05.05.1988
Efri deild: 89. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7376 í B-deild Alþingistíðinda. (5363)

431. mál, virðisaukaskattur

Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Á þskj. 1042 flytjum við þingmenn Alþb. í hv. Ed. þrjár brtt. við það frv. sem hér liggur nú fyrir til 3. umr. Þar er um að ræða undirstrikun á þeim aðalatriðum sem við höfum gagnrýnt í þessu frv., þ.e. að því er varðar skattlagningu annars vegar á matvörur og hins vegar á menningarstarfsemi. Við gerum okkur ljóst að varðandi afmörkun þess sem heitir menningarstarfsemi eru mörg markatilvik sem kunna að vera flókin og erfið skilgreiningaratriði. Þess vegna er gert ráð fyrir því að um markatilvikin verði sett reglugerð að höfðu samráði við menntmrn. Við teljum engu að síður nauðsynlegt að taka fram nú við umræðuna að við viljum að þessi grein, ef samþykkt yrði, verði túlkuð rúmt þannig að leiksýningar, regluleg leiklistarstarfsemi, svo og starfsemi kvikmyndahúsa, kvikmyndasýningar og hljómleikar verði undanþegin virðisaukaskatti. Við viljum sem sagt ganga lengra í þessum efnum en gert var ráð fyrir í tillögu meiri hl. og sömuleiðis viljum við ganga lengra en gert var t.d. í dönsku lögunum um menningarstarfsemi sem þar var almennt undanþegin þó að regluleg starfsemi kvikmyndasýninga, leikhúsa og hljómleika sé með virðisaukaskatti, en það á einnig við reyndar um útvarpssendingar og sjónvarps í dönsku virðisaukaskattslögunum.

Þá gerum við í þriðja lagi brtt. um að það verði tekin af tvímæli um að ekki verði lagður virðisaukaskattur á listaverk sem seld eru á listmunauppboðum. Ég tel nauðsynlegt að þetta ákvæði sé sett í lög til að taka þar af öll tvímæli, en skv. gildandi lögum er gert ráð fyrir því að 10% af andvirði listaverka, sem seld eru á listmunauppboðum, renni í sérstakan sjóð sem á að ganga til myndlistarmanna. Staðreyndin er hins vegar sú að um þann sjóð er ekki til nein reglugerð og engar reglur svo skrýtið sem það er þannig að það er ekki gott að átta sig á því hvar þeir peningar eru, en við teljum að það sé óeðlilegt að bæta við sérstökum skatti í ríkissjóð í þessu efni. Ef leggja ætti eitthvað á þessa starfsemi væri eðlilegt að það rynni til myndlistarmanna sjálfra.

Þetta eru þær þrjár brtt., herra forseti, sem við þingmenn Alþb. í Ed. flytjum. Varðandi efnisatriði málsins að öðru leyti vísa ég til þess sem fram kom af okkar hálfu við 2. umr. málsins, sem fór fram fyrir skömmu, og tel enga ástæðu til að lengja umræðurnar frekar að sinni.