05.05.1988
Sameinað þing: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7448 í B-deild Alþingistíðinda. (5502)

510. mál, byggingarkostnaður Seðlabankahússins

Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir hans svar, hjó þó eftir því að þar var stigið á bremsuna við seinustu áramót, en nú er liðið þó nokkuð á þetta ár og ég hélt að í þeirri stofnun væri slík reiða á reikningshaldi að hægt væri að fá það nær nútímanum ef byggingarframkvæmdir hafa haldið áfram. En það má vera að svo sé ekki og því eðlilegt það svar sem hér kom fram.