05.05.1988
Sameinað þing: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7449 í B-deild Alþingistíðinda. (5505)
510. mál, byggingarkostnaður Seðlabankahússins
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Ég vil segja að þetta svar hæstv. viðskrh. var náttúrlega ekkert svar. Ég hefði viljað fá það miklu meira sundurliðað vegna þess að Seðlabankinn og opinberir aðilar liggja undir ásökun um að hafa sóað fé. Ég er ekkert viss um að Seðlabankabyggingin sé svo mikið dýrari en eðlilegt er vegna þess að í heildarkostnaðinum er svo margt sem þarf að koma inn í bankabyggingar og sérstaklega seðlabankabyggingar sem eru byggðar eftir sérstökum stöðlum sem ekki eru í venjulegum byggingum, sérstaklega í öryggisútbúnaði, og á ég þá við geymslur, hurðir og veggi og öryggiskerfi til aðvörunar og fleira. Ef hæstv. ráðherra hefur hugsað sér að biðja Seðlabankann um að svara eitthvað nánar og meira sundurliðað fsp., sem hér er á dagskrá, þætti mér því vænt um að það væri sundurliðað, þannig að eðlilegur byggingarkostnaður kæmi þá í ljós, og svo aftur sundurliðað í öryggisbúnað og fleira. Jafnvel hönnunin ein á slíku sérbyggðu húsi undir þessa sérstöku starfsemi er að mínu mati þó nokkuð ef ekki mörgum sinnum dýrari en á venjulegum húsum af sömu stærð.