04.05.1988
Neðri deild: 89. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7386 í B-deild Alþingistíðinda. (5395)

75. mál, jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það er út af fyrir sig gott að mál þetta er komið hér aftur til hv. þingdeildar með því áliti sem hér liggur fyrir frá hv. félmn. Kosið hefði ég sem 1. flm. þessa máls og við flm. auðvitað að frv. þetta fengi jákvæðari undirtektir en felast í þeirri málsmeðferð sem hér liggur fyrir, að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar. Frv. er flutt vegna þess að við teljum að æskilegt sé og raunar nauðsynlegt að binda í lögum ákvæði um þessi efni til að ná fram því markmiði sem þarna er um að ræða sem fyrst.

Ég þakka hins vegar nefndinni fyrir jákvæðar undirtektir við málið í þessu nál. og vænti þess að það verði til þess að fastar verði róið í þessum efnum af hálfu framkvæmdarvaldsins og þeirra sem þarna eiga hlut að máli, bæði ríkisstjórnar og sveitarstjórna, heldur en verið hefur á undanförnum árum þrátt fyrir ákvæði laga frá 1976 um jafnrétti karla og kvenna og ákvæði sem tengjast sérstaklega nefndum, stjórnum og ráðum í lögunum frá 1985.

Ég bíð að sjálfsögðu spenntur eins og margir aðrir eftir að sjá breytingu frá því ástandi sem nú ríkir í þessum efnum. Næstu missiri og ár skera auðvitað úr um það hvort þarna næst árangur með einhverjum þeim öðrum leiðum sem hæstv. félmrh. og fleiri hafa mælt fyrir og talið æskilegri en að lögbinda það hlutfall sem gert er ráð fyrir í frv. okkar hv. 13. þm. Reykv. Ég ætla að sýna nokkra biðlund í þessum efnum og sjá hver reyndin verður áður en ég tek þetta mál aftur upp í þinginu, ef ástæða þykir til.

Við skulum vona að þess verði ekki langt að bíða að við sjáum aðrar niðurstöður í þessu máli en komu fram í þessari könnun Jafnréttisráðs sem fylgir frv. okkar sem fskj. og sýndi hversu mjög hallar á eðlilega þátttöku kvenna í nefndum, stjórnum og ráðum, bæði á vegum ríkis en einnig á vegum flestra sveitarfélaga þó að vissulega sé misjafnlega að þessum málum staðið hjá einstökum aðilum.

Verið er að þrýsta á um að nýta 3. gr. jafnréttislaganna með ýmsum hætti. Það hefur komið fram hér mikill áhugi hjá einstökum þm. í því efni, m.a. með tillöguflutningi. Ég minni á till. til þál. sem liggur fyrir þinginu frá nokkrum þm. — ég hygg að 1. flm. sé hv. 12. þm. Reykv. — um að mótaðar verði tillögur og áætlun sem lögð verði fyrir þingið um þau efni. Hæstv. félmrh. hefur marglýst því yfir að það sé verið að vinna að þessu á sínum vegum. Við skulum því vona að uppskeran verði góð úr því starfi. Við verðum að vænta þess og bíða eftir að sjá hverju reynslan skilar.