05.05.1988
Efri deild: 89. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7377 í B-deild Alþingistíðinda. (5366)

431. mál, virðisaukaskattur

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti. Með vísan til þess sem ég sagði fyrr í umræðunum um það að ég teldi æskilegt að það væru fleiri en eitt skattþrep í virðisaukaskatti og einnig með vísan til þess að nefnd á að fjalla um þetta mál í sumar með það m.a. að markmiði að endurskoða ýmis ákvæði þessa frv. mun ég ekki greiða atkvæði að svo stöddu.