05.05.1988
Sameinað þing: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7423 í B-deild Alþingistíðinda. (5459)

413. mál, sjónvarp fyrir sjómenn

Fyrirspyrjandi (Ingi Björn Albertsson):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra svör hans. Þar kemur aðallega í ljós að hér er um dýrar framkvæmdir að ræða, að ráða bót á þessum málum, og hins vegar tæki það ekki ýkja langan tíma, aðeins um tvö ár, þegar í það verður ráðist. Ég treysti mér nú ekki til þess að skora á hann að ráðast í þessar framkvæmdir nú, en bið hann að hafa þetta ofarlega í huga þegar tækifæri gefst og fjárhagur ríkisins batnar eða kemst í viðunandi horf.