05.05.1988
Sameinað þing: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7426 í B-deild Alþingistíðinda. (5464)

487. mál, kostnaður vegna auglýsinga

Fyrirspyrjandi (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að spyrja hæstv. fjmrh. um kostnað vegna auglýsinga um eigið ágæti skattkerfisbreytinga ríkisstjórnarinnar o.fl. eins og segir á þskj. 837. Þessar fsp. eru í fjórum liðum:

„1. Hver er orðinn kostnaður ríkisins vegna nokkurra heilsíðuauglýsinga, sem birst hafa í dagblöðum undanfarið, um „ágæti“ núgildandi skattkerfis, meðferð og ráðstöfun opinbers fjár o.fl. á vegum fjmrn. og hversu miklum fjármunum er ætlað að verja í heild í þessu skyni?

2. Var ákvörðun um „auglýsingaherferð“ þessa tekin af ríkisstjórninni í heild eða fjmrh. einum?

3. Var gert ráð fyrir þessum útgjöldum sérstaklega við afgreiðslu fjárlaga og ef svo er hvar sér þess stað?

4. Er þess að vænta að ríkisstjórnin hefji hliðstæðar auglýsinga- eða kynningarherferðir á stefnu sinni í öðrum málaflokkum sem greitt verði fyrir úr ríkissjóði?"

Ástæða fsp. er sú að fyrirspyrjandi telur vægast sagt hæpið að nota almannafé með þeim hætti sem hæstv. fjmrh. eða hæstv. ríkisstjórn gerir í þessari auglýsingaherferð. Auglýsingarnar fullyrða að umdeild pólitísk stefna, svo sem eins og matarskatturinn, sé einfaldara og skilvirkara og jafnvel réttlátara fyrirkomulag í skattheimtumálum en áður var við haft. Undir því getum við ekki setið, a.m.k. ekki stjórnarandstæðingar sem hér börðumst hart gegn nefndri stefnu í skattamálum, að opinbert fé sé síðan notað með þessum hætti til að réttlæta þessa gjörð. Ég minni á fundaherferð sem hæstv. þáverandi forsrh. fór á sínum tíma undir kjörorðunum „Hvað er ríkisstjórnin að gera fyrir þig?" sem sumum fannst nú hæpin vegna þess að hún var kostuð af fé ráðuneytisins, fundirnir auglýstir af fé ráðuneytisins o.s.frv. Hér er gengið enn þá og miklu, miklu lengra inn á sömu braut. Ég tel því óhjákvæmilegt að fá við því skýr svör, herra forseti, hvort ríkisstjórnin hyggst halda áfram á þessari braut, hvort þetta er einkaframtak hæstv. fjmrh. og hversu mikill kostnaður er þegar á fallinn. Reyndar er það skoðun mín og fleiri sem ég hef rætt þessi mál við að hæstv. fjmrh. ætti að greiða úr eigin heimilisreikningi eða úr flokkssjóðum Alþfl. fyrir þegar áfallinn kostnað í þessu sambandi.