegra að þessu máli verði vísað til ríkisstjórnarinnar þannig að framsóknarmenn þurfi ekki að hafa þann kross á sér að þessu máli hafi verið komið í höfn fyrir atbeina hv. þm. Egils Jónssonar. Mikið þarf nú að leggja á sig til að gera hlut samþingmanna og samflokksmanna sinna heldur minni en eðlilegt væri.
Þessi meðferð á frv. segir okkur reyndar ekkert annað en það, og reyndar segir tillagan um að vísa þessu máli til ríkisstjórnarinnar fyrst og fremst það, að þeir flokkar sem nú fara með ríkisstjórn á Íslandi, og þá í þessu tilfelli fyrst og fremst Framsfl. og Sjálfstfl., hafa ekki burði til að standa að málefnum landbúnaðarins á Íslandi. Þeir geta ekki komið sér saman um jafnsjálfsagðan hlut og það að staðið sé við staðgreiðslu til bænda. Eins og útkoman er núna hjá kaupfélögunum, hjá afurðasölufélögunum sýnir það ekkert annað en að framkvæmd búvörulaganna hefur ekki gengið upp. Stefna Sjálfstfl. og Framsfl. hefur ekki gengið upp. Við stöndum frammi fyrir því að hringinn í kringum landið eru samvinnufyrirtæki bændanna að halda aðalfundi og fréttir af næstum hverjum einasta aðalfundi eru á þann veg að þetta eða hitt fyrirtækið hafi tapað tugum milljóna. Sérstaklega er þetta áberandi með þau fyrirtæki sem eru fyrst og fremst samvinnufélög á landbúnaðarsvæðum. Eitt og eitt kaupfélag tilkynnir smátekjuafgang, en það eru eingöngu fyrirtæki sem eru á sjávarútvegsvettvangi.
Þetta er staðfesting á því að bæði stefnan með búvörulögunum, stefna ríkisstjórnar Framsfl. og Sjálfstfl. og nú stefna ríkisstjórnar Sjálfstfl., Framsfl. og Alþfl. í málefnum bænda hefur mistekist. Það hefur ekki verið staðið við fyrirheit, jafnvel ekki þau sem búvörulögin gefa, t.d. í sambandi við að standa að eðlilegri fjármögnun í sambandi við framleiðsluvörur fyrirtækjanna né aðra þætti í þeim lögum. Afleiðingarnar eru þær, sem ég nefndi áðan, að samvinnufyrirtæki og einkafyrirtæki líka, sem reyna að þjóna í landbúnaðargeiranum, tapa stórum upphæðum, eru jafnvel á þessum mánuðum og missirum að missa frá sér það eigið fjármagn sem íslensk bændastétt hefur verið að nurla saman á síðustu áratugum og byggja upp fyrirtæki sem áttu að vera hornsteinar áframhaldandi búskapar og áframhaldandi byggðar í sveitum. Kveðjan sem bændur fá nú úr þessum flokkum er sú að þegar einn úr þeirra hópi flytur á hv. Alþingi tillögu um að færa til betri vegar framkvæmd búvörulaganna eða eins og segir í tillögu forsrh.: um staðfestingu á markmiðum búvörulaganna, þá geta þeir ekki komið sér saman um að koma málinu áfram og fá það staðfest á hv. Alþingi. Þeim finnst betra að gefa bændum einhver óljós fyrirheit um að það eigi að leysa þessi mál inni í rósrauðri framtíð. Þetta eru góðar kveðjur til þeirra manna sem núna standa frammi fyrir því að fyrirtæki þeirra eru meira og meira að missa sitt eigið fjármagn út úr höndunum, að sú pólitíska forusta sem þeir sjálfir hafa meira og minna valið sér til að senda inn á hv. Alþingi hafi ekki afl eða kjark til að afgreiða jafntiltölulega lítið mál og það sem hér er til umfjöllunar.
Hitt er svo annað mál, eins og ég sagði í 1. umr. þessa máls, að ég er nokkurn veginn viss um að hv. þm. Egill Jónsson þekkti sitt heimafólk svo vel að hann gerði sér litlar vonir um það, þegar hann flutti þetta frv. á hv. Alþingi, að hann fengi það samþykkt. Hann þekkti framsóknarmennina svo vel að fyrst honum tókst að koma málinu inn án þess að þeir væru meðflm. eða forustumenn að þessu, þá voru mestar líkur fyrir því að vegna þess að hann kom með það yrði það ekki samþykkt. Og í öðru lagi hlakkaði kannski í þingmanninum pínulítið að þessir framsóknarmenn sköpuðu honum þann möguleika að geta farið um sveitir Íslands, kannski ekki eingöngu sitt kjördæmi en þó aðallega, og sagt þar frá því hvernig forusta framsóknar hefði tekið því að það ætti að standa við búvörulögin. Ég er ekki í nokkrum vafa um að að sumu leyti hlakkar nú í hv. þm. Agli Jónssyni yfir því að geta ferðast um Austurland eftir þinglok og sagt frá hinum mikla skörungsskap Framsfl.
Framsóknarmenn verða að svara þessu og þá standa þeir ekki í betri sporum en þeim að þurfa að lesa yfir kjósendum sínum, kaupfélagsstjórum og bændum, þessa tillögu sem hæstv. forsrh., sjálfstæðismaðurinn, flytur fyrir þá á þingi til að bjarga þeim út úr þeirri klípu að það verði ekki samþykkt frv. frá hv. 5. þm. Austurl. Agli Jónssyni um að það eigi að standa við búvörulögin. Ja, mikil er nú reisnin í flokknum! Sjálfur flokkurinn sem kallaði saman miðstjórnarfund til að skipuleggja baráttu til framfaramála fyrir almenning í landinu og hefur boðað að hann ætli að kalla saman aftur miðstjórnarfund til að skipuleggja baráttuna fyrir byggðina í landinu hefur ekki kjark til að samþykkja tillögu eins og þá sem hér er sem er réttlætistillaga fyrir bændur í landinu. Ég held að hann þyrfti að halda miðstjórnarfund aðra hverja viku til að hressa svolítið upp á kjark sinn, flokkurinn sá.
Það er leiðinlegt til þess að vita að frammámenn kaupfélaga í landinu eða sláturleyfishafa, sláturhúsa í landinu þurfi að senda svipað skeyti og þeir Ólafur Sverrisson og Þorsteinn Sveinsson þurftu að gera í vetur. Varla er nokkuð annað meiri yfirlýsing, ákveðnari yfirlýsing um hvað Framsfl. hefur mistekist að stjórna landbúnaðinum á Íslandi þegar menn eins og Ólafur Sverrisson og Þorsteinn Sveinsson, þekktir forustumenn, kaupfélagsstjórar til margra ára, þurfa að skora á menn að standa ekki við þau fyrirheit sem gefin eru í lögum, þurfa að biðja menn um að standa ekki við staðgreiðsluna eða búvörulögin. Það er alveg ótrúlegt að svona hlutir geti skeð. (Gripið fram í.) Já, borga ekki, færa ekki til bændanna. Með leyfi forseta skal ég lesa skeytið. Hv. þm. Egill Jónsson las það í dag, en ég skal gera það. Með leyfi forseta, þannig hljóðar skeytið: „Til allra sláturleyfishafa.
Stjórn Landssamtaka sláturleyfishafa beinir þeim tilmælum til meðlima sinna að greiða ekki verðhækkun þá sem greiða átti 15. mars fyrr en greiðsla vaxta og geymslugjalds verður færð í fyrra horf eða sambærilegar ráðstafanir gerðar.“
Þetta er yfirlýsing um að það hefur ekki verið staðið við það sem lofað var gagnvart sláturleyfishöfum. Það er alveg ótrúlegt að slíkt skuli gerast.
Ályktun út frá umfjöllun þessarar tillögu er sú, eins og ég nefndi áðan og fyrst og fremst það, að það hefur mistekist að halda á málum bænda á undanförnum árum og við stöndum frammi fyrir því að samvinnufélögin í landinu og þeir aðilar sem hafa sinnt þjónustu fyrir landbúnaðinn eru meira og minna að missa sitt eigið fé og ef fram fer sem horfir eru líkur fyrir því að ýmis af þessum fyrirtækjum bændanna verði að hætta rekstri, gefast upp. Þá blasir ekkert við fyrir það umhverfi sem þeir hlutir koma upp í annað en byggðin þar meira og minna leggist niður. Það er ekki vegna þess að það þurfi að draga saman framleiðslu. Það hefur þurft að gera. Það vitum við vel að þarf að gera. Það er vegna þess að stjórnin á þessum málum hefur verið á þann veg að það hefur ekki verið varinn réttur þessa fólks. Það hefur verið svikist um að verja rétt þessa fólks.
Ég hef nefnt áður að það hafa verið fluttar margar ræður í þessum ræðustól og kvartað undan því að sparifé landsmanna væri að brenna upp vegna óðaverðbólgu og annars eftir því. Það eru allt of fáir sem núna tala um að eiginfjárstaða fyrirtækja í landinu sé að brenna upp. Það er alveg ótrúlegt að þeir sem telja sig vera forustumenn bænda skuli ekki benda á þá stöðu sem er í þessum málum einmitt hjá bændastéttinni. Það getur verið að það sé ekki hægt að fá þann sama tón í umræðuna þegar bálið fer um eiginfjárstöðu bændafyrirtækja eins og þegar einhverjir smálogar hafa farið um sparifjárinnstæður í bönkum. Maður finnur fyrir því. Mönnum finnst ekki svo mikið til koma þó að eiginfjárstaða bændafyrirtækjanna sé á báli. Það er ekki svo mikið atriði. En vitaskuld er afleiðing þess enn þá alvarlegri en hitt þó að í einhvern tíma hafi rýrnað sparifé í bönkum landsmanna. Vitaskuld var það vont og þurfti að koma í veg fyrir það. En ef á að selja það því verði að eignir og eiginfjárstaða fyrirtækjanna í framleiðsluatvinnuvegum landsmanna fari á bál er það allt of dýru verði keypt.