05.05.1988
Sameinað þing: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7447 í B-deild Alþingistíðinda. (5499)
500. mál, iðjuþjálfar
Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svörin og hv. 1. þm. Vestf. fyrir undirtektirnar. Eins og fram kom í máli þeirra er hér um mikilvægt mál að ræða. Iðjuþjálfafélagið skrifaði mér bréf fyrir nokkru og skýrði mér frá því að fsp. hefði þegar borið árangur þegar hún var lögð fram því að upp úr því eða um það leyti skrifaði menntmrh. og óskaði eftir tilnefningum í nefnd til að undirbúa nám í sjúkraþjálfun hér á landi. Þannig er tilganginum náð af minni hálfu. Málið er farið af stað, en það verður að sjálfsögðu fylgst með því því að þetta er þýðingarmikið atriði fyrir þróun heilbrigðisþjónustunnar hér á landi.