04.05.1988
Efri deild: 87. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7302 í B-deild Alþingistíðinda. (5329)
228. mál, framleiðsla og sala á búvörum
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Þetta er svolítið sérstakt, eftir að hv. 11. þm. Reykv. hafði flutt fram ákveðna fsp. um afstöðu heils þingflokks í ríkisstjórninni til þessa máls, að það skuli ekki koma svar við þeirri fsp., sérstaklega vegna þess að formaður þingflokksins, hv. 3. þm. Vesturl., er hér og hlustaði á þessa fsp. og hv. þm. lét sér það sæma í gær í sjónvarps- og útvarpsumræðum að gera hellum öðrum flokkum upp skoðanir. Hann tilkynnti trekk í trekk í sjónvarps- og útvarpsumræðum í gær að Alþb. væri að krefjast gengisfellingar. Skyldi þessi maður ekki vilja koma hér upp aftur og halda þessu fram? Gæti það verið að hann hafi verið að halda þessu fram til þess að Alþfl. gæti eftir stuttan tíma komið með gengisfellingu og sagt að það væri að kröfu Alþb.? Þetta hlýtur að vera af einhverjum slíkum hvötum gert og þegar hv. þm. treystir sér ekki til að koma hingað upp og svara spurningu eins og þeirri sem hér var borin fram af hv. 11. þm. Reykv. undrar mig málflutningurinn. Er Alþfl. að stinga sér undan því að taka ábyrgð á þessari ríkisstjórn? Er Alþfl. að reyna að gera öðrum upp þá skoðun sem Alþfl. mun jafnvel framkvæma eftir stuttan tíma? — Ja, ég hafði hátt núna. Ég geri jafnvel ráð fyrir því að hv. þm. komi upp á eftir og kvarti undan því að ég hafi haft hátt. Hann kvartaði undan því í umræðum í dag. En það verður kannski að hafa hátt til þess að forustumenn Alþfl. heyri um hvað er verið að spyrja þá. Hér er hv. þm. Egill Jónsson búinn að spyrja hæstv. viðskrh. margra spurninga. Því miður hefur ekki komið neitt svar. Og menn eru að tala um að flýta þingstörfum, koma þingstörfum áfram. Á sama tíma leyfa ráðherrar sér að svara í engu beinum spurningum sem er beint til þeirra. Það er ekki verið að biðja þá um að koma hér upp og halda langar ræður eða þess háttar heldur svara mjög einföldum spurningum eins og hv. þm. Egill Jónsson beindi hér til viðskrh. Á sama máta sitja forustumenn Alþfl. hér í deildinni þegar lögð er fram jafneinföld spurning og hv. 11. þm. Reykv. bar hér upp um afstöðu eins stjórnarflokksins til yfirlýsingar forsrh. um það hvernig skuli tekið á landbúnaðarmálum í ríkisstjórninni innan tiltölulega stutts tíma.
Ég held að þjóðin hljóti að vilja fá að heyra hver afstaða Alþfl. er í sambandi við till. sent hér liggur fyrir og væntanlega kemur til atkvæða innan stutts tíma.